Hoppa yfir valmynd
19. maí 2017 Heilbrigðisráðuneytið

Ný stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra

Guðrún Alda Harðardóttir - mynd
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur skipað í stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra. Formaður stjórnar er Guðrún Alda Harðardóttir.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra og er fjármagnaður með gjaldi sem lagður er á þá sem eru skattskyldir á aldrinum 16 – 70 ára. Sjóðnum er ætlað að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land og skal fé úr honum varið til byggingar stofnana fyrir aldraða, þjónustumiðstöðva og dagvista, mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar á slíku húsnæði og til viðhalds húsnæðis dagvistar-, dvalar- og hjúkrunarheimila, auk annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu.

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra annast stjórn sjóðsins og gerir árlega tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum.

Guðrún Alda Harðardóttir, nýr formaður stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra, er með doktorspróf í uppeldis og kennslufræðum frá Háskóla Íslands og starfar sem leikskólaráðgjafi við leikskólann Aðalþing í Kópavogi.

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra er svo skipuð:
Guðrún Alda Harðardóttir, án tilnefningar, formaður
Halldór Halldórsson, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Sigurður Jónsson, tiln. af Landssambandi eldri borgara
Stella Kristín Víðisdóttir, tiln. af fjárlaganefnd Alþingis

Varamenn
Halldór Jörgensson, án tilnefningar
Gyða Hjartardóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Sigríður Jóhanna Guðmundsdóttir, tiln. af Landssambandi eldri borgara
Guðmundur Sigurðsson, tiln. af fjárlaganefnd Alþingis.

Skipunartími er fram að næstu alþingiskosningum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum