Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2012 Innviðaráðuneytið

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá því í júní að áætluðu uppgjöri framlaga til sveitarfélaga á árinu 2012 til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts á grundvelli reglugerðar, nr. 80/2001 með síðari breytingum.

Útreikningur framlaganna byggir á upplýsingum frá  Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts í sveitarfélögum 31. desember 2011 sem gilda fyrir árið 2012. Tekið er mið af álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2012.

Endurskoðað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna á árinu nemur samtals um 2.930,3 m.kr. og komu 60% af áætluðu framlagi ársins til greiðslu mánuðina febrúar til júní eða samtals um 1.708,7 m.kr. Uppgjör framlaganna, sem nemur 1.221,6 m.kr., fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september, 407,2 m.kr. í hvert sinn.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum