Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 361/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 361/2021

Fimmtudaginn 18. nóvember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. júlí 2021, kærði B, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. mars 2021, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. mars 2021, var kæranda tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir desember 2020, að fjárhæð 148.806 kr., vegna greiðslna frá Lífeyrissjóði C og Lífeyrissjóði D.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. júlí 2021. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 16. júlí 2021, var óskað eftir að umboðsmaður kæranda legði fram umboð vegna málsins. Sú beiðni var ítrekuð 21. júlí, 5. ágúst og 8. september 2021. Umbeðið umboð barst úrskurðarnefndinni 9. september 2021 og með bréfi, dagsettu sama dag, var umboðsmanni kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Athugasemdir bárust ekki.

Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. september 2021, var óskað eftir afriti af öllum gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 28. september 2021. Með bréfi, dags. 13. október 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar þar sem í ljós kom að stofnunin hafði rökstutt hina kærðu ákvörðun 14. maí 2021 og kærufrestur því ekki liðinn þegar kæra barst úrskurðarnefndinni. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 26. október 2021, og var hún send umboðsmanni kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. október 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi átt rétt á greiðslum frá tveimur lífeyrissjóðum en um hafi verið að ræða lágar upphæðir og því hafi honum staðið til boða að fá eingreiðslu. Kærandi hafi óskað eftir eingreiðslu frá báðum sjóðunum og það áður en hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun. Markmið kæranda hafi verið að afla tekna vegna mikils tekjufalls. Þegar kærandi hafi ákveðið að sækja um atvinnuleysisbætur hafi greiðslurnar loks borist. Að mati kæranda sé það hart að hann hafi bæði þurft að bíða lengi eftir greiðslum frá lífeyrissjóðunum, eftir að hafa verið í vandræðum í nokkurn tíma, og þegar þær hafi komið hafi atvinnuleysisbæturnar verið skertar og álagi bætt við endurgreiðslukröfuna. Kærandi fari því fram á leiðréttingu þar sem lækkun atvinnuleysisbóta hafi ekki átt rétt á sér. Einnig telji kærandi að beiting álags ætti að vera til refsingar sé um að ræða misnotkun á greiðslum Vinnumálastofnunar. Ekki sé um slíkt að ræða í hans tilviki. Þá biðjist kærandi velvirðingar á seinum viðbrögðum við ákvörðun Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 23. nóvember 2020. Bótaréttur kæranda hafi verið metinn 80% og hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samræmi við rétt sinn. Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar og Ríkisskattstjóra í mars 2021 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með ótilkynntar tekjur frá Lífeyrissjóðs D og Lífeyrissjóði C í desember 2020. Vegna þessa hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur í þeim mánuði, samtals að fjárhæð 148.806 kr. Kærandi hafi ekki staðfest atvinnuleit sína og hafi verið afskráður af atvinnuleysisbótum þann 25. ágúst 2021. Skuld kæranda við Vinnumálastofnun sé nú 50.248 kr.

Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar vegna framangreindra greiðslna frá Lífeyrissjóði C og Lífeyrissjóði D. 

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Tekjur atvinnuleitenda komi til frádráttar á atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006. Þar komi fram að þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans samkvæmt 32.-34. gr. séu hærri en sem nemi óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki samkvæmt 4. gr. skuli skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram séu. Hið sama gildi um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem séu komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kunni að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skuli taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hafi haft á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur, sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum.

Tekjur kæranda hafi ekki komið fram fyrr en allnokkru eftir að atvinnuleysisbætur hafi verið greiddar. Vegna þessa hafi atvinnuleysisbætur til kæranda verið leiðréttar afturvirkt. Þess beri að geta að skuld kæranda hafi ekki verið innheimt með álagi. Ofgreiddum atvinnuleysisbótum hafi verið skuldajafnað sem hafi numið 25% af atvinnuleysisbótunum í hverjum mánuði á móti síðar tilkomnum greiðslum í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Eftirstöðvar skuldar kæranda nemi nú 50.248 kr. og krafa Vinnumálastofnunar um endurgreiðslu kæranda á ofgreiddum atvinnuleysisbótum á þeirri fjárhæð sé byggð á 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ákvæðinu sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 54/2006 sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð. Bendi Vinnumálastofnun á niðurstöðu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða í máli nr. 49/2010. Jafnframt bendi Vinnumálastofnun á úrskurð nefndarinnar í máli nr. 86/2013 um að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta.

Það sé niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. mars 2021, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir desember 2020, að fjárhæð 148.806 kr., vegna greiðslna sem kærandi fékk þann mánuð frá Lífeyrissjóði C og Lífeyrissjóði D.

Í 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna hins tryggða. Þar segir í 1. mgr.:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Kærandi fékk greiðslur frá tveimur lífeyrissjóðum samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Ljóst er að þær greiðslur höfðu áhrif á fjárhæð atvinnuleysisbóta til handa kæranda, sbr. framangreint ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um frádrátt vegna lífeyrisgreiðslna.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna er heimilt að skuldajafna ofgreiddum atvinnuleysisbótum á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum sama einstaklings en þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur 25% af síðarnefndu atvinnuleysisbótum í hverjum mánuði. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem tekjuáætlun kæranda gerði hvorki ráð fyrir greiðslum frá Lífeyrissjóði C né Lífeyrissjóði D í desember 2020 fékk hann greiddar hærri atvinnuleysisbætur en réttur var til í þeim mánuði. Kæranda ber því í samræmi við ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. mars 2021, í máli A, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum