Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2010 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 35/2009. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 12. janúar 2010

í máli nr. 35/2009:

Logaland ehf.

gegn

Ríkiskaupum

Með kæru, dags. 14. desember 2009, kærði Logaland ehf. ákvörðun Ríkiskaupa um val á tilboðum í útboðinu 14651: Plástrar, bindi, grisjur og fleira. Í kæru voru kröfur kæranda orðaðar með eftirfarandi hætti:

„1. Að kærunefndin stöðvi þegar í stað innkaupaferli eða gerð samnings við einstaka bjóðendur á grundvelli ofangreinds útboðs þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.

 

2. Að nefndin felli úr gildi ákvörðun kaupanda um val á tilboðum í útboðinu og leggi fyrir hann að auglýsa útboðið á nýjan leik.

 

3. Að nefndin láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu kaupanda gagnvart kæranda.

 

4. Að nefndin ákveði að kaupandi og/eða Ríkiskaup greiði umbjóðanda mínum kostnað við að hafa kæruna uppi.“

 

Kæran var ekki í samræmi við 2. mgr. 94. gr. laga nr. 84/2007 þar sem í henni var ekki að finna lýsingu á málsatvikum, málsástæður eða rökstuðning. Kæranda var gefinn frestur til að bæta úr annmörkum kærunnar. Hinn 5. janúar 2010 barst kærunefnd útboðsmála ódagsett greinargerð með kærunni og 6. janúar 2010 barst „athugasemd“ frá kæranda sem hafði að geyma viðbótarrökstuðning.

 

Kæran barst kærunefnd útboðsmála að kvöldi 14. desember 2009 og 15. desember kannaði kærunefnd útboðsmála hvort búið væri að samþykkja endanlega tilboð í hinu kærða útboði. Kærða var einnig kynnt kæran og viðbótarrökstuðningur kæranda þegar hann barst. Kærða var gefinn kostur á að gera athugasemdir og koma að frekari rökstuðningi fyrir vali á tilboði. Sérstaklega var óskað eftir athugasemdum kærða vegna kröfu kæranda um stöðvun á gerð samnings. Með bréfi, dags. 8. janúar 2010, bárust athugasemdir kærða vegna stöðvunarkröfunnar.

 

Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála til skoðunar hvort rétt þyki að stöðva gerð samnings.Endanlega verður leyst úr öðrum kröfum kærunnar síðar.

 

I.

Í apríl 2009 auglýsti kærði útboð nr. 14651: Plástrar, bindi, grisjur og fleira. Kærandi var meðal bjóðenda í útboðinu. Með tölvupósti, dags. 4. desember 2009, tilkynnti kærði um val á tilboðum í hinu kærða útboði. Með tölvupósti, dags. 15. desember 2009, tilkynnti kærði að tilboð hefðu verið endanlega samþykkt.

 

II.

Kærandi telur að rökstuðningur fyrir vali tilboðs hafi verið ófullnægjandi, bæði sá rökstuðningur sem fylgdi tilkynningu um val á tilboði og einnig rökstuðningur sem kærði sendi síðar. Þá telur kærandi að mat á tilboðum hafi verið haldið alvarlegum annmörkum, m.a. þar sem valdir hafi verið fleiri en einn bjóðandi í hverjum vöruflokki en það telur kærandi í andstöðu við forsendur útboðsgagna. Kærandi segir að reiknilíkan útboðslýsingar sem notað var við samanburð á verði tilboða hafi verið gallað og ekki hægt að notast við það. Þá gerir kærandi athugasemdir við framsetningu valforsendanna gæða og tæknilegra eiginleika í útboðslýsingu.

            Kærandi tekur sérstaklega fram að hann telji framgöngu kærða við val tilboða og endanlega samþykkt tilboða ólögmæta enda hafi kærði mátt vita að líklegt væri að útboðið yrði kært.

 

III.

Kærði segir að tilkynning um val tilboða í útboðinu hafi verið tilkynnt öllum þátttakendum hinn 4. desember 2009.  Kærði segir að hinn 15. desember 2009 hafi verið tilkynnt um endanlega samþykkt tilboða og því sé kominn á bindandi samningur.

 

IV.

Í 1. mgr. 76. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, segir að þegar innkaupaferli ljúki með vali kaupanda á tilboði skuli líða a.m.k. tíu dagar frá því að ákvörðun um val tilboðs er tilkynnt þar til tilboð er endanlega samþykkt. Gefst þátttakendum í innkaupaferlinu þannig kostur á því að skjóta máli til kærunefndar útboðsmála sem getur stöðvað samningsgerð til bráðabirgða ef hún telur verulegar líkur á því að brotið hafi verið gegn lögunum. Útboðsferli stöðvast þó ekki sjálfkrafa við það að kæra með stöðvunarkröfu berst kærunefnd útboðsmála. Eftir að bindandi samningur skv. 76. gr. laganna er kominn á verður hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt, sbr. 1. mgr. 100. gr. laganna.

Frá því að ákvörðun um val tilboða í hinu kærða útboði var tilkynnt og þangað til tilboð voru endanlega samþykkt liðu tíu dagar. Í þeim innkaupum sem mál þetta lýtur að hefur þannig komist á bindandi samningur samkvæmt 76. gr. laga nr. 84/2007 og þegar af þeirri ástæðu er kærunefnd útboðsmála ekki heimilt, lögum samkvæmt, að stöðva samningsgerðina.

 

           

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Logalands ehf., um að samningsgerð í kjölfar útboðsins 14651: Plástrar, bindi, grisjur og fleira verði stöðvuð þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, er hafnað.

 

 

                                                               Reykjavík, 12. janúar 2010.

                                                               Páll Sigurðsson

                                                               Stanley Pálsson

                                                              

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík,                      2010.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum