Hoppa yfir valmynd
7. október 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 466/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 7. október 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 466/2021

í stjórnsýslumálum nr. KNU21060020

 

Kæra [...],

og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 10. júní 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Íran (hér eftir kærandi) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 26. maí 2021 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barna hennar, [...], ríkisborgara Íran (hér eftir A) og [...], ríkisborgara Íran (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir kæranda og barna hennar til efnismeðferðar hér á landi. Krafa kæranda byggir aðallega á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en til vara á 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga.

Kærandi krefst þess til þrautavara að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að málunum verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun vegna brota á rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 23. mars 2021 ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 24. mars 2021, kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 27. júní 2018. Kærandi lagði fram hjá Útlendingastofnun grísk dvalarleyfisskírteini fyrir sig og börn sín með gildistíma til 27. ágúst 2021 og ferðaskilríki útgefin af grískum yfirvöldum með gildistíma til 10. september 2025 og f.h. barna sinna með gildistíma 10. september 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 7. apríl 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 26. maí 2021 að taka ekki umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda þann 27. maí 2021 og kærði hún ákvarðanirnar þann 10. júní 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 24. júní 2021, ásamt fylgigögnum. Viðbótarupplýsingar og gögn bárust í máli kæranda dagana 29. júní, 15. júlí, 16. ágúst, 2. og 8. september 2021.

Með tölvubréfi, dags. 29. júní 2021, óskaði talsmaður eftir því hjá kærunefnd að mál kæranda og barna hennar yrðu aðskilin máli eiginmanns hennar vegna nýrra upplýsinga. Var jafnframt upplýst um að nýr talsmaður hafi tekið við máli eiginmanns kæranda.

III.      Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu hún flutt til Grikklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A og B kemur fram að það sé niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Grikklands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð rekur kærandi málavexti í umfjöllun sinni um einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar og í tengslum við athugasemdir kæranda við hinar kærðu ákvarðanir og málsástæður. Að öðru leyti vísar kærandi til viðtals hjá Útlendingastofnun og greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar.

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við aðgengi hennar og barnanna að heilbrigðisþjónustu, félagslegri aðstoð, atvinnu og menntun fyrir börnin í Grikklandi. Kærandi vísar til þess að flóttafólk verði fyrir alvarlegum fordómum í Grikklandi og að mati kæranda séu fyrir hendi sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga vegna aðgerðaleysis grískra yfirvalda. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til alþjóðlegra skýrslna. Kærandi vísar til frásagnar sinnar í viðtali hjá Útlendingastofnun og fyrirliggjandi gagna um heilsufar hennar, þar sem fram kemur m.a. að kærandi hafi sótt tíma hjá sálfræðingi vegna andlegrar heilsu. Þá hafi kærandi greint frá því að heilsufar sona hennar sé ekki gott. Þeir hafi báðir fæðst fyrir tímann, eigi við tannvandamál að stríða og andlegan vanda. Þá hafi B lent í atviki í Grikklandi og glími hann við hræðslu eftir það. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi brotið gegn 10. gr. rannsóknarreglu stjórnsýslulaga með því að hafa komist að niðurstöðu á grundvelli ófullnægjandi gagna. Kærandi vísar til þess að henni sé sérstaklega mikilvægt að hafa fullnægjandi aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu í Grikklandi í ljósi fyrirliggjandi heilsufarsgagna.

Kærandi vísar til þess að í Grikklandi hafi börnin ekki fengið leikskólapláss. Sonur kæranda hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu fjölskyldu sem hafi deilt með þeim húsnæði. Auk þess hafi syni kæranda verið rænt og hann fundist [...]. Þá hafi kæranda og sonum hennar verið ógnað með hníf. Kærandi byggir á því að verði hún endursend ásamt börnum sínum til Grikklands verði staða þeirra verulega síðri en staða almennings í Grikklandi. Kærandi vísar til stöðu fjölskyldunnar sökum andlegrar heilsu, einkum kæranda. Íslenskum stjórnvöldum sé skylt að hafa það sem sé barni fyrir bestu í forgangi þegar teknar séu ákvarðanir um málefni þess. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. KNU19110022 og KNU19110023 frá 25. mars 2020 þar sem kærunefnd hafi gert Útlendingastofnun að taka umsókn til efnismeðferðar með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda hafi ekkert breyst til batnaðar í Grikklandi sem hrundið gæti fordæmisgefandi gildi fyrrgreinds úrskurðar og andmælir hún mati Útlendingastofnunar um að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar hafi skerst vegna Covid-19 faraldursins.

Kærandi gerir athugasemdir við úrskurð kærunefndar í máli nr. KNU21030053 og KNU21030054 frá 16. júní 2021 sem feli að mati kæranda í sér fátæklega umfjöllun um aðstæður flóttabarna í Grikklandi. Þá færir kærandi rök fyrir því að staða kæranda sé enn verri en staða kærenda í fyrrgreindu máli. Kærandi vísar til þess að staða fjölskyldunnar sé afar viðkvæm og telur að aðstæður hennar séu sambærilegar og aðstæður kærenda í úrskurði kærunefndar nr. KNU19110050 og KNU19110051 frá 25. mars 2020 og vísar til fyrirliggjandi gagna máli sínu til stuðnings. Kærandi fjallar um áhrif Covid-19 faraldursins á réttindi og aðstæður flóttafólks í Grikklandi og er ósammála mati í úrskurði kærunefndar nr. KNU20110005 frá 10. desember hvað varðar áhrif Covid-19 faraldursins á aðstæður flóttafólks í Grikklandi en að mati kæranda sé enn óvissa fyrir hendi hvað þau varðar.

Kærandi byggir á því að hún og börn hennar muni eiga afar erfitt uppdráttar í Grikklandi vegna alvarlegrar mismununar á grundvelli kynþáttar síns, stöðu sinnar og heilsufars og að þau geti vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en almennings í viðtökuríki, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í ljósi alls framangreinds sé það mat kæranda að í máli hennar séu fyrir hendi sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og því beri að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar.

Kærandi telur að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Endursending kæranda og barna hennar til Grikklands teljist því vera brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement) auk samsvarandi ákvæða íslenskra laga og alþjóðlegra skuldbindinga. Kærandi byggir á því til vara að íslenskum stjórnvöldum beri skylda að taka til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barna hennar með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga.

Þrautavarakrafa kæranda er byggð á því að Útlendingastofnun hafi gerst brotleg við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga þar sem óforsvaranlegt hafi verið að taka ákvörðun í máli kæranda og barna hennar á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Kærandi vísar til þess að stofnunin hafi verið upplýst um að ekki hafi legið fyrir nægilega ítarlegar upplýsingar um heilsufar kæranda og barna hennar. Kærandi vísar til fyrrgreinds úrskurðar í máli nr. KNU19110050 og KNU19110051 máli sínu til stuðnings.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barna kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna þ. á m. viðtöl við kæranda hjá Útlendingastofnun og upplýsingar frá talsmanni kæranda og barnavernd Hafnarfjarðarbæjar. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A og B sé best borgið með því að tryggja rétt þeirra til að vera með móður sinni og að réttarstaða A og B verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A og B eru í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála móður og barnanna í einum úrskurði.

Með tölvubréfi, dags. 29. júní 2021, óskaði talsmaður eftir því hjá kærunefnd að mál kæranda og barna hennar yrðu aðskilin máli eiginmanns hennar vegna nýrra upplýsinga. Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd því rétt að taka afstöðu til mála fjölskyldunnar í tveimur úrskurðum. Með þessum úrskurði er tekin afstaða til mála kæranda og barnanna A og B. Í öðrum úrskurði er tekin afstaða til máls eiginmanns kæranda, föður barnanna A og B, þar sem nefndin gætti einnig að sjónarmiðum varðandi meginregluna um einingu fjölskyldunnar.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kæranda og börnum hennar veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 27. júní 2018 og höfðu þau gilt dvalarleyfi þar í landi til 27. ágúst 2021. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi og börn hennar njóta í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 10. júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Excluded and segregated – The vanishing education of refugee children in Greece (Refugee Support Aegean, 13. apríl 2021);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Growing up in lockdown: Europe´s children in the age of Covid-19 – Eurochild report (Eurochild, nóvember 2020);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • Rights of Children in Institutions – Report on the implementation of the Council of Europe Recommendation. Rec(2005)5 on the rights of children living in residential institutions (Council of Europe, ágúst 2008);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingasíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/greece/living-in-greece/access-to-education/, sótt 23. september 2021);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingar af vefsíðu Eurochild (http://eurochild.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu Unicef (http://unicef.org);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 23. september 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 23. september 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 23. september 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021.

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifi oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera (AMKA) breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer (AMKA). Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Erfiðleikar geti verið til staðar við að nálgast félagslegar bætur vegna ákveðinna kerfishindrana, m.a. þurfi einstaklingar sem hyggist sækja um félagslegar bætur að leggja fram ákveðin skjöl s.s. fæðingarvottorð, upplýsingar um fjölskyldustöðu og prófskírteini. Þá hafi einstaklingar fengið synjun á umsókn sinni frá opinberum starfsmönnum þvert á reglur um jafnræði í grískum lögum. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur, en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer, hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fer einungis fram á grísku en umsækjendur geta leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Í fyrrnefndri skýrslu ECRE kemur fram að fæðingu barns beri að skrásetja hjá viðeigandi sveitarfélagi og að við skráninguna þurfi að framvísa fæðingarvottorði barnsins og dvalarleyfisskírteini a.m.k. eins foreldris. Þá kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi geti sótt um fjölskyldusameiningu. Handhafi alþjóðlegrar verndar sem sækir um fjölskyldusameiningu við barn undir 18 ára aldri þurf hvorki að sækja um innan ákveðins tímaramma frá því viðkomandi öðlaðist vernd eða sýna fram á lágmarkstekjur. Í skýrslu ECRE kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það sé áætlað að einungis þriðjungur barna með alþjóðlega vernd hafi verið formlega skráður til náms á árunum 2018-2019. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft neikvæð áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt eigi stór hluti flóttabarna í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði.

Í skýrslu Evrópuráðsins um réttindi barna á stofnunum á vegum barnaverndaryfirvalda í Evrópu kemur fram að í Grikklandi fari heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið með yfirumsjón yfir málum sem snúa að barnavernd. Þá hefur embætti umboðsmanns barna í Grikklandi eftirlit með stofnunum landsins, annars vegar með frumkvæðisskoðun og hins vegar tekur hann við kvörtunum frá börnum og forráðamönnum þeirra. Í skýrslu Eurochild frá árinu 2020 kemur fram að ekki hafi orðið neinar framfarir á síðustu árum á barnaverndarkerfinu í Grikklandi einkum hvað varðar vistun barna utan heimila og að þörf sé á úrbótum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Þá kemur fram að flóttabörn hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Þrátt fyrir að lögin kveði á um bann við líkamlegum refsingum og illri meðferð á börnum sé framfylgni laganna af hálfu stjórnvalda ekki talin fullnægjandi. Samkvæmt lögum séu sérstök úrræði fyrir börn sem hafi verið vanrækt eða misnotuð, t.a.m. fósturúrræði eða móttökumiðstöðvar. Ríkisreknar stofnanir hafi verið gagnrýndar af hálfu mannréttindasamtaka og taldar ófullnægjandi, m.a. vegna undirmönnunar og plássleysis. Þá sé heimilisofbeldi refsivert samkvæmt lögum en þeim sé framfylgt að framlagðri kæru. Stjórnvöld hafi sætt gagnrýni af hálfu alþjóðlegra samtaka fyrir að bregðast ekki við þegar innflytjendur tilkynni um heimilisofbeldi. Í ársskýrslu gríska umboðsmannsins fyrir árið 2020 kemur fram að umboðsmaður hafi leitast við að gera sérstakar ráðstafanir til að auka stuðning við þolendur heimilisofbeldis. Þá hafi lögreglan farið í sérstakt átak til að takast á við heimilisofbeldi og kynbundið ofbeldi á árinu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sé veitt dvalarleyfi til þriggja ára. Þá fái einstaklingar sem hafi hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildi um þá sem hafi fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið renni út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hafi umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvubréf. Þeir einstaklingar sem ekki hafi aðgang að tölvu eða séu ólæsir hafi því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fari fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Þá kemur einnig fram að renni dvalarleyfi út á meðan einstaklingur bíði eftir endurnýjun eigi hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefi til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og gildi það í fjóra mánuði. Dæmi séu þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin séu m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, sæti slíkri meðferð. 

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi móðir tveggja drengja sem eru [...] ára. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að andlegt heilsufar hennar sé ekki gott. Þá greindi kærandi frá því að synir hennar eigi við andlega erfiðleika að stríða og að þeir séu með tannskemmdir.

Kærandi hefur við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun og kærunefnd lagt fram ýmis gögn, þ. á m. frá sálfræðingi hjá Göngudeild sóttvarna, bráðamóttöku Landspítala, heilsugæslunni Firði og Barnavernd. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. apríl 2021, kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigð. Kærandi hafi grátið mikið í viðtali og borið sig illa. Hún hafi greint frá því að hafa orðið fyrir tilraun til nauðgunar og verið rænt af manni í Grikklandi. Í gögnum frá heilsugæslunni Firði, dags. 24. apríl til 6. maí 2021, kemur m.a. fram að kærandi hafi leitað þangað vegna máttleysis í fótum og fengið kuldaköst. Þá hafi kærandi leitað á heilsugæslu vegna stingandi verkja í brjósti, hröðum hjartslætti og verk í herðum og baki. Kærandi hafi lýst hugsunum um að vilja ekki vera til.

Kærandi hefur auk þess notið þjónustu sálfræðings hér á landi, sbr. nótur sálfræðings hjá Göngudeild sóttvarna, dags. 10. maí, 14. og 28. júní 2021, þar kemur m.a. fram að kærandi hafi greint frá mörgu sem hrjái hana. [...]. Samkvæmt komunótum bráðamóttöku Landspítala, dags. 27. maí 2021, hafi kærandi leitað á bráðamóttöku eftir að hafa fengið neitun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun, kærandi hafi m.a. hnigið niður vegna áfalls. Í göngudeildarnótum frá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 11. – 12. júní 2021, kemur fram að kæranda hafi verið vísað á bráðamóttöku frá félagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar vegna kvíða og sjálfsvígshugsana og fengið lyf. Kærandi hafi verið metin í lítilli sjálfsvígshættu.

Samkvæmt gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. apríl 2021, eru A og B almennt heilbrigðir. Í gögnum er tekið fram að drengirnir beri litla virðingu fyrir móður sinni sem þurfi greinilegan stuðning í uppeldishlutverkinu. Samkvæmt gögnum hafi félagsráðgjafi stutt við fjölskylduna með því að fara á heimili kæranda vikulega og hefur kærandi auk þess fengið vikuleg samtöl við ráðgjafa, sbr. m.a. upplýsingar frá Heilsugæslunni Firði, dags. 3. maí 2021, og tölvubréf frá starfsmanni hjá stoðdeild flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd hjá Hafnarfjarðarbæ, dags. 28. apríl 2021. Þá kemur fram í tölvubréfinu að mikilvægt sé að haldið sé vel utan um fjölskylduna með viðeigandi aðstoð og stuðningi.

Samkvæmt upplýsingum frá talsmanni kæranda, sem bárust kærunefnd hinn 29. júní 2021, hafi mál kæranda og barna hennar verið aðskilin máli eiginmanns og barnsföður kæranda vegna [...]. Þá hefur kærandi lagt fram gögn frá barnavernd Hafnarfjarðar.[...]

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og barna hennar hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem kærandi hefur fengið hér á landi. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hennar þar sem fjölskyldan verði útilokuð frá nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, félagslegri aðstoð, húsnæði og atvinnu í Grikklandi. Kærandi vísar til viðkvæmrar stöðu fjölskyldunnar, einkum til andlegrar heilsu kæranda. Þá vísar hún til þess að endursending fjölskyldunnar til Grikklands sé börnunum ekki fyrir bestu.

Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Kærandi og börn hennar eru með alþjóðlega vernd í Grikklandi og hafa m.a. greint frá bágum aðstæðum sínum þar í landi. Þau hafi t.a.m. haft takmarkaðan aðgang að heilbrigðisþjónustu, félagslegri þjónustu og orðið fyrir fordómum og mismunun í Grikklandi. Líkt og áður hefur komið fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar. Aftur á móti liggur fyrir að ýmsar hindranir eru á því að þeir geti sótt þessi réttindi. Til að mynda sé ljóst að börn eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi en framangreind gögn benda til þess að yfirstíga þurfi ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá börn í skóla. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Grikklandi m.t.t. félagslegra bóta telur kærunefnd ljóst að þau skilyrði sem sett eru fyrir félagslegum bótum í Grikklandi geta valdið því að fjölskyldur með alþjóðlega vernd þar í landi geti átt erfitt með yfirstíga þær hindranir sem finna má í grísku stjórnkerfi er það varðar, og þar með framfleyta sér. Sem dæmi geti þau mætt hindrunum við að nálgast gögn sem séu forsendur bótanna og þá geti verið bið eftir afgreiðslu umsókna. Þá séu í reynd engir aðrir styrkir en svokallaður KEA styrkur fyrir einstaklinga sem búi undir fátæktarmörkum. Jafnframt bera gögn um aðstæður í Grikklandi með sér að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd að vinnumarkaðnum sé erfitt, m.a. í ljósi mikils atvinnuleysis í landinu.

Þá telur kærunefnd að ljóst sé af framangreindri umfjöllun, að ýmsar hindranir séu á möguleikum flóttamanna til að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en líkt og áður hefur komið fram er númerið forsenda þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það sé því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd mæti ýmsum hindrunum við umsókn um skattnúmer þá bendi skýrslur til þess að það sé þeim ekki ómögulegt. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún viti ekki hvort hún sé með almannatrygginganúmer og skattnúmer í Grikklandi.

Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu í Grikklandi, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum og geðheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar en sækja þurfi um almannatrygginganúmer til að fá aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi. Þrátt fyrir það þá benda framangreindar upplýsingar um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi til þess að það geti verið kæranda vandkvæðum bundið að sækja þá þjónustu m.a. vegna álags á gríska heilbrigðiskerfinu og þeirra hindrana sem hún kæmi til með að þurfa að yfirstíga. Enn fremur gætu orðið tafir á því að kærandi og börn hennar fái aðgang að þeirri þjónustu og úrræðum sem þau þurfi á að halda. Samkvæmt gögnum málsins er ekki ljóst hvort kærandi sé með almannatrygginganúmer í Grikklandi. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér bera með sér að útgáfa almannatrygginganúmera hafi falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu en að það sé þeim ekki ómögulegt.

Eins og að framan hefur verið rakið hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi að formi til ýmis réttindi þar í landi, sem ekki eru þó í öllum tilvikum virk, m.a. vegna álags á innviði í ríkinu. Kærandi er aðskilin eiginmanni sínum og með tvö börn á sínu framfæri. Þá er af gögnum málsins ljóst að [...]en lögð hafa verið fram gögn þar sem fram kemur að lögreglurannsókn sé hafin á föður A og B vegna fyrrgreindra ásakana. Kærandi hefur við meðferð málsins notið þjónustu sálfræðings hjá Göngudeild sóttvarna og leitað til bráðaþjónustu geðsviðs Landspítala vegna kvíða og sjálfsvígshugsana og fengið ávísað ýmsum lyfjum vegna þess. Þá hefur barnavernd Hafnarfjarðar haft aðkomu að málefnum fjölskyldunnar. Kærandi og börn hennar hafa notið viðeigandi stuðnings inn á heimili af hálfu félagsþjónustu Hafnarfjarðar vegna viðkvæmrar stöðu fjölskyldunnar en fram kemur í gögnum að félagsráðgjafi hafi stutt við fjölskylduna með því að fara á heimili kæranda vikulega og hefur kærandi auk þess fengið vikuleg samtöl við ráðgjafa. Auk þess hefur kærandi notið stuðnings samtaka um kvennaathvarf þar sem kærandi dvaldi með A og B um tíma. Þá liggja fyrir gögn um alvarlegar aðstæður barnanna þannig að heilsu þeirra og þroska sé stefnt í hættu fái þau ekki nauðsynlega aðstoð. Kærandi og börn hennar hafa þörf fyrir áframhaldandi félagslegan stuðning barnaverndarþjónustu. Gögn málsins benda til þess að það geti verið vandkvæðum bundið fyrir kæranda og börn hennar að fá nauðsynlegan stuðning í Grikklandi en skýrslur um Grikkland bera með sér að barnaverndarkerfið þar í landi hafi verið gagnrýnt vegna skorts á þjónustu sem tengist takmörkuðum fjárheimildum gríska ríkisins.

Í ljósi framangreindra aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi og þá sérstaklega þegar litið er til viðkvæmrar stöðu barnanna A og B telur kærunefnd að ástæða sé til að ætla að kærandi sé í verulega síðri stöðu en aðrir til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldunni og fá viðeigandi stuðning félagsmálakerfis, og þar með tryggja grunnþarfir barna sinna. Í ljósi alls þess sem að framan er rakið er það mat kærunefndar, sérstaklega m.t.t. alvarlegra aðstæðna A og B og þarfa fjölskyldunnar á félagslegum stuðningi, auk núverandi aðstæðna í Grikklandi og framangreindra aðgangshindrana að grunnþjónustu og réttindum, að það sé ekki í samræmi við öryggi A og B, velferð þeirra og þroska að fara aftur til Grikklands þar sem óvissa sé með trygga framfærslu barnanna og aðgang þeirra að grunnþjónustu og félagslegum stuðningi.

Samkvæmt framangreindu er það því niðurstaða kærunefndar að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í máli þeirra sem mæla með því að mál þeirra verði tekið til efnismeðferðar hér á landi skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. sömu laga og 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, og tilvitnuð ákvæði reglugerðar um útlendinga.

Að framangreindu virtu og með vísan til sjónarmiða um einingu fjölskyldunnar er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í máli kæranda og barna hennar og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um athugasemdir kæranda við ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hennar og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barna hennar til efnismeðferðar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicants´ and their children´s applications for international protection in Iceland.

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsso

 

Sandra Hlíf Ocares                                                                Bjarnveig Eiríksdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum