Hoppa yfir valmynd
17. september 2008 Innviðaráðuneytið

Ráðinn forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf.

Björn Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur hefur verið ráðinn forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf., nýs opinbers hlutafélags sem tekur formlega við rekstri Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ohf. 1. janúar 2009. Björn Óli heimsótti í dag Kristján L. Möller samgönguráðherra á skrifstofu hans af þessu tilefni.

Björn Óli Hauksson forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf.
Björn Óli Hauksson forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf.

Umsækjendur um stöðuna voru 55 talsins. Hagvangur sá um að auglýsa eftir umsóknum og meta þær á faglegum forsendum. Niðurstaðan var sú að Björn Óli væri hæfastur umsækjenda, enda með mikla og víðtæka reynslu og þekkingu til að takast á við yfirstjórn í nýju og öflugu fyrirtæki, Keflavíkurflugvelli ohf. Stjórn félagsins samþykkti í dag að ráða Björn Óla sem hefur störf 1. október næstkomandi.

Björn Óli Hauksson hefur undanfarin sex ár unnið að uppbyggingu flugmála í Kósóvó sem forstjóri Pristina International Airport J.S.C og sem verkefnisstjóri þar á vegum Flugmálastjórnar Íslands og Flugstoða ohf. Hann setti þar á laggir flugmálastjórn Sameinuðu þjóðanna (CARO - UNMIK Civil Aviation Regulatory Office) og hefur þar með reynslu af að stjórna alþjóðaflugvelli með tilheyrandi faglegri og fjárhagslegri ábyrgð, stefnumótun og málum sem varða skipulag, umhverfi, öryggi og faglegt eftirlit. Björn Óli tók meðal annars þátt í að sameina fyrirtæki um rekstur flugvallar og flugstöðvar í Kósóvó og hefur unnið að því að byggja upp sameinað félag þar að lútandi.

Björn Óli er 47 ára að aldri og er með meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Álaborgarháskóla í Danmörku. Hann hefur starfað í Kósóvó frá því árið 2000, fyrst sem tæknisérfræðingur við uppbyggingu mannvirkja og tæknibúnaðar en síðar sem sérfræðingur og umsjónarmaður fjölda verkefna í stjórnsýslunni og rekstri hins opinbera þar.


Björn Óli Hauksson forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf.
Nýráðinn forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf., Björn Óli Hauksson, er hér á milli þeirra Kristjáns L. Möller samgöngurráðherra og Jóns Gunnarssonar, formanns stjórnar Keflavíkurflugvallar ohf. er þeir heimsóttu ráðherrann í dag.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum