Hoppa yfir valmynd
9. september 2021 Utanríkisráðuneytið

Skólalokanir auka ójöfnuð í Suður-Asíu að mati UNICEF

Mashaal skólinn í Pakistan. Ljósmynd: UNICEF - mynd

Lokanir á skólum vegna heimsfaraldurs COVID-19 hafa skapað gríðarlega misskiptingu og ójöfnuð í námstækifærum barna í Suður-Asíu. Aðgerðir stjórnvalda til að auka fjarkennslu hafa borið takmarkaðan árangur. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar rannsóknar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, á stöðu náms á Indlandi, í Pakistan, á Srí Lanka og Maldíveyjum.

Lokanir á skólum hafa raskað námi 434 milljóna barna í heimshlutanum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar UNICEF telur verulegur hluti nemenda og foreldra þeirra að börnin séu að læra mun minna en fyrir heimsfaraldurinn.

Um 80 prósent barna á aldrinum 14-18 ára á Indlandi upplifa að þau séu að læra minna en þegar þau voru í skólastofum í eigin persónu. Á Srí Lanka segja 69 prósent foreldra að grunnskólabörn þeirra séu að læra minna eða umtalsvert minna en áður. Stúlkur, börn frá fátækum heimilum og fötluð börn eiga erfitt með fjarkennslufyrirkomulagið í þessum löndum. 

Rannsóknin sýndi einnig að regluleg samskipti nemenda og kennara hefði mjög jákvæð áhrif á gæði náms, sérstaklega hjá yngri börnum. Hins vegar sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að flestir nemendur höfðu lítil sem engin samskipti átt við kennara sína eftir að skólum var lokað. Í einkagrunnskólum á Srí Lanka sögðust 52 prósent kennara hafa verið í samskiptum við nemendur sína fimm daga vikunnar, en þetta hlutfall fór niður í 8 prósent hjá kennurum í opinbera skólakerfinu. 

„Það verður að vera forgangsatriði hjá öllum stjórnvöldum að opna skólana aftur á öruggan hátt. Það þarf að fjárfesta í menntun og tryggja að kennarar og skóli geti aðlagað sig öllum aðstæðum. Því betur sem kennarar eru þjálfaðir, útbúnir og njóta stuðnings í fjarkennslu eða blandaðri kennslu, því betur munu þeir geta náð til allra nemenda sinna,“ er haft eftir George Laryea-Adjei, svæðisstjóra UNICEF í Suður-Asíu, í frétt á vef UNICEF.

Lokanir skóla í Suður-Asíu hafa aukið enn á áður slæmt ástand í menntamálum þar. Fyrir heimsfaraldurinn gátu nærri 60 prósent barna í heimshlutanum ekki lesið eða skilið einfaldan texta fyrir tíu ára aldur. Þar að auki voru 12,5 milljónir barna á grunnskólaaldri og 16,5 milljónir barna á unglingastigi ekki í skóla.

UNICEF kallar meðal annars eftir því við stjórnvöld um allan heim að öruggar skólaopnanir séu forgangsatriði í öllum sóttvarnaraðgerðum og að bólusetning kennara verði sett í forgang.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum