Hoppa yfir valmynd
2. mars 2010 Dómsmálaráðuneytið

Umboðsmenn ólíkra sjónarmiða í einstökum kjördæmum

Landskjörstjórn hefur skipað tólf einstaklinga sem umboðsmenn ólíkra sjónarmiða við þjóðaratkvæðagreiðsluna í einstökum kjördæmum, sbr. 9. gr. laga nr. 4/2010 um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar.

Norðvesturkjördæmi:
Já:        Pétur Kristinsson hdl.
Nei:     Tryggvi Bjarnason lögfr.

Norðausturkjördæmi:
Já:        Arnbjörg Sigurðardóttir hdl.
Nei:     Ingvar Þóroddsson hdl.

Suðurkjördæmi:
Já:        Andrés Valdimarsson hrl.
Nei:     Sigurður Jónsson hrl.

Reykjavíkurkjördæmi norður:
Já:        Valborg Þ. Snævarr hrl.
Nei:     Hulda Rós Rúriksdóttir hrl.

 Reykjavíkurkjördæmi suður:
Já:        Inga Björg Hjaltadóttir hdl.
Nei:     Arnar Þór Stefánsson hdl.

Suðvesturkjördæmi:
Já:        Eva Margrét Ævarsdóttir hdl.
Nei:     Jóna Björk Helgadóttir hdl.

Hlutverk umboðsmanna í kjördæmunum

1.                  Umboðsmaður hefur rétt til að fylgjast með framkvæmd atkvæðagreiðslunnar á einstökum kjörstöðum í kjördæminu og gæta að því að kjörstjórn og kjósendur hegði sér þar í samræmi við lög nr. 4/2010 og lög nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis, sbr. til hliðsjónar 94. gr. laga 24/2000. Verði hann áskynja um eitthvað ólöglegt við kosningarathöfnina og fái það ekki leiðrétt á hann rétt á að fá bókað um ágreininginn í kjörbókina og sker landskjörstjórn þá úr hvaða áhrif það hafi.

2.                  Ef umboðsmaður telur kjörstjórn ekki meta utankjörfundaratkvæði með réttum hætti, sbr. 91. gr. laga nr. 24/2000, getur hann krafist bókunar um ágreininginn í kjörbókina og er þá kjörseðilsumslag ásamt fylgibréfi lagt aftur í sendiumslagið og atkvæðið sent til úrskurðar yfirkjörstjórnar.

3.                  Umboðsmaður skal vera viðstaddur talningu atkvæða hjá viðkomandi yfirkjörstjórn og fylgjast með því að meðferð kjörstjórnar á atkvæðasendingum og talning fari fram í samræmi við lög nr. 4/2010 og lög nr. 24/2000. Telji umboðsmaður að meðferð á atkvæðasendingum eða aðferð við talningu sé ekki lögum samkvæmt og beiðni hans um leiðréttingu er ekki tekin til greina  getur hann fengið bókað um ágreininginn í gerðabók kjörstjórnarinnar og sker landskjörstjórn úr um niðurstöðu í málinu.

4.                  Verði ágreiningur milli umboðsmanns og yfirkjörstjórnar um gildi atkvæðis, sbr. 100. og 101. gr. laga nr. 24/2000 svo og 4. málsl. 9. gr. laga nr. 4/2010, skal leggja þá kjörseðla sem ágreiningur er um í tvö sérstök umslög, í annað þá seðla sem kjörstjórnin hefur úrskurðað gilda og í hitt þá seðla sem hún hefur úrskurðað ógilda, sbr. 3. mgr. 103. gr. laga nr. 24/2000. Yfirkjörstjórn sendir landskjörstjórn seðlana sem sker úr um gildi þeirra, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 4/2010.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum