Hoppa yfir valmynd
5. október 2012 Innviðaráðuneytið

Áætluð úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2012

Innanríkisráðherra  hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 19. september sl. um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2012 á grundvelli 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna um 1.248 milljónum króna og tekur jöfnunin mið af 95,4% af meðaltekjum á íbúa í viðkomandi viðmiðunarflokki.

Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Einungis kemur til greiðslu framlags hafi sveitarfélag fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars.

Í dag koma ¾ hlutar af áætluðum framlögum til greiðslu eða samtals um 936 milljónir króna. Uppgjör framlaganna  fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum