Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Málþing um líffæragjöf og líffæraígræðslu 26. janúar

Embætti landlæknis - myndVelferðarráðuneytið

Með breytingu á lögum um brottnám líffæra sem samþykkt var á Alþingi í sumar er nú miðað við ætlað samþykki látins einstaklings fyrir líffæragjöf nema annað liggi fyrir. Lagabreyting sem felur þetta í sér tók gildi 1. janúar síðastliðinn. Embætti landlæknis stendur fyrir opnu málþingi um líffæragjöf og líffæraígræðslu 26. janúar næstkomandi.

 

Á málþinginu verður fjallað um líffæragjafir og líffæraígræðslur hér á landi og rætt um siðferðileg álitaefni. Í pallborðsumræðum verður rætt  um hvað lagabreytingin um nýliðin áramót felur í sér og rætt um rétt þeirra sem ekki vilja gefa líffæri.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum