Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 29/2018

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 29/2018

Miðvikudaginn 11. apríl 2018

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 28. janúar 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins frá 28. nóvember 2017 á beiðni kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 21. júní 2017, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna fyrir árið 2016 hafi leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð 2.252.012 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Með umsókn kæranda til Tryggingastofnunar ríkisins, móttekinni 24. júlí 2017, sótti hann um niðurfellingu ofgreiðslukröfu vegna ársins 2016. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 28. nóvember 2017, var kæranda tilkynnt um að vegna breytinga á skattframtali 2016 vegna ársins 2015 hafi greiðslur þess árs verið endurreiknaðar. Við það hafi myndast ofgreiðslukrafa að fjárhæð 1.904.802 kr. og fallist hafi verið á að fella hana niður vegna erfiðra fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna. Eftirstöðvum krafna í innheimtu vegna uppgjörs ársins 2016 yrði dreift þannig að 34.201 kr. yrðu dregnar af mánaðarlegum greiðslum til hans þar til kröfur væri að fullu greiddar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. janúar 2018. Með bréfi, dags. 29. janúar 2018, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 27. febrúar 2018, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi, dags. 28. febrúar 2018. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir kröfu um að felldar verði niður allar kröfur vegna ofgreiddra bóta.

Í kæru kemur fram að tekjurnar sem hafi leitt til ofgreiðslnanna séu peningar sem hann hafi fengið erlendis frá. Kærandi hafi rætt við þjónustufulltrúa og spurt hvort hann þyrfti að láta vita af tekjunum og hafi hann verið upplýstur um að hann þyrfti þess ekki. Í dag sé staða kæranda þannig að hann geti hvorki borgað húsaleigu né keypt mat fyrir mánuðinn og hann eigi því í miklum erfiðleikum með að lifa. Þá segir í kæru að kærandi voni að úrskurðarnefndin sjái að hann hafi ekki efni á því að greiða þessa skuld. Kærandi geti ekki fengið sér aukavinnu til að greiða kröfuna vegna líkamlegra meiðsla. Allir læknar, bæði sérfræðingar og heimilislæknirinn hans, segi að hann sé að fullu óvinnufær.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé afgreiðsla stofnunarinnar á umsókn kæranda um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga um tekjuskatt nr. 90/2003 varðandi hvað skuli teljast til tekna. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, þá skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Á skýran hátt sé tekið fram í lögum um almannatryggingar og reglugerð nr. 598/2009 að meginreglan sé sú að Tryggingastofnun skuli innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laga um almannatryggingar, sem sé svohljóðandi: „Hafi Tryggingastofnun ríkisins eða umboð hennar eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin ofgreitt bótaþega bætur samkvæmt lögum þessum skal stofnunin draga ofgreiddar bætur frá bótum sem bótaþegi síðar kann að öðlast rétt til, sbr. þó 2. mgr. Einnig á Tryggingastofnun eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin endurkröfurétt á hendur bótaþega eða dánarbúi hans samkvæmt almennum reglum.“

Undantekningu frá þessari meginreglu sé að finna í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 varðandi þær kröfur sem myndast við uppgjör tekjutengdra bóta lífeyristrygginga. Þar segi: “Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.”

Varðandi kröfu vegna ársins 2015 þá séu málavextir þeir að allt það ár hafi kærandi fengið örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast í uppgjöri á hendur kæranda sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2016 vegna tekjuársins 2015, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist lögum samkvæmt á upplýsingum í skattframtölum bótaþega. Kæranda hafi verið send tekjuáætlun vegna ársins 2015 með bréfi, dags. 14. janúar 2015, þar sem gert hafi verið ráð fyrir því að kærandi hefði 1.200 kr. í fjármagnstekjur og engar aðrar tekjur. Kærandi hafi ekki gert athugasemdir við tillögu Tryggingastofnunar og hafi því fengið greitt miðað við þessar forsendur allt árið 2015. Við upphaflegt bótauppgjör ársins 2015 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi verið hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlunum. Kærandi hafði 582.047 kr. í launatekjur og 1.507 kr. í fjármagnstekjur. Einnig hafi verið tekið tillit til 23.282 kr. sem greiddar hafi verið sem iðgjald í lífeyrissjóð til frádráttar.

Við vinnslu umsóknar kæranda um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu hafi komið í ljós að eftir uppgjör tekjuársins, dags. 21. júní 2016, þá hafi verið gerðar breytingar á skattframtali kæranda. Endanlegt uppgjör tekjuársins 2015 hafi því farið fram 28. nóvember 2017. Þar hafi komið fram að kærandi hafði 5.697.185 kr. í launatekjur og 1.507 kr. í fjármagnstekjur. Einnig hafi verið tekið tillit til 227.882 kr. sem greiddar hafi verið sem iðgjald í lífeyrissjóð til frádráttar. Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum. Endanleg niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2015 hafi því verið ofgreiðsla að fjárhæð 1.904.802 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta.

Varðandi kröfu vegna ársins 2016 þá hafi kærandi fengið á því ári örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast í uppgjöri sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2017 vegna tekjuársins 2016 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafði gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum á skattframtölum bótaþega lögum samkvæmt. Kæranda hafi verið send tekjuáætlun vegna ársins 2016 með bréfi, dags. 11. janúar 2016, þar hafi verið gert ráð fyrir því að hann hefði 5.932 kr. í fjármagnstekjur og engar aðrar tekjur. Kærandi hafi ekki gert athugasemdir við tillögu Tryggingastofnunar og hafi því fengið greitt miðað við þessar forsendur allt árið 2016. Við bótauppgjör ársins 2016 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi verið hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlunum. Kærandi hafði 6.056.725 kr. í erlendar tekjur og 1.617 kr. í fjármagnstekjur. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2016 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greiddar 2.757.444 kr. en hefði átt að fá 11.637 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu, vegna tekjuársins 2016, að fjárhæð 2.252.012 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta.

Tryggingastofnun hafi borist umsókn kæranda um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu, dags. 24. júlí 2017. Samráðsnefnd um meðferð ofgreiðslna og vangreiðslna hafi tekið erindið til meðferðar á fundi og komið til móts við kæranda að hluta og krafa vegna ársins 2015 hafi verið felld niður.

Við vinnslu á umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu hafi verið óskað eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Meginástæða kröfunnar hafi verið erlendar tekjur sem komið hafi fram á íslensku skattframtali hans. Þar sem ekki hafi verið frekari upplýsingar um þær tekjur hafi þær verið flokkaðar sem aðrar tekjur hjá Tryggingastofnun. Með bréfum til kæranda, dags. 4. september 2017 og 17. október 2017, hafi stofnunin óskað eftir því að gerð yrði grein fyrir eðli þessara tekna þar sem að það gæti haft áhrif á rétt hans hjá stofnuninni. Kærandi hafi hringt 7. nóvember 2017 og upplýst að hann gæti ekki aflað þessara gagna þar sem þau væru ekki til.

Tryggingastofnun hafi talið ástæðu til þess að kanna hvort frekari upplýsingar væru hjá skattyfirvöldum. Svar skattyfirvalda hafi verið á þá leið að erlendar tekjur kæranda á árunum 2015 og 2016 hafi verið almenn laun frá B og hafi teknanna verið aflað í C. Á grundvelli þeirra upplýsinga hafi árin 2015 og 2016 verið endurreiknuð. Engar breytingar hafi orðið á árinu 2016 en krafa hafi myndast vegna ársins 2015.

Við afgreiðslu á beiðni kæranda um niðurfellingu hafi, ásamt fyrirliggjandi gögnum, meðal annars verið skoðuð ástæða ofgreiðslnanna, upplýsingar frá skattyfirvöldum um tekjur og eignir, að viðbættum þeim upplýsingum sem aflað hafi verið úr tölvukerfi stofnunarinnar um fjárhag og félagslega stöðu.

Í 55. gr. laga um almannatryggingar sé fjallað um innheimtu ofgreiddra bóta. Ákvæðið sé ekki heimildarákvæði um innheimtu heldur sé lögð sú skylda á Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur. Ákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé undanþáguheimild og sem slíkt skuli skýra það þröngt. Í þessu ákvæði felist að við ákvörðun um hvort fella eigi niður kröfu eigi að fara fram mat, annars vegar á fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum umsækjanda, með tilliti til getu hans til að endurgreiða skuldina, og hins vegar á því hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn þegar hann hafi tekið við hinum ofgreiddu bótum. Aðstæður þurfi að vera sérstakar svo að undanþáguheimild 11. gr. reglugerðarinnar eigi við. Ákvæðið sé undanþáguheimild og sem slíkt skuli skýra það þröngt samkvæmt almennum lögskýringarreglum.

Umræddar kröfur hafi orðið til við endurreikninga áranna 2015 og 2016. Eins og gögn málsins beri með sér sé ljóst að ástæða ofgreiðslnanna hafi verið rangar tekjuáætlanir. Krafan sé réttmæt. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs. Skilyrði reglugerðarinnar um góða trú verði að skoða í ljósi ábyrgðar lífeyrisþega á því að gefa réttar tekjuupplýsingar hverju sinni. Bótaþegi beri skýra ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur hans og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki. Þessi skylda bótaþega eigi ekki bara við þegar tekjuáætlun sé gerð heldur alltaf þegar einstaklingur fái bætur frá Tryggingastofnun. Kærandi hafi verið á örorkulífeyri frá 1. júní 2011 og hafi áður verið á endurhæfingarlífeyri. Kæranda hafi átt að vera að fullu ljóst að launatekjur hafi áhrif á réttindi hans til greiðslna Tryggingastofnunar.

Við mat á fjárhags- og félagslegum aðstæðum kæranda hafi einkum verið horft til þess að skuldir kæranda séu nokkrar miðað við eignir og einnig til mánaðarlegrar greiðslubyrðar. Ekki hafi þótt hægt að horfa fram hjá þeim verulegu launatekjum sem kærandi hafi verið með síðustu árin og þess að hann hafi ekki gert ráð fyrir þeim tekjum í tekjuáætlununum sínum. Það hafi því verið mat Tryggingastofnunar að rétt væri að koma til móts við kröfur kæranda á grundvelli fjárhags- og félagslegra aðstæðna kæranda, sbr. undanþáguákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Ákveðið hafi verið að fella niður kröfuna vegna ársins 2015, en halda kröfu vegna ársins 2016. Einnig hafi verið ákveðið í ljósi aðstæðna kæranda að dreifa eftirstöðvum verulega eða til 60 mánaða, en ekki þeirra 12 mánaða sem að jafnaði sé gert ráð fyrir að bótaþegar hafi til að endurgreiða ofgreiðslukröfu.

Tryggingastofnun hafi skoðað gögn málsins en telji ekki ástæðu til þess að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu.

Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita Tryggingastofnun þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru svo að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Þá er honum einnig skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Tryggingastofnun er heimilt, að fengnu samþykki viðkomandi, að afla nauðsynlegra upplýsinga um tekjur umsækjanda og greiðsluþega hjá skattyfirvöldum og fleirum, sbr. 40. gr. laga um almannatryggingar.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 7. mgr. 16. gr. laganna segir að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt greininni.

Kærandi hefur verið örorkulífeyrisþegi frá árinu X. Niðurstöður endurreikninga og uppgjöra áranna 2015 og 2016 voru þær að bætur til hans hefðu verið ofgreiddar, annars vegar að fjárhæð 1.904.802 kr. vegna ársins 2015 að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta og hins vegar að fjárhæð 2.252.012 kr. vegna ársins 2016 að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta. Af gögnum málsins verður ráðið að endurgreiðslukröfurnar megi rekja til rangrar tekjuáætlana kæranda vegna framangreinda ára.

Tryggingastofnun ber lögum samkvæmt að endurreikna bótafjárhæðir bótagreiðsluárs eftir að álagning skattyfirvalda á opinberum gjöldum hefur farið fram, sbr. fyrrgreinda 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Þá er meginreglan sú að stofnuninni ber að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laganna. Í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags er hins vegar að finna heimild til undanþágu frá endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ákvæðið hljóðar svo:

„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn.“

Framangreind 11. gr. reglugerðarinnar heimilar undanþágu frá endurgreiðslukröfu að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Aðstæður verða að vera sérstakar. Við mat á því hvort aðstæður séu sérstakar skal einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort bótaþegi hafi verið í góðri trú þegar hann tók við hinum ofgreiddu bótum. Tryggingastofnun ríkisins hefur hafnað því að heimild tilvitnaðs reglugerðarákvæðis eigi við í tilviki kæranda.

Í máli þessu er ekki deilt um réttmæti endurkrafnanna heldur lýtur ágreiningurinn að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að fella ekki niður að fullu framangreindar endurkröfur stofnunarinnar.

Úrskurðarnefnd velferðarmála lítur til þess við úrlausn þessa máls að örorkulífeyrir og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins sæta tekjuskerðingu og eru bótaþegar upplýstir um tekjutenginguna við upphaf lífeyristöku. Þá er bótaþegum gert að upplýsa um tekjur sínar á bótagreiðsluári í tekjuáætlun hvers árs. Eins og áður greinir gerir 39. gr. laga um almannatryggingar ráð fyrir að það komi í hlut þess aðila, sem bætur þiggur frá Tryggingastofnun, að upplýsa réttilega um tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári. Þannig hvílir sú ábyrgð á bótaþega að tekjuáætlun sé rétt. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið upplýstur um þessa skyldu sína. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefnd velferðarmála að kæranda hefði mátt vera kunnugt um áhrif teknanna á bótagreiðslur. Kærandi byggir á því í gögnum málsins að hann hafi fengið rangar upplýsingar frá Tryggingastofnun um að hann þyrfti ekki að upplýsa stofnunina um þessar erlendu tekjur sem leiddu til ofgreiðslna á umræddum árum. Erfitt er að segja til um hvað fór nákvæmlega fram á milli kæranda og starfsmanns Tryggingastofnunar ríkisins en engin gögn liggja fyrir í málinu sem staðfesta að kærandi hafi fengið rangar upplýsingar frá starfsmanni stofnunarinnar. Með hliðsjón af framangreindu er ekki fallist á að kærandi hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn í skilningi 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Kemur þá til skoðunar hvort fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda gefi tilefni til niðurfellingar. Í kæru kemur fram að kærandi geti ekki fengið sér aukavinnu þar sem hann sé óvinnufær. Þá segir í umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu að kærandi búi í [...]sem hann borgi 70.000 kr. í leigu fyrir og þegar allt sé tekið saman sé mánaðarleg greiðslubyrði hans 213.000 kr. Meðaltekjur kæranda á árinu 2017 voru samkvæmt staðgreiðsluskrá um 230.000 kr. á mánuði. Af gögnum málsins verður ráðið að kærandi sé eignalaus og skuldi um 2.000.000 kr. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst af framangreindu að fjárhagslegar aðstæður kæranda séu nokkuð bágbornar. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála leiðir það eitt og sér aftur á móti ekki sjálfkrafa til þess að allar kröfur séu felldar niður heldur þurfi að meta aðstæður kæranda heildstætt með hliðsjón af öllum þeim atriðum sem tilgreind eru í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Eins og áður hefur komið fram er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi ekki verið í góðri trú um greiðslurétt sinn. Þá verður ráðið af gögnum málsins að kröfurnar eru tilkomnar vegna umtalsverðra atvinnutekna kæranda á tveggja ára tímabili. Úrskurðarnefndin lítur einnig til þess að Tryggingastofnun hefur nú þegar fellt niður kröfu á hendur kæranda vegna ársins 2015 að fjárhæð 1.904.802 kr. Jafnframt horfir nefndin til þess að Tryggingastofnun hefur dreift eftirstöðvum af kröfunni á 60 mánuði í stað þess að kærandi þurfi að endurgreiða ofgreiðslukröfuna á tólf mánuðum eins og kveðið er á um í lögum. Að lokum lítur nefndin til þess að samkvæmt meginreglu 55. gr. laga um almannatryggingar skal Tryggingastofnun innheimta ofgreiddar bætur og ber að túlka undantekningu frá þeirri meginreglu þröngt samkvæmt almennum lögskýringarreglum. Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að ákvörðun Tryggingastofnunar um að fella niður um helming kröfu stofnunarinnar á hendur kæranda sé réttmætt.

Afgreiðsla Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Afgreiðsla Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni A, um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum