Hoppa yfir valmynd
15. desember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 622/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 622/2020

Þriðjudaginn 15. desember 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. nóvember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 27. nóvember 2020 vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006 þar sem hann uppfyllti ekki tilskilda mætingarskyldu á íslenskunámskeið. Kærandi bar þá ákvörðun undir úrskurðarnefnd velferðarmála með kæru, dags. 27. apríl 2020, sbr. mál nr. 210/2020. Með úrskurði nefndarinnar frá 19. nóvember 2020 var ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest.

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Í 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kemur fram að úrskurðarnefndin kveði upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Af kæru má ráða að kærandi sé ósáttur við ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði. Ljóst er að úrskurðarnefnd velferðarmála hefur þegar úrskurðað um það ágreiningsefni. Að því virtu og með vísan til framangreinds er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum