Hoppa yfir valmynd
4. maí 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 184/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 4. maí 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 184/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22040043

 

Beiðni um endurupptöku í máli [...]

 

  1. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í stjórnsýslumáli nr. KNU21070060, dags. 21. október 2021, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar frá 29. júní 2021, um að taka umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Gambíu (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

    Niðurstaða kærunefndar var birt fyrir kæranda hinn 25. október 2021. Hinn 1. nóvember 2021 barst beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar sem synjað var með úrskurði hinn 17. nóvember 2021. Hinn 2. apríl 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku og var þeirri beiðni synjað með úrskurði kærunefndar í máli nr. KNU22040002, dags. 13. apríl 2022. Hinn 22. apríl 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku að nýju. Hinn 28. apríl 2022 bárust upplýsingar frá Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda.

    Endurupptökubeiðni kæranda byggir á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

     

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Kærandi fjallar í greinargerð sinni um 1. mgr. 29. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin) en þar sé mælt fyrir um tiltekna fresti er varðar flutning umsækjenda um alþjóðlega vernd milli aðildarríkja. Frestur til að flytja kæranda samkvæmt greininni hafi runnið út hinn 21. apríl 2022 og því sé farið fram á endurupptöku málsins hjá kærunefnd útlendingamála með vísan til 24. gr. stjórnsýslulaga. Þá er þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland Dyflinnarreglugerðina, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Hinn 13. apríl 2021 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 26. apríl 2021, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Við rekstur máls sem fer samkvæmt fyrirkomulagi Dyflinnarreglugerðarinnar þurfa stjórnvöld að gæta að tilteknum tímafrestum, sbr. m.a. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um fyrirkomulag og fresti. Í því ákvæði felst m.a. að flutningur á umsækjanda skal fara fram innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru eða endurskoðun. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að framlengja frest til flutnings í að hámarki 18 mánuði ef hlutaðeigandi einstaklingur hleypst á brott (e. abscond). Ef umræddir frestir líða leiðir það til þess að ábyrgð á viðkomandi umsókn um alþjóðlega vernd færist sjálfkrafa yfir til þess aðildarríkis sem leggur fram beiðni, sbr. til hliðsjónar dómur Evrópudómstólsins í máli Shiri, C-201/16, frá 25. október 2017 (26.-34. mgr. dómsins). Ef frestir samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar líða er íslenskum stjórnvöldum því ekki lengur heimilt að krefja viðkomandi ríki um viðtöku einstaklings í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í úrskurði kærunefndar í máli nr. KNU19040090 frá 9. maí 2019 ákvað kærunefnd að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Eins og að framan greinir samþykktu ítölsk stjórnvöld endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda hinn 26. apríl 2021. Þá var endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi birt fyrir kæranda hinn hinn 25. október 2021. Rann því upphaflegur sex mánaða frestur til þess að flytja kæranda úr landi út hinn 25. apríl 2022.

Hinn 28. apríl 2022 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um flutning kæranda til viðtökuríkis, s.s. hvort frestur til flutnings hafi verið framlengdur úr sex mánuðum í 18 mánuði, sbr. 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Svar við fyrirspurn kærunefndar barst hinn 28. apríl 2022 en þar kemur fram að frestur til flutnings hafi ekki verið framlengdur.

Samkvæmt framangreindu er frestur til að flytja kæranda til viðtökuríkis liðinn samkvæmt 1. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Af því leiðir að ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd fluttist yfir á íslensk stjórnvöld þegar umræddur frestur leið og því er ekki lengur hægt að krefja viðtökuríkið um að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þar sem íslensk stjórnvöld bera nú ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd fellst kærunefnd á með kæranda að atvik í máli hans hafi breyst verulega frá því að úrskurður nefndarinnar var kveðinn upp og því sé rétt að mál kæranda verði endurupptekið, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Með vísan til framangreinds verður ákvörðun Útlendingastofnunar frá 29. júní 2021 felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.


 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                 Gunnar Páll Baldvinsson


 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum