Hoppa yfir valmynd
25. mars 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 583/2020-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 583/2020

Fimmtudaginn 25. mars 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 11. nóvember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. nóvember 2020, um að synja beiðni hans um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 7. október 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 14. október 2020 og óskaði samhliða eftir greiðslu atvinnuleysisbóta frá 7. október 2020 í stað umsóknardags með vísan til þess að honum hafi verið gert að loka rekstri sínum vegna opinberra sóttvarnaráðstafana þann dag. Með ákvörðun, dags. 4. nóvember 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 97%. Beiðni kæranda um að umsókn tæki gildi 7. október 2020 var synjað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. nóvember 2020. Með bréfi, dags. 13. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 8. janúar 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. janúar 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun vilji ekki greiða honum atvinnuleysisbætur frá lokunardegi hársnyrtistofu hans heldur frá umsóknardegi um atvinnuleysisbætur því að honum hafi láðst að sækja strax um bætur. Kæranda hafi verið gert, að beiðni stjórnvalda, að loka þann 6. október 2020 vegna COVID-19. Kæranda þyki miður að ekki sé tekið tillit til þess þegar tekin sé ákvörðun um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann þyrfti að sækja um bætur sama dag og hafi verið lokað hjá honum með vísan til þess að í fyrri bylgju COVID-19 hafi verið tekið mið af lokunardegi. Kærandi óski eindregið eftir því að þetta verði leiðrétt þar sem hann hafi ekki greitt sér laun í október og fyrirtæki hans sé tekjulaust á meðan lokun standi yfir.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að hafna beiðni kæranda um að fá greiddar atvinnuleysisbætur aftur fyrir umsóknardag hans. Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi fram að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Þar sem Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 14. október 2020 telji stofnunin að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. fortakslaust skilyrði laga nr. 54/2006, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna, sbr. fyrri úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 394/2020.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 7. október 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann þyrfti að sækja um atvinnuleysisbætur sama dag og honum hafi verið gert að loka hárgreiðslustofu sinni þar sem í fyrri bylgju COVID-19 hafi Vinnumálastofnun tekið mið af lokunardegi fyrirtækisins. Í svari Vinnumálastofnunar við fyrirspurn úrskurðarnefndarinnar um á hvaða grundvelli sú ákvörðun hafi verið tekin er vísað til laga nr. 23/2020, um breytingu á lögum nr. 54/2006. Með 1. gr. b. laganna hafi verið opnað á þann möguleika fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga að tilkynna skattinum um samdrátt í rekstri í stað algerrar lokunar. Það væri nóg til að uppfylla skilyrði laganna. Lögin hafi verið samþykkt 20. mars 2020 en gildistími ákvæðisins ákveðinn afturvirkt eða frá og með 15. mars 2020. Á þeim grundvelli hafi í fyrstu bylgju COVID-19 verið fallist á beiðnir um afturvirkar greiðslur, frá og með 15. mars, ef umsókn hafi borist þegar kynning á lagabreytingu hafi enn verið í vinnslu.

Í því máli sem hér um ræðir voru aðstæður með öðrum hætti, þ.e. bráðabirgðaákvæði XIV. kafla laga nr. 54/2006 var þegar í gildi þegar kærandi lagði inn umsókn hjá Vinnumálastofnun 14. október 2020. Að því virtu og með vísan til 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 átti kærandi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir umsóknardag. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. nóvember 2020, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 7. október 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum