Hoppa yfir valmynd
4. september 2017 Matvælaráðuneytið

Tillögur stjórnvalda vegna erfiðleika í sauðfjárrækt

Í ljósi erfiðrar stöðu sauðfjárræktar á Íslandi leitaði forysta bænda til ráðherra í lok mars 2017 til að ræða mögulegar lausnir á vanda greinarinnar. Í upphafi óskuðu bændur m.a. eftir 200 m.kr. viðbótarframlagi til markaðsmála og að komið yrði á útflutningsskyldu að nýju en hún var felld niður á sínum tíma gegn greiðslu. Ýmsar tillögur að lausnum hafa litið dagsins ljós frá því að samtal stjórnvalda og bænda hófst og flestar þeirra tekið talsverðum breytingum eftir því sem staða greinarinnar hefur skýrst og ítarlegri gögn legið fyrir. Vegna hagsmuna neytenda hefur stefna ráðherra í þessum viðræðum ávallt verið að heimila ekki inngrip á markaði á borð við útflutningsskyldu en bændur hafa lagt mikla áherslu á nauðsyn þess að slíkum úrræðum verði beitt til að bregðast við erfiðri birgðastöðu. Í sama skyni hafa bændur lagt fram tillögur um að ríkið kaupi upp umframbirgðir af lambakjöti en ráðherra hefur ekki fallist á slíkar aðgerðir. Að þessum þáttum undanskildum hafa viðræðurnar gengið vel enda stjórnvöld og bændur sammála um að að við þeirri erfiðu stöðu sem nú er uppi þurfi að bregðast við með langtímalausnum enda er sauðfjárrækt ein af grunnatvinnugreinum þjóðarinnar sem nauðsynlegt er að styðja við.

Á fundi ríkisstjórnarinnar þann 18. ágúst 2017 lagði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fram minnisblað um mögulegar aðgerðir til stuðnings sauðfjárbændum, sama dag kynnti ráðherra efni minnisblaðsins fyrir atvinnuveganefnd Alþingis. Ríkisstjórnin ákvað að fela fulltrúum þriggja ráðuneyta að útfæra nánar þær hugmyndir sem þar voru settar fram. Tillögur hafa nú verið útfærðar en í þeirri vinnu hefur m.a. verið haft samráð við forystu Bændasamtaka Íslands og Landssamtaka sauðfjárbænda.

Meðfylgjandi tillögur um aðgerðir og áherslur fara til umfjöllunar og ákvörðunar á vettvangi Alþingis og samtaka bænda. Meginmarkið þeirra er að draga úr framleiðslu um 20%, mæta kjaraskerðingu bænda, styðja við sauðfjárbúskap á jaðarsvæðum og gera úttekt á birgðum sauðfjárafurða og afurðastöðvakerfinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum