Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 508/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 508/2021

Fimmtudaginn 20. janúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. september 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2021, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 4. september 2019 og var umsókn hans samþykkt 17. október 2019. Samhliða atvinnuleysisbótum þáði kærandi laun frá B og C. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2021, var kæranda tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir júní- og júlímánuði 2020, að fjárhæð 223.058 kr., á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. september 2021. Með bréfi, dags. 5. október 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 17. nóvember 2021, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. nóvember 2021. Athugasemdir bárust ekki.


 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi fyrir mistök greitt honum of háar atvinnuleysisbætur og hann sé ekki fær um að greiða til baka. Kærandi óski eftir að ákvörðun stofnunarinnar verði felld úr gildi.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur þann 4. september 2019 og reiknast með 100% bótarétt. Þann 19. júní 2020 hafi kærandi tilkynnt stofnuninni um tilfallandi vinnu hjá B vegna tímabilsins 3. júní 2020 til 30. júní 2020. Kærandi hafi áætlað tekjur sínar 400.000 kr. en samkvæmt upplýsingum frá embætti Skattsins hafi kærandi hins vegar fengið greiddar 642.908 kr. vegna umræddrar vinnu. Kærandi hafi jafnframt fengið tekjur frá C í júní sem námu 107.564 kr., sem ekki hafi verið tilkynntar til stofnunarinnar.

Þann 12. júlí 2020 hafi kærandi tilkynnt aftur um tilfallandi vinnu hjá B vegna tímabilsins 1. júlí 2020 til 31. júlí 2010. Kærandi hafi áætlað tekjur sínar 350.000 kr. Aftur á móti hafi kærandi fengið greiddar 736.583 kr. samkvæmt upplýsingum frá embætti Skattsins. Kærandi hafi jafnframt fengið tekjur frá C í júlí sem námu 159.521 kr., sem ekki hafi verið tilkynntar til stofnunarinnar.

Á sama tíma og kærandi hafi þegið laun frá B og C hafi kærandi jafnframt þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun. Þar sem ekki hafi legið fyrir réttar upplýsingar um greidd laun og kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um þau laun sem hann hafi fengið greidd frá C hafi myndast skuld við Vinnumálastofnun upp á 223.058 kr.

Kærandi hafi ekki staðfest atvinnuleit sína og hafi verið afskráður af atvinnuleysisbótum þann 25. ágúst 2020 frá og með 31. júlí 2020. Atvinnuleitendum sé tilkynnt um skuld við Vinnumálastofnun á „Mínum síðum“ stofnunarinnar. Frekari upplýsingar um skuldamyndun komi svo fram á greiðsluseðli. Kæranda hafi verið send slík tilkynning þann 28. júlí og aftur þann 27. ágúst 2020. Í september 2021 hafi skuld kæranda enn verið ógreidd hjá stofnuninni. Þann 23. september 2021 hafi kæranda verið sent innheimtubréf vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta og tilkynnt að upphæð skuldarinnar næmi 223.058 kr., án álags, sem innheimt yrði samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 43/2006.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Krafa Vinnumálastofnunar eigi rætur sínar að rekja til tekna frá B og C vegna júní- og júlímánaða sem kærandi hafi fengið greiddar samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Tekjur atvinnuleitanda komi til frádráttar frá atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006. Þar komi fram að þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans samkvæmt 32.-34. gr. séu hærri en sem nemi óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki samkvæmt 4. gr., skuli skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram séu. Hið sama gildi um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem séu komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kunni að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skuli taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hafi haft á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur, sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum.

Skuld kæranda sé tilkomin vegna launa sem kærandi hafi þegið í júní og júlí 2020 á sama tíma og hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1296/2020, settri með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi frítekjumark verið ákveðið 73.827 kr. á mánuði. Í öllum tilvikum hafi tekjur kæranda numið hærri fjárhæð en frítekjumark atvinnuleysisbóta. Umræddar tekjur hefðu því réttilega átt að koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum í samræmi við 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um umræddar tekjur hafi myndast skuld við Vinnumálastofnun, að fjárhæð 223.058 kr., án álags. Ofgreiddum atvinnuleysisbótum sé skuldajafnað sem nemi 25% af atvinnuleysisbótunum í hverjum mánuði á móti síðar tilkomnum greiðslum í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi þess að kærandi hafi verið afskráður í lok júlí 2020 hafi ekki verið hægt að skuldajafna á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum.

Eftirstöðvar skuldar kæranda nemi nú 223.058 kr. og krafa Vinnumálastofnunar um endurgreiðslu kæranda á ofgreiddum atvinnuleysisbótum á þeirri fjárhæð sé byggð á 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Í ákvæðinu sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 54/2006 sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varðar skyldu til að endurgreiða ofgreiddar bætur. Bendi Vinnumálastofnun á niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 249/2021. Jafnframt bendi Vinnumálastofnun á úrskurð nefndarinnar í máli nr. 86/2013 um að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta.

Það sé niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að fjárhæð 223.058 kr., á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2021, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að fjárhæð 223.058 kr., vegna tekna sem kærandi aflaði á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur.

Í 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna hins tryggða. Þar segir í 1. mgr.:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Kærandi fékk tekjur frá B og C samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Ljóst er að tekjurnar höfðu áhrif á fjárhæð atvinnuleysisbóta til handa kæranda, sbr. framangreint ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um frádrátt vegna tekna.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna er heimilt að skuldajafna ofgreiddum atvinnuleysisbótum á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum sama einstaklings en þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur 25% af síðarnefndu atvinnuleysisbótum í hverjum mánuði. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem tekjuáætlun kæranda vegna starfa hjá B var ekki í samræmi við rauntekjur hans og ekki lágu fyrir upplýsingar um tekjur hans frá C fékk kærandi greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á umrædda mánuði. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2021, í máli A, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum