Hoppa yfir valmynd
10. september 2021 Innviðaráðuneytið

Fjórar nýjar brýr sunnan Vatnajökuls leysa einbreiðar brýr af hólmi

Opnunarathöfn Vegagerðarinnar var haldin á nýrri brú yfir Steinavötn en auk hennar voru formlega opnaðar brýr yfir Fellsá, Kvíá og Brunná. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, opnuðu í dag með formlegum hætti fjórar nýjar brýr á Hringveginum sunnan Vatnajökuls. Þetta eru brýr yfir Steinavötn, Fellsá, Kvíá og Brunná en með tilkomu þeirra leggjast af fjórar einbreiðar brýr á Hringveginum og fækkar úr 36 brúm í 32. Bygging brúanna var boðin út árið 2019 en framkvæmdum lauk í ár.

Einbreiðum brúm mun fækka meira á næstu árum. Vinna er þegar í gangi við Jökulsá á Sólheimasandi og við Núpsvötn og Hverfisfljót og að þeim framkvæmdum loknum verða einbreiðar brýr 29 talsins á Hringveginum. Þegar Hringvegurinn verður færður og styttur með nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót fækkar þeim um þrjár til viðbótar. Útboðsferli vegna framkvæmda við Hornafjarðarfljót stendur yfir en niðurstöður munu liggja fyrir um næstu áramót og framkvæmdir hefjast á næsta ári. Þá eru áform um að framkvæmdir við fimm brýr til viðbótar fari af stað fyrir árið 2024.

„Ég hef í ráðherratíð minni lagt mikla áherslu á að fækka einbreiðum brúm til að auka umferðaröryggi, jafnt fyrir landsmenn og erlenda gesti sem eru óvanir íslensku vegakerfi. Þessi áhersla birtist með skýrum hætti í gildandi samgönguáætlun en eitt af forgangsmarkmiðum hennar er að fækka einbreiðum brúm á umferðarmestu vegum landsins. Alls er áformað að verja hátt í 6 milljörðum króna til að fækka einbreiðum brúm í vegakerfinu á næstu árum,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við opnunarathöfn Vegagerðarinnar fyrr í dag.

„Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við allt að fimm brýr til viðbótar fari af stað fyrir árið 2024. Eru það nýjar brýr yfir Búlandsá, Gjádalsá, Selá í Álftafirði, Hvaldalsá og Krossá á Berufjarðarströnd. Þá er nýr Hringvegur um Hornafjörð í útboðsferli sem mun fækka einbreiðum brúm um þrjár til viðbótar,“ sagði ráðherra.

Skipulega hefur verið unnið að því á síðustu árum að fækka einbreiðum brúm bæði á Hringvegi (1) og um landið allt. Árið 1990 voru einbreiðar brýr á Hringvegi hátt í 140 talsins. Þeim fækkaði hratt og voru orðnar um 60 í kringum 2006 og 42 árið 2011. Í dag eru einbreiðar brýr á Hringvegi (1) 32 talsins og fækkar enn á næstu árum sem fyrr segir.

Flestar einbreiðar brýr eru á Hringvegi á Austursvæði Vegagerðarinnar eða 26, en gæti fækkað niður í 19 árið 2024 ef áætlanir ganga eftir. Einungis tvær einbreiðar brýr eru á Hringvegi á Norðursvæði Vegagerðarinnar og 4 á Hringvegi á Suðursvæði.

  • Kvennakór Hornafjarðar söng á nýrri brú yfir Steinavötn við athöfn þegar brýrnar fjórar voru teknar formlega í notkun. Kórinn hefur tekið lagið á öllum einbreiðum brúm á svæðinu til að styðja við fækkun þeirra. - mynd
  • Gestir á opnunarathöfn Vegagerðarinnar á nýju brúnni yfir Steinavötn. - mynd
  • Gestir á opnunarathöfn Vegagerðarinnar á nýju brúnni yfir Steinavötn. - mynd
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. - mynd
  • Nýju brýrnar fjórar sunnan Vatnajökuls. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum