Hoppa yfir valmynd
4. mars 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 96/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 4. mars 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 96/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20110059

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 24. nóvember 2020 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Íraks (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. nóvember 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi gerir kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í öðru lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Verði ekki fallist á það er þess krafist í þriðja lagi að umsóknin verði tekin til efnismeðferðar með vísan til 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 24. ágúst 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 29. ágúst 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þá kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 19. febrúar 2019. Við umsókn framvísaði kærandi dvalarleyfisskírteini frá Grikklandi með gildistíma frá 1. mars 2019 til 28. febrúar 2022 og flóttamannavegabréfi gefnu út af grískum stjórnvöldum með gildistíma til 12. júlí 2025. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 28. september 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 6. nóvember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 10. nóvember 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 24. nóvember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 3. desember 2020, ásamt fylgiskjölum. Þá bárust frekari gögn 7. janúar og 3. febrúar  2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Um málavexti vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar en þar kemur m.a. fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi hann greint frá því að hann hafi verið við góða heilsu fram til ársins 2015 þegar hann hafi lamast á annarri hlið líkamans. Kærandi hafi í kjölfarið leitað til fjölda lækna í mörgum löndum en ekki fengið bót meina sinna. Kærandi taki inn lyf að staðaldri og fái það sem hann kalli köst þar sem hann missi stjórn á vöðvum nær daglega auk þess sem hann tali hægar en áður sem hafi áhrif á andlega heilsu hans. Kærandi hafi greint frá því að aðstæður í Grikklandi hafi verið erfiðar, hann hafi fengið fjárstuðning á meðan hann hafi verið umsækjandi um alþjóðlega vernd en misst stuðninginn um leið og hann hafi fengið vernd. Kærandi hafi þurft að hafast við á götunni eða í ónýtri byggingu sem hafi verið án rafmagns. Þá hafi engin störf verið í boði og kærandi ekki fengið stuðning hjá hinu opinbera til að læra grísku. Jafnframt hafi kærandi ekki átt rétt á félagslegri aðstoð sökum þess að hann hafi ekki getað sýnt fram á leigusamning vegna húsnæðis. Kærandi hafi orðið fyrir aðkasti í Grikklandi af hálfu múslima vegna trúskipta hans. Þá hafi kærandi upplifað óeðlileg afskipti lögreglunnar í Grikklandi og kynþáttafordóma af þeirra hálfu gagnvart sér. Kærandi hafi greint frá því að aðalástæða þess að hann hafi yfirgefið Grikkland hafi verið vegna skorts á fullnægjandi heilbrigðisþjónustu en hann hafi þurft að hitta taugasérfræðing sem hann hafi ekki átt kost á þar í landi. Þá hafi kærandi átt í erfiðleikum með að fá endurnýjun lyfja sem hann taki inn.

Kærandi gerir nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við það að ekki hafi verið beðið eftir áliti og gögnum frá sérfræðingi en hann hafi greint frá því í greinargerð sinni til stofnunarinnar að gögn myndu vera lögð fram um leið og þau bærust. Kærandi vísar til þess að tiltekin heilbrigðisaðstoð handa umsækjendum um alþjóðlega vernd hér á landi sé háð því að Útlendingastofnun veiti samþykki sitt fyrir því að hún verði veitt. Kærandi telur það óforsvaranlegt að Útlendingastofnun hafi tekið ákvörðun í málinu án þess að leyfa honum að hitta sérfræðing. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að miðað við gögn málsins hafi kærandi getað leitað sér aðstoðar og m.a. fengið lyf á Grikklandi. Kærandi vísar til þess að hann hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að aðalástæða þess að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands sé sú að hann hafi ekki fengið fullnægjandi aðgang að heilbrigðisaðstoð þar í landi. Þá gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á áhrifum heimsfaraldursins og umfjöllun um úrskurð kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020. Kærandi vísar til þess að ástandið í Grikklandi sé afar slæmt vegna Covid-19 og telur að hvorki séu forsendur né lagaskilyrði til staðar til að víkja frá fyrri fordæmi kærunefndar. Jafnframt gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að hann hafi ekki verið talinn einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 3. tölul. 6. gr. laga um útlendinga en hann sé flogaveikur og þarfnist lyfjagjafar vegna þess.

Kærandi byggir á því að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar hér á landi vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en ákvæðið leggi þá skyldu á íslensk stjórnvöld að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef sérstakar ástæður mæli með því. Kærandi telur að íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hann, líkamlegar og andlegar, auk þess sem þurfi að meta hvort kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sbr. 25. gr. sömu laga. Kærandi fjallar um reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga. Kærandi vísar til 32. gr. a reglugerðarinnar þar sem fjallað sé um sérstakar ástæður og bendir á að með vísan til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020, frásagnar hans og heimilda sem vísað sé til í svokölluðu fylgiskjali með greinargerð hans sé fullvíst að hann verði fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi verði honum gert að snúa þangað aftur. Ennfremur verði staða hans verulegra síðri en staða almennings í Grikklandi í ljósi stöðu hans sem flóttamanns og kynþáttar. Þar sem aðgangur umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi sé erfiðleikum bundinn séu líkur á að kærandi fái ekki nauðsynlega aðstoð vegna flogaveiki sinnar. Jafnframt vísar kærandi til þess að þau viðmið sem sett séu fram í ákvæði 32. gr. a reglugerðarinnar séu nefnd í dæmaskyni og því sé þar ekki að finna tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður séu til staðar. Kærandi telur að með tilliti til ástands flóttamannamála í Grikklandi, þeirrar mismununar sem kærandi hafi mætt og megi búast við að mæta, snúi hann aftur til Grikklands, erfiðu aðgengi að félagsaðstoð og heilbrigðisþjónustu í landinu og sérstaklega viðkvæmrar stöðu hans séu horfur hans svo slæmar að ekki sé unnt að endursenda hann í slíkar aðstæður. Þá séu allar líkur á að kærandi muni verða fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi líkt og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum kveði á um. Kærandi fer jafnframt fram á að kærunefnd kanni aðstæður í Grikklandi og hvernig aðstæður flóttafólks hafi breyst í kjölfar faraldursins, þá sér í lagi þeirra sem fengið hafa dvalarleyfi í Grikklandi á grundvelli alþjóðlegrar verndar.

Krafa kæranda byggir í öðru lagi á því að ótækt sé að beita heimildinni í a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. sömu laga. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement eða banni við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu eða líkur séu á að það muni sæta pyndingum eða ómannúðlegri meðferð. Kærandi vísar til þess að lýsingar hans á aðstæðum sínum komi heim og saman við opinberar heimildir um aðstæður þar í landi hvað varðar húsnæði, atvinnu, félagslega þjónustu, heilbrigðisþjónustu, aðbúnað og mismunun. Kærandi telur að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Að auki myndi ákvörðun um að senda kæranda til Grikklands brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 7. gr. alþjóðsamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Krafa kæranda er í þriðja lagi byggð á því að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka mál kæranda til efnismeðferðar með vísan til 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar. Kærandi vísar til þess að frá árinu 2010 hafi íslensk stjórnvöld ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en annað gildi um þá sem hlotið hafi alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi vísar til fyrrnefnds fylgiskjals með greinargerð sinni þar sem vitnað sé til fjölmargra skýrslna þar sem fram komi að staða viðurkennds flóttafólks með gilt dvalarleyfi í Grikklandi sé síst skárri en þeirra sem bíði niðurstöðu í máli sínu. Raunar missi einstaklingar húsnæði, framfærslu og ýmsa aðra aðstoð þegar þeir fá umsókn sína um alþjóðlega vernd samþykkta. Kærandi telur því engar málefnalegar ástæður fyrir því að gera greinarmun á þessum tveimur hópum lengur.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og fékk útgefið dvalarleyfi með gildistíma til 28. febrúar 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 11. mars 2020);

·         Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);

·         Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2020);

·         Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);

·         EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);

·         Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);

·         Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);

·         Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);

·         Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);

·         Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);

·         Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

·         World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);

·         Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 4. mars 2021) og

·         Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 4. mars 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu undir sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hefur útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi fengu allir umsækjendur um alþjóðlega vernd svokallað AMKA eða kennitölu (g. Αριθμός Μητρώου Κοινωνικής Ασφάλισης) sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 breyttust skilyrði fyrir útgáfu kennitalna (AMKA) og fá umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer (g. Προσωρινός Αριθμός Ασφάλισης και Υγειονομικής Περίθαλψης Αλλοδαπού) sem er tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fá útgefið kennitölu (AMKA) sem telst varanlegt úrræði. Þegar umsækjandi hlýtur alþjóðlega vernd í Grikklandi verður heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hlýtur dvalarleyfi. Einstaklingar geta þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfa einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá kennitölu gefna út er nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið kynntar lagabreytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveða á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhafar alþjóðlegrar verndar sem dvelja í svokölluðu ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, er skylt að yfirgefa þau innan 30 daga. Þó eru undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um er að ræða fólk sem glímir við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði uppá gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði eru í Grikklandi eru t.d. bætur fyrir fjölskyldur (e. Family allowance) en skilyrði fyrir slíkum bótum er að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veita grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk (g. Κοινωνικό Επίδομα Αλληλεγγύης, KEA). Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfa m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá eru engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði í reynd. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki er þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi er hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga ásamt erfiðleikum við að fá skattnúmerið (g. Αριθμός Φορολογικού Μητρώου, AFM) útgefið dregur úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Samkvæmt rannsókn frá 2018 hafi þeir flóttamenn sem hafi verið með atvinnu þar í landi venjulega verið í óskráðu starfi sem leiðir m.a. til þess að þeir hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur reiða sig á dreifingu matvæla, muna og fjárhagsaðstoð við grunnþörfum sínum. Þetta leiðir oft til þess að einstaklingar fari út í ólöglega tekjuöflun sem hindrar þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega á Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fer einungis fram á grísku en umsækjendur geta leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála á síðasta ári fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir skv. lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku tungumáli. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu lengdist töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó þurfi enn frekari aðgerðir. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára einstæður karlmaður. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 18. september 2020, kemur fram að kærandi kveðist reglulega fá flogaköst og taki inn lyf að staðaldri vegna þess. Þá kemur fram í samskiptaseðli frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 9. október 2020, að kærandi hafi verið greindur með járnskort og verið ávísað lyfjum vegna þess auk þess hafi hann fengið tilvísun til taugalæknis vegna flogakastanna. Kærandi hafi einnig leitað til Heilsugæslunnar Efstaleiti þann 9. nóvember 2020, þar sem gerð hafi verið tilvísun til taugalæknis hjá Læknasetrinu. Þá kemur fram í komunótu frá heilsugæslunni Hlíðum, dags. 3. febrúar 2021 að kærandi hafi fengið nýja tilvísun til taugalæknis. Í tölvupósti frá talsmanni kæranda, dags. 23. febrúar 2021, kemur fram að Læknasetrið Þönglabakka hafi hafnað að taka við kæranda en 11. febrúar sl. hafi Heilsugæslan Hlíðum gert aðra tilvísun til taugalæknis á Landspítalanum. Jafnframt hefur kærandi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi átt erfitt andlega vegna heilsufarsvandamála sinna. Þá liggur fyrir skimunarlisti sem lagður var fyrir kæranda um andlega líðan hans.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2020 um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands, jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 4. janúar 2021, um framlagningu frekari gagna í málinu. Bárust frekari gögn um heilsufar 7. janúar og 3. febrúar sl.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra upplýsinga, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Þar kemur fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja á til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð. 

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Þá skuli líta til þess, í tilviki þungunar, hvort umsækjanda standi til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til gagna frá heilbrigðisstarfsfólki sem sýna fram á slíkt og, telji kærunefnd að umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, hlutlægra og trúverðugra gagna sem sýna fram á að sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandi þarfnast sé ekki í boði í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun að neðan.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og sú aðstoð sem hann hefur notið hér á landi verið rakin. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi auk þess sem aðgengi hans að heilbrigðisþjónustu hafi ekki verið fullnægjandi. Af framlögðum heilsufarsgögnum má sjá að kærandi taki inn lyf að staðaldri vegna flogakasta. Jafnframt hafi hann fengið tilvísanir til taugalæknis vegna flogakastanna.

Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Eins og komið hefur fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar, m.a. hvað varðar grunnheilbrigðisþjónustu, félagslega aðstoð og rétt til að stunda atvinnu. Aftur á móti, líkt og að framan greinir og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að sækja réttindi sín, t. a. m. við að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Þá hafi gögn bent til þess að útgáfa kennitalna (AMKA) til flóttamanna hafi falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu í landinu. Það er þó almennt mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá hefur kærunefnd talið það sama eiga við um útgáfu kennitalna til flóttamanna. Í fyrrgreindum málum var það þó m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna.

Í því máli sem hér er til meðferðar fær kærandi, samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum, reglulega flogaköst og þarf að taka inn lyf að staðaldri vegna þess.

Í hinni kærðu ákvörðun fjallaði Útlendingastofnun um aðgengi flóttafólks að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Er þar m.a. rakið að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi rétt á heilbrigðisþjónustu til jafns við gríska ríkisborgara. Þá rakti Útlendingastofnun þau heilsufarsgögn sem lágu fyrir í málinu en þar er m.a. vikið að flogaköstum kæranda. Með tölvupósti, dags. 18. febrúar 2021, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um hvort að upplýsingar hafi legið fyrir um hvort kærandi hefði kennitölu og skattnúmer í Grikklandi fyrir ákvarðanatöku í máli hans. Samkvæmt svari frá Útlendingastofnun, dags. 19. febrúar 2021, lágu ekki fyrir upplýsingar um það hvort kærandi hefði haft kennitölu og skattnúmer, utan þess sem hann greindi frá í viðtali, en þar nefndi kærandi að hann hefði verið með heilbrigðisnúmer (e. health number) og greitt skatt. Af viðtali við kæranda má ráða að hann hafi fengið umrætt heilbrigðisnúmer meðan hann dvaldi í flóttamannabúðum og var enn umsækjandi um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Telur því kærunefnd að ummæli kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun veiti ekki fullnægjandi sönnun fyrir því að kærandi hafi haft kennitölu og skattnúmer

í Grikklandi. Þá má sjá af grísku heilsufarsskírteini (e. Medical Passport) sem kærandi hefur lagt fram, að búið sé að handskrifa AMKA á eina síðu skírteinisins. Kærunefnd telur að það eitt og sér geti ekki verið fullnægjandi sönnun um það að kærandi sé handhafi kennitölu (AMKA) í Grikklandi.

Af gögnum málsins má ráða að heilsufar kæranda sé þess eðlis að þörf sé á eftirfylgni og lyfjagjöf en ekki liggur fyrir greining eða álit læknis eða heilbrigðisstarfsmanna á alvarleika veikinda kæranda eða afleiðingum þess fyrir kæranda ef slík eftirfylgni og meðferð verði ekki veitt. Kærunefnd telur sig ekki vera í aðstöðu til að draga nægilega skýrar ályktanir af þeim læknisfræðilegu gögnum sem þó liggja fyrir í málinu um alvarleika veikinda kæranda og hvaða afleiðingar það hafi fái hann ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Kærunefnd telur að í ljósi þess, þeirra aðgangshindrana sem geti verið til staðar að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og fjallað hefur verið um hér að framan og þess álags sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á heilbrigðiskerfið í Grikklandi hafi einnig verið sérstakt tilefni fyrir Útlendingastofnun til að afla upplýsinga um hvort kærandi hefði kennitölu í Grikklandi ásamt því að kanna hvort hann hefði skattnúmer þar í landi. Kærunefnd telur í ljósi framangreinds að nægilega skýrar upplýsingar um þessa þætti málsins hafi þurft að liggja fyrir áður en að ákvörðun hafi verið tekin í máli kæranda og telur kærunefnd að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið áfátt að þessu leyti. Kærunefnd telur að þessi skortur á fullnægjandi rannsókn gæti hafa haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar.

Er það mat kærunefndar að með framangreindum annmörkum á meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun hafi stofnunin ekki fullnægt skyldu sinni skv. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

 


 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum