Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2020 Utanríkisráðuneytið

Ísland styður ákall um vopnahlé á heimsvísu

Ljósmynd: UNICEF/ Matas - mynd

Ísland tekur undir yfirlýsingu 53 ríkja sem lýsa stuðningi við ákall António Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé á heimsvísu. Hvatt er til þess að þjóðir heims beini spjótum sínum gegn heimsfaraldri kórónaveiru.

Ríkin lýsa sérstaklega yfir áhyggjum af stöðu kvenna og barna, auk þess sem áhersla er lögð á jaðarsetta hópa, fátækari ríki og flóttafólk. Einnig er lýst yfir stuðningi við aðgerðir Sameinuðu þjóðanna, Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og annarra stofnana SÞ til að tryggja vernd borgara í ríkjum þar sem átök geisa. Að lokum er þökkum komið á framfæri til mannúðar- og heilbrigðisstarfsfólk í framlínu heimsfaraldursins.

Óttast stríðsátök

Að mati António Guterres er heimsfaraldurinn vegna kórónaveirunnar mesta ógn sem steðjað hefur að mannkyni frá lokum síðari heimstyrjaldar. Hann sagði faraldinn ógn við alla íbúa jarðarinnar og efnahagslegan skell geta leitt til kreppu sem ætti sér ekki hliðstæðu á síðari tímum. Hann kvaðst einnig óttast að faraldurinn verði kveikja að stríðsátökum.

Guterres telur eina varnarleikinn í stöðunni felast í alþjóðlegri samstöðu og samvinnu, „að allir sýni samstöðu og gleymi pólitískum leikjum og átti sig á því að mannkynið er í húfi,“ eins og hann orðaði það.

Guterres kveðst jafnframt heilshugar styðja heilshugar tillögu forseta Frakklands, Rússlands og Þýskalandskanslara, sem lögð var fram á fundi G20 ríkjanna í síðustu viku, að þau ríki tækju höndum saman um sérstakan stuðning við ríki Afríku.

Skýrsla Sameinuðu þjóðanna um félagsleg- og efnahagsleg áhrif COVID-19

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
5. Jafnrétti kynjanna
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum