Mál nr. 6/2025/Úrskurður
Mál nr. 6/2025
Úrskurður kærunefndar jafnréttismála
A ehf.
gegn
Rafiðnaðarsambandi Íslands
Frávísun. Lífsskoðun. Lögaðili.
Málinu var vísað frá kærunefnd jafnréttismála þar sem gildissvið 1. mgr. 1. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, tekur til jafnrar meðferðar einstaklinga. Kærandi gat því ekki reist rétt á lögunum á þeim grundvelli að honum hefði verið mismunað.
- Á fundi kærunefndar jafnréttismála 8. maí 2025 er tekið fyrir mál nr. 6/2025 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
- Með kæru, dags. 27. janúar 2025, kærði […] það skilyrði Rafiðnaðarsambands Íslands fyrir endurgreiðslu á sjúkraþjálfun/endurhæfingu að heilsunuddari þurfi að vera í Félagi íslenskra heilsunuddara. Í kæru greinir að heilsunuddarar og meðhöndlarar séu ekki lögvernduð starfsgrein á Íslandi. Kærði bjóði félagsmönnum sínum aðeins upp á endurgreiðslu frá heilsunuddurum í Félagi íslenskra heilsunuddara en ekki öðrum sem séu með sambærilega menntun. Í kæru er rakið að kærandi sé með fyrirtæki, rekstur og starfsleyfi. Skjólstæðingur kæranda hafi fengið bata í gegnum meðferð hjá honum en hafi ekki fengið endurgreiðslu sökum þess að kærandi væri ekki meðlimur í Félagi íslenskra heilsunuddara. Kærandi telur að synjun kærða feli í sér mismunun á grundvelli lífsskoðunar.
- Með erindi kærunefndar, dags. 11. apríl 2025, var óskað eftir nánari skýringum kæranda á aðild vegna kærunnar, þ.e. óskað var eftir upplýsingum um hvort kærandi, sem er einstaklingur, væri með rekstur nuddstofu á eigin kennitölu eða sem lögaðili. Þá var óskað eftir upplýsingum um nafn og kennitölu fyrirtækis kæranda sem og afriti starfsleyfis.
- Kærandi sendi hinn 14. apríl 2025 skráningu úr fyrirtækjaskrá og afrit af starfsleyfi fyrirtækisins A ehf.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, kemur fram að lögin gildi um jafna meðferð einstaklinga á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu. Í 2. gr. sömu laga kemur fram að markmið laganna sé að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, óháð þeim þáttum sem um geti í 1. mgr. 1. gr.
- Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, m.a. laga um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, og um störf kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna tekur kærunefnd jafnréttismála til meðferðar kærur sem til hennar er beint samkvæmt framansögðu og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laganna hafi verið brotin.
- Undir rekstri málsins lagði kærandi fram gögn um fyrirtæki sitt, A ehf., en í skráningu fyrirtækisins kemur fram að tilgangur þess sé m.a. rekstur nuddstofu og önnur starfsemi tengd nuddi. Þá afhenti kærandi staðfestingu á skráningu fyrirtækisins sem rekstraraðila nuddstofu frá heilbrigðiseftirliti. Af því og kæru málsins verður ekki annað ráðið en að synjun kærða á endurgreiðslu meðferðar, sem kærandi telur hafa falið í sér mismunun á grundvelli lífsskoðunar, hafi ekki beinst gegn kæranda persónulega heldur gegn einkahlutafélagi hans. Af því verður ekki annað ráðið en að kæra í máli þessu sé í raun gerð f.h. einkahlutafélags. Verður því aðild málsins afmörkuð með þeim hætti að kærandi sé einkahlutafélag sem teljist því vera aðili málsins.
- Gildissvið laga nr. 85/2018 tekur samkvæmt 1. mgr. 1. gr. til jafnrar meðferðar einstaklinga eins og að framan er rakið. Lögaðili getur hins vegar ekki reist rétt á lögunum á grundvelli þess að sér hafi verið mismunað á grundvelli lífsskoðunar. Að því virtu er máli þessu vísað frá nefndinni, sbr. og 1. mgr. 23. gr. reglugerðar nr. 1320/2024, um kærunefnd jafnréttismála.
Ú r s k u r ð a r o r ð
Máli þessu er vísað frá kærunefnd jafnréttismála.
Ari Karlsson
Andri Árnason
Maren Albertsdóttir