Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2015 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 47/2015 úrskurður 29. júní 2015

Mál nr. 47/2015                     Eiginnafn:       Þingey


Hinn 29. júní 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 47/2015 en erindið barst nefndinni 10. júní.

Sótt er um eiginnafnið Þingey.


Nafnið Þingey er dregið af íslenskum orðstofni, er ritað í samræmi við almennar ritreglur almenns máls og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Eiginnafnið Þingey (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Þingeyjar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

 

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Þingey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum