Hoppa yfir valmynd
7. desember 2018 Innviðaráðuneytið

Framlög úr Jöfnunarsjóði vegna þjónustu við fatlað fólk tæpir fimmtán milljarðar árið 2018

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt meðfylgjandi tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða áætlun um úthlutanir framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2018. Heildarframlög nema 14.970 m.kr.

Breytingar frá 2. áætlun ársins 2018 eru til komnar vegna breytinga á reiknaðri stuðningsþörf út frá fyrirliggjandi gögnum. Helstu ástæður breyttrar stuðningsþarfar eru:

  • Nýliðun á árinu 2018.
  • Framkvæmd endurmats á núverandi SIS mati.
  • Aðrar breytingar í gagnagrunni, þ.m.t. andlát einstaklinga og kostnaðarbreytingar á þjónustu við einstaklinga.

Endanleg áætlun almennra framlaga vegna málefna fatlaðs fólks 2018

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum