Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 677/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 677/2020

Fimmtudaginn 8. apríl 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 22. desember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. desember 2020, um að synja beiðni hennar um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 6. október 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 26. október 2020 og var umsókn hennar samþykkt 11. nóvember 2020. Þann 17. nóvember 2020 barst Vinnumálastofnun beiðni frá kæranda um fá greiddar atvinnuleysisætur frá 6. október 2020 í stað umsóknardags í ljósi þess að hún hafi þurft að loka hárgreiðslustofu sinni þann dag vegna COVID-19. Með ákvörðun, dags. 22. desember 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt frá 26. október 2020 og útreiknaður bótaréttur hennar metinn 50%. Beiðni kæranda um að umsóknin tæki gildi 6. október 2020 var synjað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. desember 2020. Með bréfi, dags. 5. janúar 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 27. janúar 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. janúar 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að henni hafi verið skipað að loka hárgreiðslustofu sinni þann 6. október 2020 um óákveðinn tíma. Hún hafi ekki sótt um atvinnuleysisbætur fyrr en 26. október 2020, en þá hafi hún séð fram á að þurfa að hafa lokað lengur, en Vinnumálastofnun hafi hafnað að greiða henni atvinnuleysisbætur frá lokunardegi. Í fyrri lokun hafi kærandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá lokunardegi og þangað til að hún hafi fengið að opna aftur, en ekki í þetta skipti sem kæranda þyki undarlegt.

Kærandi hafi haldið að þessi seinni lokun hjá hárgreiðslustofum myndi vara skemur en fyrri lokun og því hafi kærandi ekki sótt um atvinnuleysisbætur fyrr en fullvíst væri að lokun myndi vara lengur. Kærandi hafi því sótt um atvinnuleysisbætur 26. október 2020 en ekki 7. október 2020 og nú neiti Vinnumálastofnun að greiða kæranda bætur fyrir það tímabil, eða frá 7. október til 26. október 2020. Kærandi vonist til að henni verði sýnt réttlæti á þessum erfiðu tímum, sérstaklega í ljósi þess að hún hafi þurft að loka og hætta störfum á grundvelli stjórnvaldsákvörðunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að hafna beiðni kæranda um að fá greiddar atvinnuleysisbætur aftur fyrir umsóknardag hennar. Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi fram að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Þar sem Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 26. október 2020 telji stofnunin að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. fortakslaust skilyrði laga nr. 54/2006, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna, sbr. fyrri úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 394/2020.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 6. október 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi í fyrri lokun fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá lokunardegi og þangað til að hún hafi fengið að opna aftur. Með 1. gr. b. laga nr. 23/2020, um breytingu á lögum nr. 54/2006, var opnað á þann möguleika fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga að tilkynna skattinum um samdrátt í rekstri í stað algerrar lokunar. Lögin voru samþykkt 20. mars 2020 en gildistími ákvæðisins ákveðinn afturvirkt, eða frá og með 15. mars 2020. Á þeim grundvelli var í fyrstu bylgju COVID-19 fallist á beiðnir um afturvirkar greiðslur frá og með 15. mars, hafi umsókn borist þegar kynning á lagabreytingu var enn í vinnslu.

Í því máli sem hér um ræðir voru aðstæður með öðrum hætti, þ.e. bráðabirgðaákvæði XIV. kafla laga nr. 54/2006 var þegar í gildi þegar kærandi lagði inn umsókn hjá Vinnumálastofnun 26. október 2020. Að því virtu og með vísan til 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 átti kærandi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir umsóknardag. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. desember 2020, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 6. október 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum