Hoppa yfir valmynd
13. mars 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Fyrirhuguð breyting á starfsaldursmörkum heilbrigðisstarfsfólks

Alþingishúsið
Alþingishúsið

Heilbrigðisstarfsmönnum verður heimilt að veita heilbrigðisþjónustu á eigin starfsstöð til 75 ára aldurs, með möguleika á framlengingu, samkvæmt frumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Þá munu áfengis- og vímefnaráðgjafar endurheimta starfsheiti sitt verði frumvarpið að lögum.

Þann 1. janúar 2013 tóku gildi ein lög um heilbrigðisstarfsmenn og sérlög um einstakar starfsstéttir féllu úr gildi. Samkvæmt læknalögum gátu læknar starfað sjálfstætt til 75 ára aldurs og eftir það sótt um undanþágu til þess að starfa áfram, eitt ár í senn. Þetta breyttist með lögum um heilbrigðisstarfsmenn, þar sem eitt ákvæði gildir um alla heilbrigðisstarfsmenn og kveður á um heilbrigðisstarfsmönnum sé óheimilt að reka eigin starfsstofu eftir sjötugt. Möguleiki er þó á framlengingu en aðeins til tveggja ára í senn samkvæmt undanþágu frá Embætti landlæknis. Slíka heimild er þó ekki unnt að fá oftar en þrisvar, þ.e. til 76 ára aldurs.

Aukið atvinnufrelsi

Samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra verða starfsaldursmörk hækkuð í 75 ár. Heilbrigðisstarfsmanni verður óheimilt að veita heilbrigðisþjónustu á eigin starfsstofu eftir þann aldur nema að fenginni undanþágu frá Embætti landlæknis. Að uppfylltum skilyrðum getur embættið veitt undanþágu til allt að þriggja ára í senn í fyrsta skipti en eftir það til eins árs í senn. Rök fyrir því að breyta gildandi ákvæði um hámarksaldur eru einkum þau að núverandi fyrirkomulag samræmist ekki reglum nágrannaríkja og feli í sér of mikla takmörkun á atvinnufrelsi heilbrigðisstarfsmanna.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafar

Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa hefur gert athugasemdir við starfsheiti sitt í gildandi lögum þar sem stéttin heitir áfengis- og vímuvarnaráðgjafar. Í frumvarpi heilbrigðisráðherra er orðið við óskum félagsins og starfsheitið fært til fyrra horfs; áfengis- og vímuefnaráðgjafar. Breytingin byggist meðal annars á þeim rökum félagsins að stéttin vinni ekki aðeins að áfengis- og vímuvörnum heldur stundi ráðgjöf á sjúkrastofnunum og göngudeildum fyrir áfengissjúklinga og vímuefnafíkla ásamt fjölskyldum þeirra. Áfengis- og vímuvarnir sé því einungis lítill hluti starfs stéttarinnar.

Skýrari gjaldtökuheimild

Loks er í frumvarpi heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn lögð til breyting á ákvæði um heimild embættis landlæknis til gjaldtöku vegna afgreiðslu og meðhöndlunar á umsóknum um starfsleyfi og sérfræðileyfi. Heimildin snýr að innheimtu gjalds af EES-borgurum og er markmiðið að gera núgildandi heimildir til gjaldtöku skýrari og markvissari.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum