Hoppa yfir valmynd
19. desember 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 593/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 19. desember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 593/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19100010

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 1. október 2019 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. september 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og með vísan til 2. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 26. maí 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 28. maí 2019, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 12. júní 2019 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. d-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum yfirvöldum, dags. 18. júní 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 13. september 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 17. september 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 1. október 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 17. október 2019 ásamt fylgigögnum. Þá var kæranda leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 4. desember 2019, um að leggja fram frekari gögn í málinu en engin gögn bárust.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að sænsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Svíþjóðar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun greint frá því ofbeldi og pyndingum sem hann hafi orðið fyrir í [...]. Þá hafi kærandi orðið fyrir skotárásum og meðal annars [...]. Kveði kærandi atburðina hafa haft mikil áhrif á andlega heilsu sína. Hann sé mjög stressaður og kvíðinn, geti ekki sofið um nætur og fái martraðir. Þá hafi kærandi greint frá því að hann hafi glímt við [...]. Kærandi kveði þá að aðstæður sínar í Svíþjóð hafa verið slæmar, hann hafi haft lítið að borða og hafi safnað flöskum til að geta keypt sér máltíðir.

Í greinargerð kæranda koma fram athugasemdir við hina kærðu ákvörðun. Kærandi gerir í fyrsta lagi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á því að ekki séu uppi sérstakar ástæður í máli hans, m.a. með vísan til 3. mgr. 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga. Stofnunin telji kæranda ekki þjást af skyndilegum og lífshættulegum kvillum og telji kæranda almennt hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu í Svíþjóð. Kærandi bendir á að framburður hans og framlögð gögn í málinu sýni fram á að hann þurfi enn á reglubundnu eftirliti að halda vegna [...], en hann hafi farið í aðgerðir til að [...]. Kærandi telji ástæðu til að óttast að endursending til Svíþjóðar geti haft í för með sér frekari neikvæð áhrif á heilsu hans. Þá mótmæli kærandi því harðlega að hafa neitað því að fara í aðgerð hér á landi, líkt og komi fram í ákvörðun Útlendingastofnunar, um misskilning sé að ræða og honum hafi aldrei staðið það til boða. Kærandi gerir í öðru lagi athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að ekkert bendi til þess að mál hans fái ekki vandaða og efnislega málsmeðferð í Svíþjóð. Því sé haldið fram að engin gögn bendi til þess að slíkur kerfisbundinn galli sé á aðbúnaði og meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð sem leiði til þess að kærandi standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð þar í landi. Kærandi vísi til þess að hann hafi fengið lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð og með endursendingu tæki Útlendingastofnun ákvörðun um að senda hann til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast m.a. ómannúðlega meðferð vegna öryggisástands og skorts á aðgengi að fullnægjandi heilbrigðisaðstoð. Slík ákvörðun bryti í bága við 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár Íslands, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Kærandi byggir kröfu sína um að umsókn hans skuli tekin til efnismeðferðar hér á landi í fyrsta lagi á því að endursending hans til Svíþjóðar jafngildi broti á grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement. Í því sambandi vísi kærandi aðallega til 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sem kveði skýrt á um bann við sendingu einstaklings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki áframsendur til svæðis þar sem líf hans eða frelsi kunni að vera í hættu. Fyrir liggi að kærandi hafi fengið lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð og að vilji sænskra stjórnvalda sé að endursenda kæranda til [...]. Kærandi telji að stjórnvöldum sé ekki heimilt að vísa til almennrar staðhæfingar þess efnis að Svíþjóð veiti fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem þeir eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi sé ógnað, heldur beri að líta til raunverulegra og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda. Óljós tilvísun til virðingar við mannréttindi í Svíþjóð dugi ekki til þess að uppfylla lagaskyldu íslenskra laga sem íslensk stjórnvöld séu bundin af. Ákvörðun um að synja kæranda um efnismeðferð hér á landi bryti því í bága við 42. gr. laga um útlendinga og ákvæði stjórnarskrárinnar og alþjóðlegra mannréttindasamninga sem íslensk stjórnvöld eru bundin af.

Kærandi byggir kröfu sína í öðru lagi á því að umsókn hans skuli tekin til efnismeðferðar í ljósi ákvæða 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, vegna þeirra aðstæðna sem bíða hans í Svíþjóð. Vísar kærandi til þess að stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending geti haft í för með sér, auk þess að meta hvort kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi vísar kærandi til þeirra veikinda sem hann hafi glímt við í mörg ár auk þess sem hann vísi til sögu sinnar um ofbeldi og pyndingar í heimaríki sínu. Kærandi hvetji þá kærunefnd til að framkvæma ítarlegt mat á andlegri og líkamlegri heilsu hans, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Með vísan til heilsufars kæranda, sérstaklega viðkvæmrar stöðu hans og þeirra atburða sem hann hafi mátt þola á lífsleiðinni, sé á því byggt að fyrir hendi séu slíkar sérstakar ástæður sem skylda íslensk stjórnvöld til að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja sænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára gamall karlmaður sem kom einn hingað til lands. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann hafi sætt ofbeldi í heimaríki, glími við stress og kvíða og eigi við svefnerfiðleika að stríða. Af gögnum málsins verður þá ráðið að kærandi hafi hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna þar sem hann hafi fengið aðstoð vegna [...].

Í samskiptaseðlum Göngudeildar sóttvarna kemur m.a. fram að kærandi hafi greint frá því að [...]. Í samskiptaseðli Göngudeildar sóttvarna er vísað til gagna frá heilbrigðisstofnun í Svíþjóð og tekið fram að [...]. Verði kærandi áfram á Íslandi sé næsta skoðun ráðlögð í lok árs 2019. Kærandi hafi fengið ávísað lyfi við [...]. Kærunefnd leiðbeindi kæranda um framlagningu frekari gagna með tölvupósti þann 9. desember sl. Engin frekari gögn bárust frá kæranda.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn, beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Svíþjóð

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/18 - Sweden (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report on the situation of Asylum in the European Union 2018 (European Asylum Support Office, 24. júní 2019);
  • Asylum Information Database. National Country Report: Sweden (European Council on Refugees and Exiles, 25. apríl 2019);
  • Freedom in the World 2019 – Sweden (Freedom House 2019);
  • Good Advice for Asylum Seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, janúar 2018);
  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016);
  • Sweden 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019) og
  • Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).

Í framangreindum gögnum kemur fram að sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Synji sænska útlendingastofnunin að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra þá ákvörðun og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Svíþjóð er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og í gagnagrunni Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga, Asylum Information Database, að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð sé tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Sveitarfélagið sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst í hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Eigi umsækjandi við andlega vanlíðan að stríða á hann rétt á því að óska eftir viðeigandi þjónustu frá heilsugæslunni sem staðsett er í sveitarfélaginu sem hann dvelst í. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda að kostnaðarlausu. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Þá eiga umsækjendur rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en þeir geta átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við framangreinda málsmeðferð. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka, t.d. ráðgjafarmiðstöðvar (s. Rådgivningsbyrån) sem veitir lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar af sænskum yfirvöldum. Sænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafli sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð sænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans og frelsi er í hættu. Kærunefnd telur gögn málsins bera það með sér að í Svíþjóð sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þess eða frelsi sé ógnað. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem benda til þess að meðferð á umsókn hans í Svíþjóð hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framansögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Þrátt fyrir að kærandi glími við tiltekin líkamleg og andleg veikindi telur kærunefnd þó að aðstæður kæranda séu ekki þess eðlis að þau viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Það er mat kærunefndar að heilsufar hans sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð verður ráðið að umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu, en fá þó ekki fjárhagsstuðning ríkisins til þess að greiða fyrir slíka þjónustu. Þá kemur fram í gögnum málsins að kærandi hafi áður sótt sér viðeigandi heilbrigðisþjónustu í Svíþjóð og hefur hann m.a. lagt fram læknisfræðileg gögn frá sænskri heilbrigðisstofnun. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi komi því til með að hafa aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi, en hann mun e.t.v. þurfa að greiða fyrir slíka þjónustu sjálfur. Þá vísar kærunefnd til þess að í ákvörðun Útlendingastofnunar komi fram að komi til flutnings kæranda til Svíþjóðar muni stofnunin huga að skyldum sínum samkvæmt 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Þá er það jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 3. júlí 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 26. maí 2019.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við mat stofnunarinnar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og aðstæðum í Svíþjóð. Þá hvetur kærandi kærunefnd til að framkvæma ítarlegt mat á andlegri og líkamlegri heilsu sinni, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Í máli kæranda liggur fyrir að honum hafi verið leiðbeint, í viðtali hjá Útlendingastofnun, að leggja fram læknisfræðileg gögn sem gætu haft þýðingu við ákvörðun í máli hans. Í því sambandi bendir kærunefnd á að kærandi hafi hitt sérfræðinga hjá Göngudeild sóttvarna auk þess sem hann hafi lýst andlegri líðan sinni í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Þá hafi kæranda gefist kostur á að koma á framfæri gögnum um heilsufar við meðferð málsins hjá kærunefnd. Er það mat kærunefndar að gögn málsins gefi með nægjanlega skýrum hætti til kynna stöðu kæranda og að málið hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar hans.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 26. maí 2019 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Svíþjóðar innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til. 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

Árni Helgason                                                                                                         Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum