Hoppa yfir valmynd
1. október 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 327/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 327/2020

Fimmtudaginn 1. október 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. júní 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. júní 2020, um 65% bótarétt.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 9. apríl 2020. Með ákvörðun, dags. 22. júní 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 65%.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. júní 2020. Með bréfi, dags. 1. júlí 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 13. ágúst 2020, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 17. ágúst 2020, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að bótaréttur hans hefði verið ákvarðaður 65%, þrátt fyrir að hann hafi verið í 100% starfi við eigin rekstur. Kærandi óski því eftir leiðréttingu á bótarétti en hann hafi aldrei áður þurft að leita til Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Kærandi hafi starfað hjá eigin fyrirtæki áður en hann hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga. Í 2. mgr. 16. gr. nr. 54/2006 segi að þegar um sé að ræða launamann sem starfi hjá eigin félagi, svo sem einkahlutafélagi eða samlagsfélagi, skuli miða við reglur Ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald við mat á bótarétti einstaklinga. Með ákvæðinu sé kveðið skýrt á um að þegar um sé að ræða umsækjendur um atvinnuleysisbætur sem hafi starfað hjá eigin félagi á ávinnslutímabilinu skuli miða við reglur Ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald í viðkomandi starfsgrein.

Útreikningur bótaréttar þeirra sem starfi hjá eigin fyrirtækjum eða sem sjálfstætt starfandi einstaklingar fari eftir 19. gr. laga nr. 54/2006. Vinnumálastofnun beri að reikna bótarétt kæranda út frá þeim launum sem hann hafi reiknað sér vegna vinnu sinnar. Ef endurgjald nái ekki lágmarksviðmiðum Ríkisskattstjóra ákvarðist bótaréttur af hlutfalli endurgjalds sem greitt hafi verið af og viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra. Kærandi geti því einungis átt hlutfallslegan rétt til bóta ef reiknað endurgjald sé lægra en viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein. Starf kæranda falli undir tekjuflokk C9 samkvæmt reglum um reiknað endurgjald, samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. 58. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Viðmiðunartekjur Ríkisskattstjóra fyrir tekjuflokk C9 vegna ársins 2020 hafi verið 485.000 kr. á mánuði og á árinu 2019 465.000 kr. á mánuði. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi laun hans verið mismunandi á milli mánaða. Launin hafi sjaldnast numið lágmarks viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra og því beri Vinnumálastofnun að ákvarða tryggingarhlutfall kæranda af hlutfalli launa og viðmiðunarfjárhæðar. Samkvæmt skýru ákvæði 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri að byggja útreikning á bótarétti á þeim mismuni. Meðaltal hæstu launa kæranda á ávinnslutímabili nemi 65% af viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra í tekjuflokki C9. 

Með hliðsjón af ofangreindum sjónarmiðum sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að tryggingarhlutfall kæranda sé rétt reiknað 65%. 

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um 65% bótarétt kæranda.

Í 1. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Í 2. gr. laganna kemur fram að markmið þeirra sé að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt. Sjálfstætt starfandi einstaklingur er hver sá sem starfar við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í því umfangi að honum sjálfum er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt reglum Ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald, skil á staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi og tryggingagjaldi vegna starfs síns, sbr. b-lið 3. gr. laganna.

Óumdeilt er að kærandi var sjálfstætt starfandi áður en hann sótti um atvinnuleysisbætur. Í IV. kafla laga nr. 54/2006 er fjallað um skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga. Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. telst sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr., að fullu tryggður samkvæmt lögunum eftir að hafa greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald samfellt á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar að öðrum skilyrðum uppfylltum, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr. Í 2. mgr. 19. gr. segir svo um útreikning bótaréttar:

„Sjálfstætt starfandi einstaklingur, sem greitt hefur mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald skemur en tólf mánuði en þó lengur en þrjá mánuði á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar, telst tryggður hlutfallslega í samræmi við fjölda þeirra mánaða sem hann hefur greitt staðgreiðsluskatt að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr. Hið sama gildir um sjálfstætt starfandi einstakling sem hefur greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi sem er lægra en viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar en þá ákvarðast tryggingahlutfall hans af hlutfalli fjárhæðar reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið af og viðmiðunarfjárhæðar, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr.“

Samkvæmt framangreindu ber Vinnumálastofnun að reikna bótarétt sjálfstætt starfandi einstaklings út frá þeim launum sem viðkomandi reiknar sér vegna vinnu sinnar. Ef reiknað endurgjald atvinnuleitanda nær ekki lágmarksviðmiðum Ríkisskattstjóra ákvarðast bótaréttur af hlutfalli reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið af og viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra. Umsækjandi um atvinnuleysisbætur getur því einungis átt hlutfallslegan rétt til bóta ef reiknað endurgjald er lægra en viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein.

Starf kæranda fellur undir tekjuflokk C9 samkvæmt reglum um reiknað endurgjald, settum á grundvelli 3. málsl. 1. mgr. 58. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Viðmiðunartekjur Ríkisskattstjóra fyrir tekjuflokk C9 vegna ársins 2020 eru 485.000 kr. á mánuði og voru 465.000 kr. á mánuði á árinu 2019. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum voru laun kæranda mismunandi á milli mánaða. Kærandi greiddi oftast staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi sem nam lægri fjárhæð en viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra. Samkvæmt skýru ákvæði 19. gr. laga nr. 54/2006 bar Vinnumálastofnun því að byggja útreikning á bótarétti kæranda af hlutfalli launa og viðmiðunarfjárhæðar. Meðaltal hæstu launa kæranda á ávinnslutímabili námu 65% af viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra í tekjuflokki C9. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um 65% bótarétt kæranda staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. júní 2020, um 65% bótarétt A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum