Hoppa yfir valmynd
27. mars 2019 Matvælaráðuneytið

Verkefnisstjórn um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað verkefnisstjórn til að koma með tillögur um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni. Sérstakur samráðshópur skipaður fulltrúum allra þingflokka og helstu hagaðila mun starfa með verkefnisstjórninni. Gert er ráð fyrir að verkefnisstjórnin skili skýrslu til ráðherra á haustmánuðum 2019.

Í janúar sl. gaf Ríkisendurskoðun út skýrslu þar sem farið er yfir hlutverk og rekstur Fiskistofu, eftirlit með vigtun sjávarafla, með brottkasti og með samþjöppun aflaheimilda. Það er niðurstaða Ríkisendurskoðunar að ráðast þurfi í ýmsar úrbætur til að Fiskistofa geti sinnt þeim viðfangsefnum, sem henni er falið samkvæmt lögum, með skilvirkum og árangursríkum hætti. Verkefnisstjórninni er m.a. ætlað að bregðast við þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni.

Verkefnisstjórnin er skipuð eftirtöldum:

  • Sigurður Þórðarson fv. ríkisendurskoðandi, formaður
  • Brynhildur Benediktsdóttir sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
  • Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi
  • Hulda Árnadóttir lögmaður
  • Oddný G. Harðardóttir alþingismaður

Samráðshópurinn er skipaður eftirtöldum:

  • Sigurður Þórðarson, skipaður formaður án tilnefningar
  • Árni Bjarnason, tilnefndur af Félagi Skipsstjórnarmanna
  • Guðmundur Helgi Þórarinsson, tilnefndur af Félagi vélstjóra og málmtæknimanna
  • Áslaug Eir Hólmgeirsdóttirtilnefnd af Fiskistofu
  • Lúðvík Geirsson, tilnefndur af Hafnasambandi Íslands
  • Ingibjörg G. Jónsdóttir, tilnefnd af Hafrannsóknastofnun
  • Guðríður Kristjánsdóttir, tilnefnd af Landhelgisgæslu Íslands
  • Axel Helgason, tilnefndur af Landssambandi smábátaeigenda
  • Jónas R. Viðarsson, tilnefndur af Matís ohf.
  • Dóra S. Gunnarsdóttir, tilnefnd af Matvælastofnun
  • Arnar Atlason, tilnefndur af Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda
  • Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
  • Bárður Guðmundsson, tilnefndur af Samtökum smærri útgerða
  • Valmundur Valmundsson, tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands
  • Magnús Þór Hafsteinsson, tilnefndur af þingfl. Flokks fólksins
  • Karitas Ríkharðsdóttir, tilnefnd af þingfl. Framsóknarflokksins
  • Guðbrandur Björgvinsson, tilnefndur af þingfl. Miðflokksins
  • Valgerður Árnadóttir, tilnefnd af þingfl. Pírata
  • Oddný G. Harðardóttir, tilnefnd af þingfl. Samfylkingarinnar
  • Njáll Trausti Friðbertsson, tilnefndur af þingfl. Sjálfstæðisflokksins
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, tilnefnd af þingfl. Viðreisnar
  • Lilja Rafney Magnúsdóttir, tilnefnd af þingfl. Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum