Hoppa yfir valmynd
28. september 2018 Utanríkisráðuneytið

Fundarlotu mannréttindaráðsins lokið – 23 ályktanir samþykktar

Harald Aspelund, fastafulltrúi Íslands, og Edda Björk Ragnarsdóttir, starfsmaður fastanefndarinnar. - myndUtanríkisráðuneytið

39. fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf lauk í dag. Ísland tók þátt sem aðildarríki ráðsins í fyrsta skipti eftir að hafa verið kosið í ráðið í sérstökum aukakosningum í New York í sumar.

Mannréttindaráðið afgreiddi 23 ályktanir í dag og í gær. Þar ber einna hæst sérstaka ályktun um mannréttindaástandið í Mjanmar. Í henni er kveðið á um áframhaldandi starf rannsóknarnefndar á vegum ráðsins og hvatt til að ásökunum um þjóðarmorð á Róhingjum verði vísað til dómstóla. Ráðið samþykkti einnig nýja ályktun um Venesúela, en yfir tvær milljónir hafa flúið ástandið þar undanfarna mánuði. Þá ályktaði ráðið meðal annars um stöðu mála í Jemen, þar sem þúsundir hafa látist vegna stríðátaka og hungursneyð vofir yfir. Jafnframt voru samþykktar ályktanir um þverlæg málefni líkt og réttinn til vatns, öryggi blaðamanna og jafnan rétt til þátttöku í pólitísku lífi. 

„Það sýnir ákveðinn styrk ráðsins að geta tekist á við ólík og erfið mál með viðeigandi aðgerðum, líkt og í þessum ríkjum. Ályktanirnar undirstrika jafnframt að við sem alþjóðasamfélag getum ekki látið brot á mannréttindum viðgangast og þeir sem fremji slík brot verði dregnir til ábyrgðar. Við fundum það einnig í þessari lotu að horft er til Íslands, sérstaklega í jafnréttismálum. Í því felst viðurkenning en jafnframt ábyrgð og ánægjulegt að geta axlað hana,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. 

Fulltrúar Íslands fluttu alls fjórtán ávörp í umræðum í mannréttindaráðinu í þessari fundarlotu. Þar fyrir utan átti Ísland aðild að fjórum norrænum ræðum, fimm ræðum sem fluttar voru í nafni NB8-ríkjahópsins (Norðurlanda og Eystrasaltsríkja) og auk þess einni sem fjallahópurinn svokallaði (Kanada, Ástralía, Ísland, Liechtenstein, Nýja-Sjáland, Noregur og Sviss) flutti sameiginlega. 

Allar ræður Íslands eru aðgengilegar á vef Stjórnarráðsins. Mannréttindaráðið birtir yfirlit um niðurstöðu atkvæðagreiðslna á vefsíðu sinni. 

Næst á dagskrá mannréttindaráðsins er sérstök umræða um styrkingu ráðsins og svo jafningarýni þess (UPR) þar sem fjallað verður um fjölda ríkja. Sem fyrr tekur Ísland virkan þátt í jafningarýninni.


Fulltrúar Íslands hafa staðið vaktina í mannréttindaráðinu undanfarnar þrjár vikur. Mynd: Utanríkisráðuneytið. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum