Stefna Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar
Stefna Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar er nú birt í fyrsta sinn. Stefnan er afurð samvinnu starfsfólks stofnunarinnar og hefur verið í mótun frá haustmánuðum 2018 en stofnunin tók formlega til starfa í maí sama ár. Í stefnunni koma fram gildi stofnunarinnar, hlutverk, sýn og verkefni.