Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 24/2020 Úrskurður 21. apríl 2020

Mál nr. 24/2020                     Millinafn:       Vattarnes

 

Hinn 21. apríl 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 24/2020 en erindið barst nefndinni 6. apríl 2020.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Vattarnes uppfyllir framangreind skilyrði laga um mannanöfn og er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laganna.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Vattarnes er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum