Hoppa yfir valmynd
7. mars 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 105/2019 Úrskurður

 

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 7. mars 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 105/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120058

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 27. desember 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari Moldóvu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. desember 2018, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt staða flóttamanns hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 29. janúar 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 29. ágúst 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 10. desember 2018, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 27. desember 2018. Kærunefnd barst greinargerð frá talsmanni kæranda fyrir hans hönd þann 10. janúar 2019. Kærandi kom í viðtal hjá kærunefnd þann 21. febrúar 2019 einn síns liðs en hann afþakkaði aðstoð talsmanns síns við málsmeðferð hjá kærunefnd.

III.        Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að kærandi sé í hættu í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.        Málsástæður og rök kæranda

Þrátt fyrir að kærandi hafi afþakkað réttaraðstoð, sbr. 30. gr. laga um útlendinga, við meðferð máls síns hjá kærunefnd telur nefndin rétt að fjalla um málsástæður kæranda sem fram komu í greinargerð talsmanns hans fyrir hans hönd, dags. 10. janúar 2019, enda eru þær í samræmi við málsástæður og rök sem kærandi færði sjálfur fram hjá kærunefnd í viðtali 21. febrúar 2019.

Í greinargerð kemur fram að kærandi kveðst vera fæddur og uppalinn í borginni Tiraspol í Transnistríu þar sem hann hafi búið þar til hann flúði. Kærandi hafi sætt ákæru og hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem hann hafi ekki viljað fylgja skipunum þegar hann hafi gegnt herskyldu, en kærandi sé mótfallinn vopnaburði. Kærandi hafi fengið tveggja og hálfs árs skilorðsbundinn dóm. Á þeim tíma hafi hann þurft að mæta einu sinni í mánuði og láta vita af sér hjá sérstakri stofnun. Þá hafi nýlega verið höfðað mál á hendur honum vegna þátttöku hans í mótmælum í Tiraspol í nóvember 2017, og opinberrar gagnrýni hans á stjórnvöld í Transnistríu. Kærandi kveðst vera eftirlýstur af stjórnvöldum sökum þess. Kærandi tilheyri rússnesku þjóðarbroti í heimaríki sínu og aðhyllist rétttrúnaðarkirkjuna en sé ekki virkur í trúarlegu starfi. Þá sé kærandi ekki aðili að sérstökum stjórnmálaflokki en hafi tilteknar stjórnmálaskoðanir sem leiði til þess að hann sé í minnihluta í Transnistríu. Kærandi hafi flúið heimaríki vegna líkamlegs og andlegs þrýstings frá yfirvöldum í Transnistríu sem og Moldóvu sem hafi aðallega stafað af stjórnmálaskoðunum hans. Vandamál kæranda hafi hafist fyrir alvöru með þátttöku hans í framangreindum mótmælum þar sem hann hafi tjáð opinberlega afstöðu sína gegn ólöglegri veru rússneska hersins í Transnistríu. Stjórnvöld, þ.m.t. KGB hafi reynt að stöðva mótmælin án árangurs. Um það bil 500 til 1000 manns hafi mætt á mótmælin en mikill fjöldi löggæslumanna og annarra ríkisstarfsmanna hafi verið viðstaddir og flestir óeinkennisklæddir. Að sögn kæranda hafi stjórnvöld tekið eftir honum á mótmælunum. Þá hafi stjórnmálamaður Kommúnistaflokksins, Horjan, haldið tölu. Mótmælendur hafi mótmælt verðhækkunum, stjórnvöldum í Transnistríu, veru rússneska hersins í Transnistríu, refsingum fyrir stjórnmálaskoðanir og einokun Sheriff á allri þjónustu á svæðinu. Þá hafi verið gerð krafa um að pólitískir fangar verði látnir lausir. Í kjölfar mótmælanna þar sem kærandi hafi lýst sig mótfallinn veru rússneska hersins á svæðinu hafi refsimál verið höfðað gegn honum.

Kærandi greindi frá því að fjöldi fólks hafi verið handtekinn í mótmælunum en hann hafi sloppið þar til tveimur dögum síðar þegar þrír óeinkennisklæddir menn hafi komið á vinnustað kæranda, kynnt sig sem lögreglumenn og beðið hann að koma með sér. Mennirnir hafi spurt kæranda hvort hann hafi tekið þátt í mótmælunum en hann neitað. Þá hafi þeir jafnframt spurt hvort kærandi hafi þekkt til skipulagningar mótmælanna og hverjir hafi tekið þátt. Þá kváðust þeir hafa myndir af kæranda undir höndum sem staðfestu þátttöku hans auk þess sem óeinkennisklæddir rannsóknarlögreglumenn sem hafi verið viðstaddir mótmælin geti staðfest það. Eftir að hafa orðið fyrir andlegum þrýstingi hafi kærandi fallist á að fara með mönnunum til yfirheyrslu. Farið hafi verið með kæranda í lítið yfirheyrsluherbergi þar sem hann hafi verið beittur andlegu og líkamlegu ofbeldi. Þá hafi honum verið hótað þungri refsingu þar sem hann hafi áður hlotið refsidóm fyrir andóf gegn stjórnvöldum. Mennirnir hafi barið kæranda í hnakka og síðu sem hafi verið sársaukafullt en ekki skilið eftir sig sjáanlega áverka. Yfirheyrslan hafi ekki verið formleg og hafi ekkert verið skrifað niður en slíkt tíðkist í heimaríki kæranda. Kærandi hafi sagt mönnunum það sem þeir hafi viljað heyra eftir mikinn þrýsting og sagt þeim að hann hafi verið beðinn um að mæta á mótmælin. Loks hafi kæranda verið sleppt en skipað að yfirgefa ekki borgina og hafi honum verið tjáð að lögreglan hafi undir höndum allar upplýsingar um hann. Kærandi hafi í kjölfarið farið af heimili sínu og í felur hjá vini sínum. Kærandi hafi viljað leita á spítala en verið of hræddur við að lenda í frekari vandræðum af hálfu stjórnvalda. Kæranda hafi borist hótanir á lögheimili sitt og foreldrar hans hafi fengið hótanir símleiðis. Þá kvað hann lögreglumenn hafa komið heim til foreldra hans í nokkur skipti og spurt um kæranda eftir mótmælin. Kærandi kvaðst ekki geta sýnt fram á hótanirnar þar sem þær hafi borist símleiðis. Þá hafi kærandi tjáð opinberlega stjórnmálaskoðanir sínar á veraldarvefnum bæði fyrir og eftir mótmælin en aðgangi hans hafi jafnan verið lokað. Kærandi hafi nefnt nokkrar vefsíður þar sem hann hafi tjáð skoðanir sínar í viðtali hjá Útlendingastofnun.

Kærandi kveðst hafa hlotið dóm árið 2009 fyrir að fylgja ekki skipunum í hernum. Hann hafi hundsað herskyldu og verið sóttur og skikkaður til að ganga í herinn. Kærandi hafi nokkrum dögum síðar reynt að flýja úr hernum en hafi verið sóttur að nýju. Þessi atburðarrás hafi endurtekið sig í nokkra mánuði þar til hann hafi verið handtekinn og hnepptur í varðhald í u.þ.b. tvo mánuði á meðan hann hafi beðið dóms fyrir að hafa skorast undan herskyldu og farið gegn skipunum hersins. Þá greindi kærandi frá því að hann sé eftirlýstur vegna þátttöku sinnar í mótmælum og gagnrýni á stjórnvöld. Kærandi hafi ekki getað leitað aðstoðar stjórnvalda þar sem hann óttist þau og því þurft að fara úr landi. Kærandi greindi einnig frá andlegum þrýstingi af hálfu moldóvskra stjórnvalda. Kærandi hafi þurft að sækja um persónuskilríki í Moldóvu og því þurft að fara yfir landamærin frá Transnistríu. Óskað hafi verið eftir tilteknum gögnum þegar hann hafi sótt um skilríkin og hafi hann beðið um að haft yrði samband við hann þegar þau séu tilbúin. Kærandi hafi verið virkur í gagnrýni sinni á stjórnvöld á meðan hann hafi beðið eftir skilríkjunum og m.a. staðið að skipulagningu mótmæla. Kærandi hafi síðan haft samband við moldóvsk stjórnvöld þegar hann hafi ekkert heyrt og verið boðaður á fund hjá stofnuninni sem annist útgáfu skilríkjanna. Kærandi hafi mætt á fundinn og hafi þar verið viðstaddir tveir menn frá SIB, öryggissveit Moldóvu, sem hafi leitt hann til yfirheyrslu. Kærandi hafi verið spurður um fæðingarstað, atvinnu og félagsstöðu hans og foreldra hans. Einnig hafi hann verið spurður hvort hann væri virkur í stjórnmálum eða meðlimur stjórnmálaflokks. Enn fremur hafi kærandi verið spurður hvort hann vinni fyrir transnistrísk stjórnvöld og út í samband hans við þau. Þá hafi hann verið spurður út í þátttöku sína í mótmælum. Annar mannanna hafi ítrekað bankað í borðið á meðan yfirheyrslunni hafi staðið sem hafi ollið kæranda vanlíðan. Kæranda hafi verið sleppt en meinað að ræða yfirheyrsluna. Kærandi kvað stjórnvöld og lögreglustofnanir Moldóvu og Transnistríu starfa saman og miðla upplýsingum sín á milli. Til að mynda hafi fyrrverandi innanríkisráðherra Transnistríu flúið til Moldóvu frá lögregluyfirvöldum en verið handtekinn af moldóvskum yfirvöldum og framseldur til Transnistríu þar sem hann hafi verið fangelsaður. Kærandi kvaðst óttast yfirvöld í Moldóvu og Transnistríu, einkum lögreglustofnanir, þar sem hans sé einnig leitað í Moldóvu sé hans leitað í Transnistríu. Kærandi kveði að moldóvsk yfirvöld séu í samstarfi við transnistrísk stjórnvöld og deili upplýsingum sín á milli. Þá sé fólk beitt ofbeldi í varðhaldi og hætta á að fólk lifi ekki fram að réttarhöldum. Kærandi geti ekki búið annarsstaðar í heimaríki og verið öruggur. Kærandi kvaðst vilja búa í heimaríki sínu en það væri of hættulegt sökum stjórnmálaskoðana hans.

Í greinargerð kæranda er fjallað um stöðu mannréttindamála í Moldóvu, þ.m.t. sérstaklega um mannréttindabrot innan Transnistríu. Þar kemur m.a. fram að yfirvöld í Transnistríu takmarki tjáningarfrelsi íbúa svæðisins og beiti fanga ofbeldi. Kærandi vísar m.a. til alþjóðlegra skýrslna sem hann telur styðja við mál sitt.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi á hættu ofsóknir af völdum transnistrískra og moldóvskra stjórnvalda en hann sé eftirlýstur af yfirvöldum í Transnistríu vegna þátttöku í ólöglegri pólitískri samkomu. Þá hafi hann gert stjórnvöldum ljóst að hann vilji ekki gegna herskyldu fyrir rússneska herinn og hlotið refsidóm fyrir auk þess sem hann hafi ítrekað gagnrýnt stjórnvöld opinberlega. Þá séu moldóvsk og transnistrísk stjórnvöld í samstarfi og óttist kærandi því ofsóknir af hálfu þeirra aðila sem taldir séu upp í a-, b- og c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar m.a. til skýringa á hugtökunum ofsóknir og stjórnmálaskoðanir í handbók Flóttamannastofnunar um réttarstöðu flóttamanna. Endursending kæranda til Moldóvu sé brot gegn meginreglunni um non-refoulement, sbr. 42. gr. laga um útlendinga og að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamningsins. Í ljósi þess hvernig túlka beri ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana í 1. mgr. 37. gr. og 1. og 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af því sem fram komi í handbókinni, leiðbeiningarreglum Flóttamannastofnunar, frásögn kæranda og landaupplýsingum um Transnistríu og Moldóvu, sé ljóst að aðstæður kæranda falli þar undir. Að öllu þessu virtu beri að veita kæranda alþjóðlega vernd á Íslandi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Kærandi gerir í greinargerð sinni athugasemd við ákvörðun Útlendingastofnunar. Sérstaklega gerir kærandi athugasemd við þá staðhæfingu Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að moldóvsk stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda vernd hafi hann orðið fyrir áreiti í Transnistríu. Kærandi gerir framangreinda athugasemd sérstaklega í ljósi þeirra landaupplýsinga sem liggi fyrir um að yfirvöld í Moldóvu hafi flutt einstaklinga sem séu eftirlýstir í Transnistríu til yfirvalda á svæðinu þrátt fyrir að slíkt samstarf brjóti gegn stjórnarskrárvörðum réttindum þeirra. Það sé ljóst að kærandi eigi á hættu að vera fluttur í umsjá löggæsluyfirvalda í Transnistríu verði hann sendur til Moldóvu. Þá gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að ekki verði séð að kærandi sé á ljósmynd sem hann lagði fram og á að sýna kæranda taka þátt í mótmælum. Kærandi sé meðal mótmælenda þrátt fyrir að myndin sé ekki mjög skýr vegna fjölda fólks á henni. Þá mótmælir kærandi því að hann hafi ekki sýnt með óyggjandi hætti fram á að hann hafi hlotið skilorðsbundinn dóm fyrir að hafa ekki fylgt skipunum þegar hann sinnti herskyldu. Kærandi hafi lagt fram ljósrit sakavottorðs þar sem umrætt komi skýrt fram en hann hafi ekki getað aflað frumritsins frá Transnistríu. Kærandi gerir jafnframt alvarlega athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að hann hafi ekki sannað að hann sé eftirlýstur í heimaríki. Á framangreindu sakavottorði komi skýrt fram að hann sé eftirlýstur frá og með 22. janúar 2018 vegna þátttöku í pólitískum mótmælafundi. Kærandi heldur því fram að með því að láta hjá líða að þýða sakavottorð kæranda hafi Útlendingastofnun brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga. Þá sanni framangreint vottorð að hann hafi tjáð stjórnmálaskoðanir sínar þvert á það sem haldið sé fram í ákvörðun Útlendingastofnunar. Loks komi fram í hinni kærðu ákvörðun að framburður kæranda um hótanir og það ofbeldi sem hann hafi orðið fyrir sé óljós og ónákvæmur vegna skorts á sértækum upplýsingum. Kærandi mótmælir því mati Útlendingastofnunar um að framburður hans hafi verið óljós og ónákvæmur enda hafi hann lýst ofbeldinu með skýrum hætti sem og hótununum. Þá hafi kærandi greint frá því að hótanirnar hafi borist símleiðis. Kærandi viti ekki við hvað sé átt þegar Útlendingastofnun vísi til þess að sértækar upplýsingar skorti. Varðandi staðhæfingu Útlendingastofnunar um að kærandi hafi ítrekað greint frá því að hann hygðist leggja fram gögn sem hafi síðan ekki borist vísar kærandi til útskýringa sinna um að hótanirnar hafi borist símleiðis og enn fremur hafnar kærandi því að hann hafi reglulega lýst því yfir að hann hygðist leggja fram frekari gögn. Með vísan til framangreinds er því mati Útlendingastofnunar að framburður kæranda um ofsóknir stjórnvalda í sinn garð sökum stjórnmálaskoðana hafi verið ótrúverðugur alfarið mótmælt.

Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi óttist handtöku og fangelsun í Moldóvu, í Transnistríu sem og á öðrum svæðum Moldóvu, vegna stjórnmálaskoðana sinna. Þá sé aðbúnaður fanga slæmur í Moldóvu, þ.m.t. í Transnistríu, og hafi einstaklingar látist í varðhaldi síðustu ár vegna pyndinga og illrar meðferðar. Í ljósi framangreinds telur kærandi ljóst að hann eigi í raunverulegri hættu á að verða fyrir alvarlegum skaða verði honum gert að snúa aftur til Moldóvu. Þá sé ekki raunhæft að ætla að kærandi geti leitað verndar hjá stjórnvöldum. Þá áréttar kærandi að endursending hans til heimaríkis væri brot gegn ákvæðum laga um útlendinga, stjórnarskránni og alþjóðasáttmálum. Þá telji kærandi með vísan til málsatvika, gagna málsins og lögskýringargagna að hann uppfylli öll skilyrði viðbótarverndar þar sem hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Moldóvu.

Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis ef útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. vegna heilbrigðisástæðna, erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða félagslegra aðstæðna viðkomandi í heimaríki. Kærandi vísar til þeirra sjónarmiða sem fram komi í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga nr. 80/2016 um 74. gr. laganna. Þar komi m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú aðstaða að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd. Með hliðsjón af öllu því sem að framan sé rakið telji kærandi ljóst að hann uppfylli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

V.         Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað moldóvsku vegabréfi. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi sé moldóvskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Moldóvu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

·         Moldova 2017 human rights report (U.S. Department of state, 25. apríl 2018);

·         Nations in Transit – 2018 – Moldova (Freedom House, 11. apríl 2018);

·         Country Policy and Information Note. Moldova: Human Rights in Transnistria. (U.K. Home Office, 20. júní 2017);

·         Human Rights in Moldova (Civil Rights Defenders, 17. janúar 2017);

·         Freedom in the World 2018 – Moldova (Freedom House, 1. ágúst 2018);

·         World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Moldova (Minority Rights Group International, janúar 2018);

·         World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Moldova: Russians and Russian-speakers (Minority Rights Group International, janúar 2018);

·         Freedom in the World 2018 – Transnistria (Freedom House, 5. október 2018).

Moldóva er lýðræðisríki með þingbundinni stjórn með u.þ.b. 3,5 milljónir íbúa. Moldóva er aðili að ýmsum alþjóðlegum mannréttindasamningum m.a. samningi Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu ásamt flóttamannasamningnum. Moldóva er jafnframt aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að Transnistría sé sjálfstjórnarhérað innan landamæra Moldóvu. Á tíunda áratugnum hafi aðskilnaðarsinnar lýst því yfir að Transnistría sé lýðveldi innan Moldóvu á landamærum ríkisins og Úkraínu. Árið 1992 hafi ríkt átök á svæðinu og samið hafi verið um vopnahlé sem hafi leitt til þess að Moldóva, Rússland og Transnistría annist friðargæslu á svæðinu. Ríkisstjórn Moldóvu fari ekki með stjórn svæðisins heldur séu hliðstæð stjórnvöld Transnistríu við stjórnvölinn. Svæðið hafi haft de facto sjálfstæði frá árinu 1992 en sé á alþjóðavettvangi álitið hluti af Moldóvu.

Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2017 eru helstu vandamál tengd mannréttindum í Moldóvu, m.a. pyndingar og slæmar aðstæður í fangelsum ríkisins, handahófskenndar handtökur og varðhald, óréttlát málsmeðferð, spilling og takmarkað frelsi fjölmiðla og þá sérstaklega í Transnistríu. Þrátt fyrir að moldóvsk stjórnvöld rannsaki tilkynningar um misbeitingu valds af hálfu opinberra starfsmanna m.a. í öryggissveitum hafi þeim ekki tekist að saksækja og refsa starfsmönnum sem hafi verið sakaðir um mannréttindabrot, spillingu og önnur brot með fullnægjandi hætti. Þá hafi ríkið sótt opinbera starfsmenn til saka með valkvæðum hætti af pólitískum ástæðum. Rannsókn á hvarfi hárra fjárhæða úr seðlabanka ríkisins hafi leitt til handtöku og refsinga núverandi og fyrrum háttsettra embættismanna. Refsileysi sé mikið vandamál í ríkinu en innanríkisráðuneytið hafi náð einhverjum árangri í að berjast gegn misbeitingu og valds og spillingu. Dómstólar í Moldóvu hafi úrskurðað árið 1999 að það gangi gegn stjórnarskrá ríkisins að handsama íbúa Transnistríu sem séu eftirlýstir af stjórnvöldum á svæðinu og flytja þá til Transnistríu en sú framkvæmd sé þó enn við lýði að einhverju leyti þó óljóst sé um umfang hennar.

Í skýrslu alþjóðasamtaka um minnihlutahópa (Minority Rights Group International) kemur fram að u.þ.b. 22 % þjóðarinnar tilheyri minnihlutahópum, þar af séu 7 % Rúmenar, 6,6 % Úkraínumenn, 4, 1 % af Gagauz uppruna, 4,1 % Rússar, 1,9 % Búlgarar, 0,5 % rómafólk og 0,3 % tilheyri öðrum hópum. Þá sé rússneska aðaltungumál 14,6 % íbúa Moldóvu en mismunandi tungumál hafi valdið aðgreiningu hópa í ríkinu. Þá séu algengustu tungumálin moldóvska og rússneska. Einstaklingar í framangreindum tungumálahópum tilheyri sitthvoru samfélaginu og séu sérstakir fjölmiðlar og menntakerfi fyrir hvorn tungumálahóp um sig. Þá fari tungumálakennsla fyrir minnihlutahópa einungis fram í skólum þar sem rússneska sé aðaltungumálið. Afleiðing þessarar skiptingu menntakerfisins sé sú að einstaklingar sem tilheyri þjóðernisminnihluta læri opinbera tungumál ríkisins sem þriðja mál og tali málið því oft ekki reiprennandi. Þá sé menntun á rússnesku í boði í Moldóvu allt frá leikskólastigi til menntaskólastigs og séu fleiri nemendur í rússneskum skólum heldur en tilheyri rússneska þjóðernisminnihlutanum. Í kjölfar átakanna árið 1992 sem hafi orðið til þess að Transnistría var stofnuð hafi ríkisstjórn Moldóvu reynt að tryggja velferð minnihlutahópa, m.a. með því að veita minnihlutahópum menningarlegt sjálfstæði samkvæmt lögum. Þá hafi ríkið sett lög til þess að tryggja réttindi minnihlutahópa og árið 2012 hafi Moldóva tekið mikilvæg skref í baráttunni gegn mismunun á grundvelli þjóðernis með innleiðingu laga um bann við mismunun og setningu aðgerðaráætlunar um mannréttindi þjóðernishópa. Samkvæmt skýrslu Freedom House frá 2018 sé minnihlutahópum ekki mismunað í moldóvskri löggjöf en sumir hópanna eigi þó fáa fulltrúa í stjórnmálum. Þá kemur fram í sömu skýrslu að einstaklingar í Moldóvu geti almennt tjáð stjórnmálaskoðanir sínar eða skoðanir á öðrum viðkvæmum málefnum án þess að eiga á hættu eftirlit eða neikvæð viðbrögð af hálfu stjórnvalda.

Að því er varðar aðstæður innan sjálfstjórnarsvæðisins Transnistríu kemur fram í skýrslu Freedom House frá 2018 að meirihluti íbúa svæðisins sé af rússneskum og úkraínskum uppruna en Moldóvar séu í minnihluta. Ríkisstjórn og efnahagslíf svæðisins sé háð niðurgreiðslum frá Rússlandi en ríkið haldi úti her og friðargæslu á svæðinu. Þá hafi moldóvsk yfirvöld ítrekað farið fram á að Rússland fjarlægi hersveitir sínar af svæðinu. Opinber tungumál svæðisins séu rússneska, úkraínska og moldóvska en rússneska sé það tungumál sem notað sé af stjórnvöldum. Yfirvöld í Transnistríu leyfi ekki atkvæðagreiðslur í moldóvskum kosningum á svæðinu en hins vegar hafi íbúar með rússneskan ríkisborgararétt haft aðgang að rúmlega tuttugu kjörstöðum í forsetakosningum í Rússlandi árið 2012. Rúmlega 95% íbúa svæðisins tilheyri rétttrúnaðarkirkjunni og hafi stjórnvöld meinað öðrum trúfélögum um skrásetningu. Árið 2016 hafi verið sett lög sem banni heimildarlausa dreifingu trúarrita, prédikanir á opinberum svæðum og skipulagðar trúarsamkomur í heimahúsum. Samkvæmt framangreindri skýrslu ræði íbúar svæðisins stjórnmálaskoðanir sín á milli en veigri sér við að ræða slíkt á opinberum stöðum af ótta við að fylgst sé með þeim eða þeir muni gjalda fyrir að tjá andstöðu sína á stjórnvöldum. Ekki séu til áreiðanlegar heimildir um stjórn fangelsa í Transnistríu en stjórnvöld hafi gefið út að um 3000 manns afpláni í fangelsum ríkisins. Þá hafi slæm meðferð lögreglu á föngum verið vandamál og aðbúnaður í fangelsum slæmur. Samkvæmt umboðsmanni Transnistríu hafi kvörtunum fanga fækkað árið 2016 frá árinu á undan en ekki séu tölfræðilegar skýrslur til staðar. Þá kemur fram í ofangreindri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar að áreiðanlegar heimildir hermi að stjórnvöld á svæðinu veiti íbúum þess ekki réttláta málsmeðferð.

Í skýrslu Freedom House kemur fram að stjórnvöld í Transnistríu takmarki fundafrelsi íbúanna með því að synja um leyfi fyrir fundum og mótmælum. Samkvæmt heimildum hafi einungis tvenn mótmæli verið leyfð á síðustu fimm árum. Þeir sem taki þátt í óheimilum mótmælum séu dæmdir til sektargreiðslna. Þá verði hópar sem mótmæli án leyfis fyrir áreiti öryggissveita landsins. Þá sé lagt blátt bann við starfsemi samtaka sem aðhyllist sameiningu Transnistríu við Moldóvu. Flestir íbúar svæðisins séu með moldóvskan ríkisborgararétt og séu því frjálsir ferða sinna innan Evrópusambandsríkja. Þá sé meirihlutinn einnig með úkraínsk eða rússnesk vegabréf og sæki margir æðri menntun til þeirra ríkja. Spenna ríki í samskiptum moldóvskra og transnistrískra stjórnvalda en einhver árangur hafi náðst með undirritun samnings um viðurkenningu prófskírteina útgefnum í Transnistríu. Þá hafi brú verið opnuð í nóvember 2017 á milli Transnistríu og Moldóvu sem auðveldi flæði fólks og varnings. Önnur tilraun til samningaviðræðna milli Moldóvu og Transnistríu hafi verið gerð í nóvember síðastliðnum í Vínarborg en umleitanir Igor Dodon, forseta Moldóvu, hafi aðeins skilað sér í aukinni spennu milli svæðanna. Þá kemur fram í skýrslu frjálsu félagasamtakanna Civil Rights Defenders að ákvæði hafi verið bætt við hegningarlög Transnistríu þann 27. júní 2016 sem kveði á um að athafnir eða orðræða sem sýni rússneska hernum á svæðinu óvirðingu séu refsiverðar. Slíkt brot geti varðað allt frá háum fjársektum til þriggja ára fangelsis.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2018 kemur fram að löggæslustofnanir í Moldóvu geti ekki aðstoðað íbúa Transnistríu innan svæðisins og því geti einstaklingar sem stafi hætta af transnistrískum stjórnvöldum ekki fengið vernd innan svæðisins. Þá séu einstaklingar sem óttist einstaklinga ótengda ríkinu einnig ólíklegir til að fá vernd transnistrískra stjórnvalda en vernd standi þeim almennt til boða af hálfu stjórnvalda annarsstaðar í Moldóvu. Þá sé flutningur innan Moldóvu almennt í boði fyrir íbúa Transnistríu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir ástæðu flótta síns á því að hann eigi hættu á ofsóknum af hálfu yfirvalda í Transnistríu og Moldóvu vegna stjórnmálaskoðana sinna. Kærandi kveðst vera eftirlýstur af transnistrískum stjórnvöldum vegna þátttöku í mótmælum í heimaríki. Hann hafi verið tekinn höndum í kjölfar mótmælanna þar sem hann hafi orðið fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi. Hann hafi áður hlotið refsidóm í heimaríki þar sem hann hafi ekki hlýtt skipunum í hernum sem leiði til þess að hann eigi á hættu að fá þungan dóm. Þá hafi kærandi gagnrýnt stjórnvöld á spjallborðum á internetinu og í kjölfarið fengið hótanir frá ótilgreindum einstaklingum.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á viðtali við kæranda hjá kærunefnd, endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Kærandi kom til viðtals hjá kærunefnd þann 21. febrúar 2019 þar sem hann var spurður frekar út í frásögn af ástæðum flótta frá heimaríki. Kærandi afþakkaði aðstoð talsmanns í viðtalinu. Þar gerði kærunefnd kæranda grein fyrir því að hann eigi rétt á aðstoð lögfræðings. Kærandi kvaðst meðvitaður um það en kysi að sjá sjálfur um mál sitt.

Kærandi lagði fram við meðferð málsins afrit af skjali á rafrænu formi sem hann kveður vera sakavottorð þar sem fram komi að kærandi hafi hlotið skilorðsbundinn dóm árið 2009 en hafi fengið uppgjöf sakar árið 2010. Enn fremur komi fram í umræddu skjali að kærandi sé eftirlýstur af transnistrískum stjórnvöldum frá 22. janúar 2018. Kærandi kvað skjalið vera skannað afrit af frumriti skjalsins. Móðir kæranda hafi fengið það í heimaríki hjá stofnun sem hann teldi vera annað hvort útlendingastofnun ríkisins eða stofnun sem annist fullnustu refsinga. Hún hafi skannað skjalið og fengið ættingja til að senda það með tölvubréfi til kæranda. Aðspurður kvaðst kærandi ekki þekkja deili á umræddum ættingja. Þá kvað kærandi að móðir hans hafi sent frumrit í bréfpósti sem hafi horfið á leiðinni hingað til lands og biði hann nú eftir öðru frumriti. Það er mat kærunefndar að umrætt skjal sé afar ótrúverðugt og að öllum líkindum falsað. Efsti og neðsti hluti skjalsins er með öðru sniði en meginmál skjalsins. Þeir hlutar eru skannaðir og afritaðir inn í meginmál skjalsins sem að öðru leyti er unnið í ritvinnsluforriti en ekki skannað. Kærandi gat ekki útskýrt tilurð skjalsins á trúverðugan hátt í viðtali hjá kærunefnd. Kærunefnd gaf kæranda færi á að leggja fram frumrit skjalsins. Um viku síðar lagði kærandi fram skjal sem hann kvað vera frumrit sakavottorðsins. Kærunefnd fór yfir gagnið með kæranda en það barst í umslagi með póststimpli frá Tiraspol, borg í Transnistríu. Skjalið var haldið svipuðum annmörkum og fyrra skjalið sem kærandi lagði fram auk þess sem ljóst var að stimpill og undirskrift yfirvalda var prentuð eða ljósrituð á skjalið. Um var að ræða nákvæmlega sömu undirskrift og fyrra skjalið að undanskildu því að litur undirskriftarinnar hafði breyst úr bláum í svartan. Kærunefnd benti kæranda á að skjalið væri ekki frumrit en kærandi gat engar frekari skýringar gefið. Það er því mat kærunefndar að framlagt skjal sé með öllu ótrúverðugt og verður það því ekki lagt til grundvallar í málinu.

Varðandi ástæður flótta síns kvaðst kærandi hafa tekið þátt í mótmælum í heimaríki árið 2017 og lagði kærandi fram ljósmynd af mótmælunum máli sínu til stuðnings. Kærunefnd bað kæranda um að benda á sig á myndinni sem kærandi gerði en ómögulegt er af umræddri mynd að bera kennsl á kæranda. Myndin sem slík leggur því ekki frekari grunn að staðhæfingum kæranda um þátttöku í mótmælum. Þá kvaðst kærandi hafa tjáð skoðanir sínar á veraldarvefnum en ekki hugnast að taka skjáskot og búið væri að eyða athugasemdum hans því gæti hann ekki sýnt fram á framangreint.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til að útiloka að kærandi hafi gagnrýnt stjórnvöld og að hann kunni að hafa orðið fyrir áreiti af hálfu yfirvalda í Transnistríu eða ótilgreindra einstaklinga. Aftur á móti telur kærunefnd, í ljósi trúverðugleikamats, ekki unnt að byggja á því að kærandi hafi orðið fyrir afskiptum yfirvalda vegna stjórnmálaþátttöku eða eigi það á hættu. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um heimaríki kæranda og af framburði kæranda, að teknu tilliti til trúverðugleika framburðar hans og þeirra gagna sem hann hefur lagt fram, er það hins vegar mat kærunefndar að kærandi hafi ekki leitt að því líkur að hafa orðið fyrir eða eigi á hættu áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga í heimaríki sínu.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi hefur greint frá erfiðum aðstæðum í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana sinna. Þá telji kærandi víst að moldóvsk yfirvöld handtaki hann við komuna til landsins og framselji hann til Transnistríu. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki telur kærunefnd að aðstæður kæranda sé ekki þess eðlis eða af því alvarleikastigi að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis samkvæmt 1. mgr. 74. laga um útlendinga.

Af gögnum málsins verður ekki séð annað en að kærandi sé heilsuhraustur. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Kærandi gerir athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans, einkum mat Útlendingastofnunar á möguleikum kæranda á vernd moldóvskra yfirvalda og mati á trúverðugleika frásagnar hans. Þá gerir kærandi athugasemd við að framlagt sakavottorð hafi ekki verið þýtt af stofnuninni. Má af greinargerð ráða að kærandi telji að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Það er mat kærunefndar að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um ástandið í heimaríki kæranda, við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Varðandi athugasemdir kæranda um þýðingu framlagðra gagna fékk kærunefnd það staðfest hjá Útlendingastofnun með tölvubréfi dags. 28. febrúar 2019 að skjalið hefði verið þýtt af túlki við meðferð máls kæranda hjá stofnuninni. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 29. janúar 2018 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu og kemur frá öruggu upprunaríki. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 7 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 


Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 7 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 7 days to leave the country voluntarily.

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Anna Tryggvadóttir                                                                        Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum