Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 567/2021 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 18. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 567/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21100060

 

Beiðni [...]um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 25. mars 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. janúar 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 29. mars 2021.

Þann 24. október 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá stoðdeild ríkislögreglustjóra  og Útlendingastofnun þann 29. október 2021. Athugasemdir bárust frá talsmanni kæranda þann 3. nóvember 2021.

Af greinargerð kæranda má ætla að beiðni hans um endurupptöku málsins byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggir á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli umsókn kæranda því tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU17090040, dags. 24. október 2017, máli sínu til stuðnings.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 24. október 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 24. október 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 28. október 2021 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá stoðdeild og Útlendingastofnun. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í svari frá stoðdeild sem barst þann 29. október 2021, kemur fram lögreglan hafi hitt kæranda þann 18. október 2021 í búseturúrræði hans þar sem kynnt hafi verið fyrir kæranda að hann ætti að mæta í Covid-19 sýnatöku klukkan 8:30 daginn eftir. Kæranda hafi verið kynnt eyðublað um samvinnu við lögreglu þar sem hann hafi neitað samvinnu auk þess sem hann hafi neitað að mæta í Covid-19 sýnatöku. Þá hafi kærandi neitað að skrifa undir eyðublaðið en tveir lögreglumenn undirrituðu eyðublaðið sem vottar. Í svari frá Útlendingastofnun sem barst þann 29. október 2021, kemur fram að stofnunin líti ekki svo á að kærandi hafi tafið mál sitt á lægra stjórnsýslustigi. Stofnunin hafi hins vegar fengið upplýsingar frá stoðdeild um að kærandi hafi neitað því að sýna samstarfsvilja í tengslum við framkvæmd flutnings.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 1. nóvember 2021, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd þann 3. nóvember 2021. Í svari kæranda kemur m.a. fram að stoðdeild hafi augljóslega verið að kanna afstöðu hans til fyrirhugaðs flutnings með almennum hætti. Kærandi vísar til þess að eftir að kærunefnd kvað upp úrskurð sinn hafi hann ekki verið boðaður í Covid-19 sýnatöku fyrr en þann 18. október 2021, eða um 204 dögum síðar. Aðgerðir stoðdeildar og framkvæmdin sé því ómarkviss enda hafi kærandi verið boðaður í sýnatökuna 6 dögum áður en 12 mánaða fresturinn rann út. Kærandi telur að af svörum stoðdeildar megi ráða að ekki hafi verið gerðar neinar tilraunir til þess að framkvæma ákvörðun Útlendingastofnunar fyrir þann tíma. Að mati kæranda standist ekki skoðun að fresta framkvæmd ákvörðunar úr öllu hófi, enda hafi það verið verulega íþyngjandi fyrir kæranda að bíða í rúmlega sjö mánuði eftir skilaboðum frá lögreglu um framkvæmd og flutning. Að mati kæranda geti stoðdeild ekki mætt örfáum dögum áður en umræddur frestur renni út og komið þar með í veg fyrir endurupptöku með því að framvísa tilteknum pappírum en kærandi telur að greinilegt sé að stoðdeild hafi þegar fyllt út skjalið án nokkurs samráðs við hann. Kærandi telur það óforsvaranlegt að stoðdeild beri fyrir sig slíka pappíra sem lagðir séu fyrir hann án túlks eða lögmanns. Ekkert í málinu gefi til kynna að kærandi hafi tafið mál sitt með öðrum hætti en að neita að skrifa undir eyðublað sem hann hafi ekki skilið. Kærandi hafi til að mynda aldrei falið sig eða reynt að koma sér undan stjórnvöldum. Þannig standist það ekki skoðun að líta svo á að kærandi hafi tafið mál sitt með slíkum hætti. Kærandi telur að af svari stoðdeildar megi ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar að undirbúa flutning á honum og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar. Að auki telur kærandi að boðun stoðdeildar í umrædda sýnatöku skorti lagastoð, en ekkert ákvæði í lögum um útlendinga veiti stjórnvöldum eða stoðdeild heimild til þess að leggja fyrir útlending að gangast undir rannsókn eða sýnatöku vegna Covid-19, með það að markmiði að brottvísa þeim. Það hljóti að teljast nauðsynlegt að hafa skýra lagaheimild fyrir slíkri rannsókn í þessum tilgangi. Þannig sé ekki hægt að leggja slíka boðun til grundvallar við ákvarðanatöku í þessu máli. Kærandi telur enn fremur að munnleg yfirlýsing hans um að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands eða undirgangast Covid-19 sýnatöku, geti ekki heldur talist vera töf á afgreiðslu málsins. Þá vísar kærandi til úrskurða kærunefndar í máli nr. KNU21080008 frá 22. september 2021 og KNU21070020 frá 26. ágúst 2021 máli sínu til stuðnings.

Af svari stoðdeildar má ráða að þau samskipti sem hafi átt sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi snúið að því að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands auk þess sem kærandi var sérstaklega boðaður til sýnatöku þann 19. október 2021, klukkan 8:30. Þá var kæranda kynnt eyðublaðið Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands. Þar hafi verið hakað í svarreit að kærandi ætlaði ekki að sýna samstarfsvilja með stjórnvöldum í tengslum við flutning sinn til Grikklands. Þá hafi einnig verið hakað við svarreit um að kærandi ætlaði ekki að undirgangast Covid-19 sýnatöku vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar en á eyðublaðinu kemur fram að umrædd sýnataka hafi átt að fara fram þann 19. október 2021, klukkan 8:30. Kærandi hafi svo neitað að skrifa nafn sitt undir eyðublaðið en eins og áður greinir vottuðu tveir lögreglumenn að efni skjalsins hafi verið birt fyrir kæranda.

Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 24. október 2021. Ljóst er að kærandi mætti ekki í fyrirhugaða sýnatöku, svo sem er skilyrði fyrir flutningi hans úr landi, og lýsti þeirri afstöðu sinni við lögreglumenn sem hittu hann fyrir í búsetuúrræði hans og kynntu fyrir honum efni áðurnefnds eyðublaðs, að hann vildi ekki fara til Grikklands. Þannig kom kærandi í veg fyrir flutning sinn úr landi og tafði málsmeðferðina.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki uppfyllt.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.


 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellant‘s request is denied.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum