Hoppa yfir valmynd
15. september 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 390/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 390/2021

Miðvikudaginn 15. september 2021

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 30. júlí 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 1. júní 2021 um að synja umsókn kæranda um milligöngu um meðlagsgreiðslur með tveimur börnum hans frá 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn 30. september 2020 sótti kærandi um milligöngu meðlagsgreiðslna frá 1. október 2020. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 5. október 2020, var milliganga um meðlagsgreiðslur með tveimur börnum hans samþykkt. Með rafrænni umsókn 27. apríl 2021 sótti kærandi um milligöngu meðlagsgreiðslna frá 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019 á grundvelli úrskurðar dómsmálaráðuneytisins, dags. 15. apríl 2021, þar sem fram kemur að barnsmóðir kæranda skuli greiða honum meðlag með tveimur börnum þeirra frá 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 1. júní 2021, var umsókn kæranda synjað með þeim rökstuðningi að óheimilt væri að greiða meðlag lengra en 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem öll gögn berast, sbr. 4. mgr. 63. gr. laga um nr. 100/2007 um almannatryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. júlí 2021. Með bréfi, dags. 3. ágúst 2021, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 11. ágúst 2021, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. ágúst 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er greint frá því að barnsmóðir kæranda hafi alfarið hætt að sinna börnum þeirra í maí 2019. Í þrjá mánuði hafi barnaverndarnefnd ekki upplýst kæranda um málið en þá hafi hann verið gerður að fósturforeldri barnanna sem sé eina úrræði fyrir feður á Íslandi. Kærandi hafi á árinu 2020 sótt um meðlag aftur í tímann fyrir árið 2019 en málið hafi velkst í kerfinu allt árið 2020, til dæmis hafi það tekið dómsmálaráðuneytið sex mánuði að úrskurða í málinu. Niðurstaðan hafi verið sú að kærandi eigi inni fjóra mánuði í meðlag með tveimur börnum fyrir árið 2019 sem Tryggingastofnun hafi neitað að greiða þar sem meðlagið sé orðið of gamalt.

Kærð sé niðurstaða Tryggingastofnunar þar sem dómsmálaráðueytið hafi úrskurðað kæranda í vil en Tryggingstofnun neiti einfaldlega. Það sé stór brotalöm í kerfinu þegar stofnanir vinni á móti hvor annarri.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé milliganga meðlags til kæranda frá 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019.

Málavextir séu þeir að með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 1. júní 2021, hafi kæranda verið synjað um milligöngu á meðlagi fyrir tímabil á árinu 2019, nánar tiltekið 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019, þar sem ekki sé heimilt að hafa milligöngu á meðlagi lengra en 12 mánuði aftur í tímann.

Forsaga málsins sé sú að kærandi hafi sótt um milligöngu meðlagsgreiðslna með rafrænni umsókn 30. september 2020 og hafi skilað á sama tíma staðfestingu á samkomulagi um forsjá og lögheimili frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, dags. 25. september 2020, þar sem komi fram að barnsmóðir kæranda skuli greiða kæranda meðlag með tveimur börnum frá 1. október 2020 til 18 ára aldurs. Tryggingastofnun hafi samþykkt að hafa milligöngu á meðlaginu frá þeim tíma, sbr. bréf, dags. 5. október 2020.

Í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé kveðið á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar. Þar segi að Tryggingastofnun sé skylt að greiða rétthafa greiðslna, samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Kveðið sé á um það í 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Í 4. mgr. sömu greinar segi síðan að Tryggingastofnun sé einungis heimilt að greiða meðlag aftur í tímann í allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni.

Í 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar segi síðan að heimilt sé að setja reglugerð um framkvæmd greinarinnar. Það hafi verið gert með reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga. Í 7. gr. reglugerðarinnar í III. kafla segi að heimilt sé að greiða meðlag í allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem gögn samkvæmt 5. gr. berist Tryggingastofnun, þ.e. umsókn og meðlagsákvörðun.

Kærandi hafi sótt um milligöngu Tryggingastofnunar á meðlagi með tveimur börnum sínum með rafrænni umsókn 27. apríl 2021. Kærandi hafi óskað eftir greiðslum í samræmi við úrskurð dómsmálaráðuneytisins, dags. 15. apríl 2021, sem hafi borist á sama tíma. Í úrskurðinum komi fram að barnsmóðir kæranda skuli greiða kæranda meðlag með tveimur börnum þeirra frá 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019. 

Samkvæmt ofangreindum laga- og reglugerðarákvæðum sé Tryggingastofnun einungis heimilt að hafa milligöngu um meðlag 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem nauðsynleg gögn, þ.e. umsókn og meðlagsákvörðun, berist stofnuninni. Þar sem umsókn kæranda og úrskurður dómsmálaráðuneytisins hafi borist Tryggingastofnun í apríl 2021 hafi stofnunin ekki haft heimild til að hafa milligöngu um greiðslu meðlagsins fyrir tímabilið 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019 þar sem um sé að ræða tímabil sem sé lengra en 12 mánuðir aftur í tímann. Vegna þessara skýlausu ákvæða hafi Tryggingastofnun ekki heimild til að breyta ákvörðun sinni um synjun á milligöngu meðlagsgreiðslna fyrir umrætt tímabil á árinu 2019.

Að gefnu tilefni beri að taka það fram að ákvörðun Tryggingastofnunar hafi engin áhrif á skyldu barnsmóður kæranda samkvæmt úrskurðinum til að greiða kæranda meðlag fyrir fyrrgreint tímabil á árinu 2019. Kærandi geti því sótt þær greiðslur samkvæmt almennum reglum úr hendi barnsmóður sinnar.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 1. júní 2021 um að synja kæranda um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003. Samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laganna er Tryggingastofnun heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við. Reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga hefur verið sett með stoð í 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar.

Af ákvæði 63. gr. laga um almannatryggingar leiðir að Tryggingastofnun ber að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur þegar beiðni berst frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Heimild Tryggingastofnunar til að greiða meðlag samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laganna er takmörkuð við 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem meðlagsákvörðun berst stofnuninni.

Samkvæmt úrskurði dómsmálaráðuneytisins, dags. 15. apríl 2021, á kærandi rétt á meðlagsgreiðslum með tveimur börnum sínum frá 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019. Milliganga Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur hefur verið frá 1. október 2020. Í kjölfar framangreinds úrskurðar dómsmálaráðuneytisins óskaði kærandi eftir greiðslum í samræmi við úrskurðarorð ráðuneytisins. Tímabilið, sem kærandi fer fram á milligöngu meðlagsgreiðslna, er umfram þá 12 mánuði aftur í tímann sem heimilt er að greiða samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar. Það er mat úrskurðarnefndar velferðarmála að stofnuninni sé því ekki heimilt að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til kæranda á því tímabili sem kærandi óskar eftir, sbr. 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar. Engin heimild er í lögum til þess að greiða meðlag lengra en 12 mánuði aftur í tímann. Að framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta synjun Tryggingastofnunar ríkisins um milligöngu meðlagsgreiðslna til kæranda frá 1. ágúst 2019 til 21. nóvember 2019.

Úrskurðarnefndin telur rétt að benda kæranda á að hann geti freistað þess að sækja greiðslu meðlags úr hendi barnsmóður sinnar samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Samkvæmt 66. gr. barnalaga má gera fjárnám fyrir meðlagi á grundvelli dóms, dómsáttar eða úrskurðar. Kæranda er því bent á að hann geti leitað aðfarar sýslumanns til tryggingar kröfu sinni á hendur barnsmóður sinni í samræmi við lög nr. 90/1989 um aðför.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A um milligöngu meðlagsgreiðslna, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum