Hoppa yfir valmynd
5. desember 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Bjarni Benediktsson hlaut hvatningarverðlaun Samtóns

Bjarni tók við hvatningarverðlaunum Samtóns í dag.  - mynd

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hlaut í dag hvatningarverðlaun Samtóns, samtaka rétthafa íslenskrar tónlistar. Verðlaunin hlaut hann fyrir að vera fyrsti ráðherra heims sem viðurkennir höfundarrétt til jafns við annan eignarrétt.

Alþingi samþykkti í haust frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um þetta efni.

„Ég varð mjög þakklátur í dag, á degi íslenskrar tónlistar, þegar ég tók við viðurkenningu fyrir að hafa fyrstur fjármálaráðherra á heimsvísu gert hugverkaréttindum jafnhátt undir höfði og öðrum réttindum, þannig að ekki skipti máli hvort um hugverk eða tréverk er að ræða, þegar kemur að skattlagningu,“ sagði Bjarni. Þetta skipti þá sem starfa í skapandi greinum miklu máli enda hefur breytt löggjöf í för með sér að höfundaréttartekjur teljast frá og með næsta ári til fjármagnstekna, en verða ekki skattlagðar eins og launatekjur. „Þetta hefur verið baráttumál höfunda um árabil, og án þess að á nokkurn sé hallað, voru tónlistarmenn þar fremstir í flokki. Sú barátta hafði ekki borið árangur, enda höfðu hagsmunasamtök þeirra ítrekað fengið þau svör að þetta tíðkaðist hvergi. Mér þóttu það ekki nógu góð rök, enda yrðu aldrei neinar breytingar ef enginn yrði fyrstur til að breyta,“ sagði fjármála- og efnahagsráðherra.

Verðlaunin voru afhent á degi íslenskrar tónlistar í Iðnó í dag.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum