Hoppa yfir valmynd
30. ágúst 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Úthlutun styrkja vegna fráveituframkvæmda sveitarfélaga

Plast á strönd - myndHeidi Orava/norden.org

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til sveitarfélaga vegna framkvæmda við fráveituverkefni fyrir árin 2020, 2021 og 2022. Umsóknir bárust frá 30 sveitarfélögum vegna 51 fráveituverkefnis og er áætlaður heildarkostnaður vegna þeirra um 4,3 milljarðar króna.

Styrkirnir eru veittir á grundvelli reglugerðar um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga.  Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við sniðræsi frá safnkerfum fráveitna, hreinsi­virki, dælustöðvar og útrásir.  Jafnframt eru styrkhæfar framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts.

 

„Fráveitumál eru mikilvæg umhverfismál, en fráveituframkvæmdir geta verið umfangsmiklar og dýrar. Það er því mikilvægt að ríkið styðji við málaflokkinn svo sveitarfélög geti gert átak í fráveitumálum og dregið með aukinni hreinsun skólps úr mengun vatns og sjávar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Áætlaðar styrkveitingar vegna framkvæmda sveitarfélaganna við fráveituframkvæmdir á árunum 2020, 2021 og 2022 nema tæplega 1.000 milljónum króna. Styrkfjárhæð vegna seinna uppgjörs 2022 er sett fram með fyrirvara um ákvörðun Alþingis um fjárveitingu í fjárlögum 2023.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum