Hoppa yfir valmynd
5. desember 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 574/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 5. desember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

                                                                                                                                                                                                                      úrskurður nr. 574/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19090038

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.    Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 17. september 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. september 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.    Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 24. júní 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 23. júní 2019, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 9. júlí 2019 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum yfirvöldum, dags. 15. júlí 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 2. september 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 3. september 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 17. september 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 26. september 2019 ásamt fylgigögnum.

III.    Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að sænsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Svíþjóðar.

IV.     Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sinni vísar kærandi til viðtala sinna hjá Útlendingastofnun en þar hafi hann m.a. rakið sögu sína um flótta frá heimaríki. Kærandi hafi þurft að þola ofbeldi í heimaríki og á flótta, hann hafi m.a. verið frelsissviptur í Líbíu þegar hann hafi verið 14 ára gamall og beittur miklu harðræði á meðan hann hafi verið í haldi. Kærandi sé þá með hnéverki og glími við þunglyndi. Kærandi mótmæli því að vera sendur aftur til Svíþjóðar, þar hafi hann fengið synjun á umsókn sína um alþjóðlega vernd. Kærandi hafi óskað eftir því að hitta sálfræðing hér á landi en sá tími hafi enn ekki farið fram.

Í greinargerð kæranda eru gerðar nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun. Í fyrsta lagi er gerð athugasemd við að Útlendingastofnun leggi þá kröfu á kæranda að færa sönnur á að hann hafi verið í varðhaldi í Líbíu og orðið þar fyrir pyndingum og ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð. Samkvæmt handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna sé það hins vegar sameiginleg skylda umsækjanda um alþjóðlega vernd og viðkomandi stjórnvalds að komast að raun um staðreyndir málsins og meta þær. Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við það að Útlendingastofnun hafi ekki metið kæranda í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi vísar kærandi til sögu sinnar, um flótta frá heimaríki og atburði sem hann hafi upplifað á flótta sínum. Í ákvörðun stofnunarinnar sé ekkert fjallað um þá illu meðferð og ofbeldi sem hann hafi orðið fyrir. Þá vísi kærandi jafnframt til skimunarprófs sem lagt hafi verið fyrir hann en niðurstaða þess gefi til kynna að kærandi glími við töluverða andlega vanlíðan. Kærandi telji því að Útlendingastofnun hafi ekki framkvæmt mat á viðkvæmri stöðu hans þar sem ekki sé byggt á framburði hans eða gögnum málsins, heldur einungis á því að ekki hafi legið fyrir gögn frá heilbrigðisyfirvöldum sem sýni fram á andleg veikindi. Vísi kærandi til rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, auk 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, í þessu sambandi. Þá geri kærandi kröfu um að hann verði látinn undirgangast sálfræðimat með vísan til 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í þriðja lagi hafnar kærandi staðhæfingum Útlendingastofnunar um að úrskurðir kærunefndar nr. 553/2017 og nr. 582/2017, sem kærandi hafi vísað til í greinargerð sinni til stofnunarinnar, séu ekki sambærilegir máli kæranda. Í öllum tilvikum sé um að ræða einstaklinga sem hafi komið til Evrópu sem fylgdarlaus ungmenni. Kærandi taki einnig m.a. fram að hann telji aðstæður sínar vera verri, ef eitthvað er, en aðstæður kæranda í síðastnefnda úrskurðinum. Loks gerir kærandi athugasemd við beitingu Útlendingastofnunar á ákvæðum reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, í málinu en áður hafi verið gerðar athugasemdir við lagastoð reglugerðarinnar. Telji kærandi jafnframt að rökstuðningi stofnunarinnar hafi verið áfátt hvað varði mat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og óljóst sé hvort heildarmat á aðstæðum hans hafi farið fram. Vísað sé með almennum hætti til þess og fullyrt að málsmeðferð sænskra stjórnvalda sé í samræmi við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Svíþjóð hafi gengist undir. Slíkt standist ekki í ljósi þeirra heimilda um stöðu hæliskerfisins í Svíþjóð sem kærandi hafi vísað til í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar. Þá telji kærandi að aðstæður sínar séu það einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, auk þess sem hann muni eiga erfitt uppdráttar ef honum verði gert að snúa aftur til Svíþjóðar.

Varðandi aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð vísar kærandi til umfjöllunar um það í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar. Þar hafi m.a. verið fjallað um aðgengi viðkvæmra einstaklinga að sálfræðiþjónustu, auk þess sem greint sé frá því að þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem hafa fengið synjun á umsókn sinni séu hnepptir í varðhald í Svíþjóð við endursendingu þangað.

Krafa kæranda um að taka skuli mál hans til efnislegar meðferðar hér á landi er reist annars vegar á því að sérstakar ástæður standi til þess, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í því sambandi m.a. til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og úrskurðaframkvæmdar kærunefndar útlendingamála. Kærandi veki athygli á orðalagi 32. gr. a reglugerðar um útlendinga þar sem nefnd eru í dæmaskyni viðmið sem taka skuli tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Þessi viðmið séu ekki tæmandi talin og geti því ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda um alþjóðlega vernd. Kærandi telji að slíkt heildarmat á aðstæðum kæranda hafi ekki farið fram, enda sé hvergi í ákvörðun Útlendingastofnunar vikið að ungum aldri hans og því að hann hafi verið á flótta frá því hann var barn, né heldur sé nokkur umfjöllun um þær pyndingar og ómannúðlegu meðferð sem hann hafi orðið fyrir. Kærandi telji engum vafa undirorpið að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kröfu sinni til stuðnings vísar kærandi jafnframt til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 582/2017 frá 24. október 2017, nr. 553/2017 frá 10. október 2017 og nr. 241/2016 frá 28. júní 2016. Kærandi telji að aðstæður sínar séu að mörgu leyti svipaðar aðstæðum í framangreindum úrskurðum, og af úrskurðunum megi ráða að skoða beri einstaklingsbundnar aðstæður rækilega áður en tekin sé ákvörðun um endursendingu til Norðurlandanna.

Krafa kæranda er hins vegar reist á því að kærandi njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, en lagaákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu flóttamannaréttar um bann við brottvísun eða endursendingu einstaklinga til ríkja þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu. Í þessu sambandi vísar kærandi m.a. til aðstæðna í heimaríki sínu. Kærandi telji að endursending hans til Svíþjóðar myndi teljast brot gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Kærandi áréttar að hann hafi fengið lokasynjun í Svíþjóð og standi frammi fyrir flutningi til heimaríkis verði hann endursendur til Svíþjóðar.

V.            Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja sænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] ára gamall karlmaður sem kom einn hingað til lands. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi glíma við afleiðingar ofbeldis í heimaríki og fangelsisvistar í Líbíu, auk þess sem hann glími stundum við hnéverk. Þá kvaðst kærandi hafa fundið fyrir þunglyndi. Kærandi hafi jafnframt óskað eftir því að hitta sálfræðing. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, sem kærandi hefur lagt fram, kemur fram að hann sé almennt hraustur einstaklingur. Þá liggur fyrir í gögnum máls skimunarpróf, sem kærandi fyllti út þann 1. júlí 2019, um andlega líðan hans. Kærunefnd leiðbeindi kæranda um framlagningu frekari heilsufarsgagna þann 21. nóvember sl. Í tölvupósti frá talsmanni kæranda, dags. 22. nóvember sl., kom fram að engin ný heilsufarsgögn lægju fyrir í málinu.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. viðtöl kæranda hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn, beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3 gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit við meðferð málsins.

Aðstæður í Svíþjóð

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

 

  •        Amnesty International Report 2017/18 – Sweden (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report on the situation of Asylum in the European Union 2018 (European Asylum Support Office, 24. júní 2019);
  • Asylum Information Database. National Country Report – Sweden (European Council on Refugees and Exiles, 25. apríl 2019);
  • European Commission against Racism and Intolerance (ECRI) – ECRI report on Sweden (fifth monitoring cycle, 27. febrúar 2018);
  • Freedom in the World 2019 – Sweden (Freedom House, 2019);Good Advice for Asylum seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, janúar 2018);
  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016);
  • Sweden 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019) og
  •        Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).

Í framangreindum gögnum kemur fram að sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Synji sænska útlendingastofnunin að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra þá ákvörðun og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Svíþjóð er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og í gagnagrunni Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga, Asylum Information Database, að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð sé tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Sveitarfélagið sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst í hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Eigi umsækjandi við andlega vanlíðan að stríða á hann rétt á því að óska eftir viðeigandi þjónustu frá heilsugæslunni sem staðsett er í sveitarfélaginu sem hann dvelst í. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda að kostnaðarlausu. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Þá eiga umsækjendur rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, sem hefur fengið neikvæða niðurstöðu í máli sínu, hefur aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. brýnni geðheilbrigðisþjónustu, fram að brottför en nýtur hins vegar ekki fjárhagsstuðnings til að greiða fyrir slíka þjónustu eða lyf. Þá missi hann rétt sinn til húsnæðis og framfærslu en sænska útlendingastofnunin heldur úti viðkomumiðstöðvum (e. transit centers) fyrir þá sem hafa samþykkt sjálfviljuga heimför (e. voluntary departure).Í skýrslu ECRI frá árinu 2018 kemur fram að þónokkur dæmi séu um að innflytjendur og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Svíþjóð verði fyrir fordómum, hótunum, ofbeldi og mismunum þar í landi. Aukning hafi orðið á hatursorðræðu og hatursglæpum og þá séu dæmi um að ráðist hafi verið á móttökumiðstöðvar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt sænsku hegningarlögunum eru slík brot refsiverð og hafa sænsk stjórnvöld gripið til ýmissa aðgerða til að stemma stigu við þessari þróun, m.a. með samstarfi við hagsmunaaðila um fræðslu og vitundarvakningu auk þess sem sérstökum rannsakendum og ákærendum í þessum málaflokkum hefur verið fjölgað á undanförnum árum.

Samkvæmt framangreindri skýrslu gagnagrunns Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð almennt teknar af sænsku útlendingastofnuninni, stjórnsýsludómstólum eða af lögreglunni. Í 10. kafla sænsku útlendingalaganna eru talin upp skilyrði þess að setja megi einstaklinga í varðhald, þ.m.t. þá sem hafa verið umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Slíkt er þó ekki gert nema á grundvelli almannaöryggis eða að hætta sé talin á að umsækjandi muni reyna að koma sér undan brottvísun.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en þeir geta átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við framangreinda málsmeðferð. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka, t.d. ráðgjafarmiðstöðvar (s. Rådgivningsbyrån) sem veitir lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá sænskum yfirvöldum. Sænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafli sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð sænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans og frelsi er í hættu. Kærunefnd telur gögn málsins bera það með sér að í Svíþjóð sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þess eða frelsi sé ógnað. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem benda til þess að meðferð á umsókn hans í Svíþjóð hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framansögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst en ljóst er að kærandi er ungur að árum og hefur lýst andlegri vanlíðan og að hafa verið þolandi ofbeldis. Að mati kærunefndar eru aðstæður kæranda ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Það er mat kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð verður ráðið að umsækjendur sem hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu, en fá þó ekki fjárhagsstuðning ríkisins til þess að greiða fyrir slíka þjónustu. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi komi því til með að hafa aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi, en hann mun e.t.v. þurfa að greiða fyrir slíka þjónustu sjálfur.Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda að öðru leyti séu ekki þess eðlis að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu.Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurða kærunefndar nr. 553/2017 frá 10. október 2017 og nr. 582/2017 frá 24. október 2017 telur kærunefnd ekki hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum málum. Þótt um sé að ræða sama viðtökuríki telur kærunefnd að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda í þessu máli séu ólíkar aðstæðum kærenda í framangreindum úrskurðum. Þá telur kærunefnd ekki heldur hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kæranda í úrskurði nr. 241/2016 frá 28. júní 2016 þar sem ekki er um að ræða sama viðtökuríki auk þess sem einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu einnig ólíkar.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 17. júlí 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 24. júní 2019.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, og við mat á viðkvæmri stöðu hans.Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þá athugasemd kæranda.

Kærunefnd gerir athugasemd við málsmeðferð stofnunarinnar í tengslum við umfjöllum um einstaklingsbundnar aðstæður kæranda. Af gögnum máls sem bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun má ráða að læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 2. ágúst 2019, þess efnis að læknisskoðun hefði farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga, hafi legið fyrir hjá stofnuninni þegar ákvörðun var tekin í málinu hjá Útlendingastofnun. Þá hafi skimunarlisti vegna andlegrar heilsu sem lagður hafi verið fyrir kæranda þann 1. júlí sl. legið fyrir hjá stofnuninni, auk þess sem vísað var til niðurstöðu þeirrar skimunar í greinargerð kæranda til stofnunarinnar. Hins vegar er ekki að sjá af rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar að þau gögn hafi legið til grundvallar niðurstöðunni, enda hvergi minnst á þau í hinni kærðu ákvörðun. Kærunefnd gerir athugasemd við þá málsmeðferð stofnunarinnar. Umrædd gögn, auk frekari gagna sem kærandi hefur lagt fram hjá kærunefnd varðandi heilsufar hans, lágu til grundvallar niðurstöðu kærunefndar í málinu, sem hefur komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Því er ljóst að umræddur vankantur á rökstuðningi stofnunarinnar hafi ekki haft áhrif á niðurstöðu málsins og hefur kærunefnd bætt úr þessu atriði á kærustigi.Af gögnum málsins verður ráðið að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna í máli sínu í viðtali hjá Útlendingastofnun. Jafnframt var kæranda leiðbeint með hvert hann ætti að leita varðandi beiðni um tíma hjá sálfræðingi. Þá hefur kæranda gefist kostur á að koma á framfæri gögnum um heilsufar við meðferð málsins hjá kærunefnd og fylgdu komunótur frá Göngudeild sóttvarna dags. 29. til 31. júlí 2019 með greinargerð kæranda til kærunefndar. Kærunefnd leiðbeindi kæranda um framlagningu frekari heilsufarsgagna þann 21. nóvember sl. Í tölvupósti frá talsmanni kæranda, dags. 22. nóvember sl., kom fram að engin ný heilsufarsgögn lægju fyrir í málinu. Kærunefnd telur að kærandi hafi fengið fullnægjandi leiðbeiningar um framlagningu gagna er varða heilsufar hans, sbr. 7. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, og því sé ekki ástæða til þess að gera frekari athugasemd við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun.Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemd við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 23. júní 2019. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 24. júní 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Svíþjóðar innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

 


 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

                                                                                                                                                                                        The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                       Þorbjörg Inga Jónsdóttir

                                                                                               

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum