Hoppa yfir valmynd
30. desember 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stefna í lánamálum ríkisins 2020-2024

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út stefnu í lánamálum ríkisins 2020-2024. Stefnan er sett fram árlega á grundvelli fjármálaáætlunar í samræmi við 38. gr. laga nr.123/2015 um opinber fjármál. Stefnan gildir til 5 ára og byggir hún á fyrri stefnu sem gefin var út í desember 2018.

Stefna í lánamálum endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á tímabilinu. Leitast er við að marka skýra stefnu í lánamálum og setja fram mælanleg markmið. Stefnan skapar þannig umgjörð fyrir aðgerðir í lánastýringu og er meginmarkmið hennar að tryggja að lánsfjárþörf og fjárhagslegum skuldbindingum ríkissjóðs sé mætt með lágmarkskostnaði að teknu tilliti til varfærinnar áhættustefnu.

Í stefnunni er lýst markmiðum við lánastýringu, viðmiðum við stýringu lánamála, núverandi samsetningu lána ríkissjóðs, helstu áhættuþáttum við lánastýringu og áhættuskuldbindingum ríkissjóðs. Þá er lýst skipulagi við framkvæmd lánamála og hvernig upplýsingagjöf til markaðsaðila og fjárfesta er háttað.

Lítilsháttar breyting er á viðmiðum fyrir samsetningu lánasafns ríkissjóðs í heild frá fyrra ári þannig að hlutur óverðtryggðra lána verður 50-70% af lánasafni og hlutur verðtryggðra lána 20-30% af lánasafni. Hlutfall erlendra lána er óbreytt, 10-20% af lánasafni.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum