Hoppa yfir valmynd
18. september 2015 Utanríkisráðuneytið

Ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur ekki í samræmi við utanríkisstefnu Íslands

Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í vikunni að fela skrifstofu borgarstjóra í samvinnu við innkaupadeild Reykjavíkurborgar að undirbúa og útfæra sniðgöngu Reykjavíkurborgar á ísraelskum vörum meðan hernám Ísraelsríkis á landsvæði Palestínumanna varir, eins og það er orðað í samþykkt borgarstjórnar. 

Utanríkisráðuneytinu, sendiskrifstofum Íslands erlendis og Íslandsstofu hefur af þessu tilefni borist verulegur fjöldi fyrirspurna um afstöðu stjórnvalda til samþykktar borgarstjórnar. Þá hafa ferðaþjónustuaðilar lýst yfir áhyggjum sínum vegna málsins og þegar hefur orðið vart við afpantanir ferða.

Sveitarstjórnir eru eins og önnur stjórnvöld bundin af lögum. Í því felst að Reykjavíkurborg verður að haga stjórnsýslu sinni í samræmi lög og að ákvarðanir hennar mega ekki fara í bága við þau, þ. á m. lög um opinber innkaup, þar sem óheimilt er að mismuna fyrirtækjum á grundvelli þjóðernis eða af öðrum sambærilegum ástæðum.

Samþykki Reykjavíkurborg að breyta innkaupastefnu sinni með bindandi hætti þannig að ísraelskir birgjar skuli sniðgengnir, samræmist það hvorki íslenskum lögum né ákvæðum í alþjóðlegum skuldbindingum alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup, sem Ísland er aðili að og Reykjavíkurborg og önnur sveitafélög eru bundin af.

Utanríkisráðuneytið áréttar að ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur er ekki í samræmi við utanríkisstefnu Íslands og er heldur ekki til marks um tengsl Íslands og Ísraels.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum