Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 288/2022 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 288/2022

Miðvikudaginn 17. ágúst 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 31. maí 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. maí 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta hennar vegna ársins 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta vegna ársins 2021 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 985.037 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. maí 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. maí 2022. Með bréfi, dags. 1. júní 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 24. júní 2022, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. júní 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá veikindum sínum og erfiðum samskiptum við sinn lækni. Þá segir að kærandi hafi fengið 930.000 kr. „í hausinn“ frá Tryggingastofnun sem hún sé ekki sátt við. Hún hafi virkilega haldið að hún væri að fylla tekjuáætlun rétt út. Kærandi voni svo heitt og innilega að þetta verði tekið til skoðunar.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2021 hafi kærandi verið með endurhæfingarlífeyri í janúar og febrúar og síðan örorkulífeyri út árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 985.037 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samtímaeftirlit Tryggingastofnunar við tekjuupplýsingar af skattframtali 2022 vegna tekjuársins 2021 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Þann 18. desember 2020 hafi kæranda verið sent bréf um að samþykktar hafi verið áframhaldandi greiðslur endurhæfingarlífeyris frá 1. janúar 2021 til 28. febrúar 2021. Í bréfinu hafi auk þess komið fram að við útreikning greiðslna yrði byggt á fyrirliggjandi tekjuáætlun sem hafi gert ráð fyrir að kærandi hefði 68.432 kr. í launatekjur og 16.464 kr. í vexti og verðbætur. Kærandi hafi skilað inn tekjuáætlun þann 1. júní 2021 þar sem gert hafi verið ráð fyrir 3.763.334 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 2.137.182 kr. í launatekjur og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna væru 32.928 kr. í vexti af innistæðum og verðbréfum. Tryggingastofnun hafi samþykkt nýja áætlun með bréfi, dags. 1. Júní 2021, og hafi kærandi verið upplýst um að fyrir lægi ofgreiðsla að fjárhæð 799.952 kr. sem yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins.

Við reglulegt eftirlit Tryggingastofnunar í júlí hafi komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá RSK. Tryggingastofnun hafi búið til nýja tekjuáætlun á grundvelli þeirra upplýsinga og hafi í henni verið gert ráð fyrir að kærandi hefði 4.214.707 kr. í lífeyrissjóðstekjur en að öðru leyti væri áætlunin óbreytt. Með bréfi, dags. 13. júlí 2021, hafi kæranda verið tilkynnt um hina nýju tillögu að tekjuáætlun og að búið væri að áætla kröfu að fjárhæð 90.426 kr. þegar tekið hefði verið tillit til staðgreiðslu skatta. Komið hafi fram að þessi áætlaða skuld yrði ekki innheimt fyrr en uppgjör hefði farið fram.

Kærandi hafi skilað inn nýrri tekjuáætlun þann 1. ágúst 2021 þar sem gert hafi verið ráð fyrir hækkun lífeyrissjóðstekna í 5.143.194 kr. en að öðru leyti hafi hún verið óbreytt. Tryggingastofnun hafi sent kæranda bréf, dags. 9. ágúst 2021, og tilkynnt að bótaréttur kæranda hefði verið endurreiknaður og fyrir lægi ofgreiðsla að fjárhæð 94.684 kr. sem yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins.

Þann 24. nóvember 2021 hafi kærandi skilað inn nýrri tekjuáætlun þar sem gert hafi verið ráð fyrir hækkun lífeyrissjóðstekna í 5.153.194 kr. og launatekna í 2.227.182 kr. en að öðru leyti hafi hún verið óbreytt. Tryggingastofnun hafi sent kæranda bréf, dags. 25. nóvember 2021, og hafi tilkynnt að bótaréttur kæranda hefði verið endurreiknaður og að ekki væri um breytingar á greiðslum að ræða. Við bótauppgjör ársins 2021 hafi komið í ljós að á árinu hafi kærandi haft 5.869.365 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 2.615.011 kr. í launatekjur og sameiginlegar tekjur með maka hafi verið 22.493 kr. í vexti og verðbætur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að á árinu hafði kærandi fengið greitt 2.039.660 kr. en hefði átt að fá greitt 703.223 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 985.037 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu og áður myndaðra krafna.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2021.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021.

Kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri og örorkulífeyri frá Tryggingastofnun á árinu 2021. Í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð segir að um endurhæfingarlífeyri gildi ákvæði a-liðar 1. mgr., 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Um aðrar tengdar bætur fari eftir sömu reglum og gildi um örorkulífeyri.

Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunni að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að Tryggingastofnun skuli hafa eftirlit með því að áætlaðar tekjur séu í samræmi við upplýsingar sem stofnunin aflar úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda eða frá öðrum þeim aðilum sem getið er um í 40. gr. Í 1. málsl. 1. mgr. 45. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að Tryggingastofnun skuli reglubundið sannreyna réttmæti bóta, greiðslna og upplýsinga sem ákvörðun um réttindi byggist á. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er Tryggingastofnun heimilt að endurskoða grundvöll bótaréttar hvenær sem er og samræma bætur þeim breytingum sem hafi orðið á aðstæðum greiðsluþega. Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins sendi Tryggingastofnun kæranda tekjuáætlun, dags. 18. desember 2020, vegna ársins 2021 þar sem gert var ráð fyrir 68.432 kr. í launatekjur og 16.464 kr. í fjármagnstekjur, sameiginlegar með maka. Kærandi skilaði inn nýrri tekjuáætlun 1. júní 2021 þar sem hún gerði ráð fyrir 3.763.334 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 2.137.182 kr. í launatekjur og 32.928 kr. í fjármagnstekjur, sameiginlegar með maka. Með bréfi, dags. 1. júní 2021, samþykkti Tryggingastofnun nýja tekjuáætlun og upplýsti kæranda um áætlaða ofgreiðslu að fjárhæð 799.952 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu, fyrir framangreint tímabil. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá í júlí 2021 kom í ljós að lífeyrissjóðstekjur kæranda höfðu verið hærri en gert hafði verið ráð fyrir. Var í kjölfarið útbúin ný tekjuáætlun, dags. 13. júlí 2021, þar sem gert var ráð fyrir 4.214.707 kr. í lífeyrissjóðstekjur en óbreyttum tekjum að öðru leyti. Jafnframt var kærandi upplýst um áætlaða kröfu að fjárhæð 90.426 kr. Kærandi lagði fram nýja tekjuáætlun 1. ágúst 2021 þar sem gert var ráð fyrir 5.143.194 kr. í lífeyrissjóðstekjur á árinu en að öðru leyti var fyrirliggjandi tekjuáætlun óbreytt. Með bréfi, dags. 9. ágúst 2021, tilkynnti Tryggingastofnun að bótaréttur kæranda hefði verið endurreiknaður og fyrir lægi áætluð ofgreiðsla að fjárhæð 94.684 kr. Kærandi skilaði inn nýrri tekjuáætlun 24. nóvember 2021 þar sem hún gerði ráð fyrir 5.153.194 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 2.227.182 kr. í launatekjur en að öðru leyti óbreyttum tekjum. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 25. nóvember 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar hefði verið endurreiknaður og að ekki væri um breytingar á greiðslum að ræða.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2021 var kærandi með 2.615.011 kr. í launatekjur, 5.869.365 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 22.493. kr. í vexti og verðbætur. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins leiddi í ljós ofgreiðslu á árinu, samtals að fjárhæð 985.037 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu, nánar tiltekið fékk kærandi ofgreitt í bótaflokkunum tekjutryggingu og sérstakri uppbót.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er sú að launatekjur og lífeyrissjóðstekjur ársins 2021 voru hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlunum. Launatekjur og lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021 og þá ákvörðun að krefja kæranda um endurgreiðslu þeirrar ofgreiðslu.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur rétt benda kæranda á að hún getur freistað þess að leggja fram beiðni um niðurfellingu ofgreiddra bóta til Tryggingastofnunar á grundvelli undanþáguákvæðis 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Þar kemur fram að heimilt sé að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Þá skuli einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna greiðsluþega og þess hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

                                                                                                                                                                                                                                                               Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum