Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2018 Innviðaráðuneytið

Niðurstöður könnunar um stöðu leiguíbúða á vegum sveitarfélaga

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Leiguíbúðum á vegum sveitarfélaga fjölgaði um 13,6% í Reykjavík og 10% í Kraganum á árabilinu 2012-2017 en fækkaði annars á landsbyggðinni nema á Norðurlandi eystra, samkvæmt niðurstöðum könnunar Varasjóðs húsnæðismála á stöðu leiguíbúða sem sveitarfélögin reka.

Skýrsla með niðurstöðunum hefur verið birt á vef velferðarráðuneytisins. Svarhlutfall var að þessu sinni mun lægra en áður. Svör bárust frá 44 sveitarfélögum af 74, en í sveitarfélögunum 44 búa tæp 90% landsmanna.

Meðal þess sem fjallað er um í skýrslunni er mat sveitarfélaga á rekstrarvanda vegna leiguíbúða, framboð húsnæðis á leigumarkaði innan hvers þeirra, áform sveitarfélaga um fjölgun eða fækkun íbúða, upplýsingar um fjölda umsókna um félagslegt leiguhúsnæði, biðlista og biðitíma, leigugjald á fermetra, greiðslur sérstaks húsnæðisstuðnings, ástand og viðhald leiguíbúða sveitarfélaganna og fleira.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum