Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Samstarf við ríkislögreglustjóra um aukið netöryggi og vernd barna

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri. - mynd

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri undirrituðu í vikunni fjóra samninga upp á samtals 24 m.kr. til ríkislögreglustjóra í aðgerðir sem miða annars vegar að því að auka vernd barna á netinu og hins vegar til að styrkja innviði lögreglunnar til þess að takast á við net- og tölvubrot almennt. Aðgerðirnar eru allar hluti af aðgerðaráætlun stjórnvalda í netöryggi 2022-2027.

Tvær aðgerðir miða að aukinni vernd barna á netinu. Komið verður í kring stafrænum tæknilausnum til að tryggja að börn geti notað netið á hátt sem samrýmist rétti þeirra til verndar gegn skaðlegu efni og einnig svo þau geti nýtt tjáningarfrelsi sitt og möguleika stafrænnar tækni í leik og starfi. Jafnframt verður tæknileg geta lögreglunnar styrkt til að rannsaka barnaníðsefni á netinu með gæði og skilvirkni slíkra rannsókna að leiðarljósi. Sérsniðið gagnavinnslukerfi verður útbúið, verkferlar samhæfðir við alþjóðlega greiningarviðmið og úrræði á vegum Europol og Interpol betur nýtt.  

„Á síðustu misserum höfum við hjá ríkislögreglustjóra leitast við að styrkja og vernda öryggi barna á netinu, með styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Við höldum áfram á þessari vegferð með mikilvægu framlagi frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í dag,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri. „Það er gríðarlega mikilvægt að við tryggjum börnum möguleika á að nota netið með hætti sem samrýmst rétti þeirra til verndar gegna skaðlegu efni, en einnig svo þau geti nýtt tjáningarfrelsi sitt og möguleika stafrænnar tækni í leik og starfi.“

Mikilvægt er að efla viðbrögð lögreglu við afbrotum en aðeins lítill hluti þeirra (6%) sem verða fyrir tilraun netbrota eða fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þessa, tilkynna slík mál til lögreglu. Til þess að koma í veg fyrir slík afbrot og vera til staðar fyrir almenning sem verður fyrir slíkum brotum er mikilvægt að styrkja innviði lögreglunnar. Tvær aðgerðir sem hlutu styrk frá ráðuneytinu fela m.a. í sér að endurmeta skipulag lögreglu til að takast á við netbrot og tryggja vandaða og samræmda meðferð netbrota hjá lögreglunni og að auka fræðslu og hæfni innan réttarvörslukerfisins til þess að takast á við brot sem eru tæknistudd eða tækniháð með bætt réttaröryggi borgara að leiðarljósi.

„Stóraukin almenn netnotkun krefst þess að stjórnvöld taki enn markvissari skref til aukins netöryggis og efli enn frekar viðbrögð við netöryggisógnum og atvikum sem ógna samfélaginu öllu,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. „Aukning á notkun stafrænna lausna til misnotkunar og ofbeldis kallar á að hugað sé sérstaklega að vernd viðkvæmra hópa. Með samningum þessum við ríkislögreglustjóra erum við að taka mikilvæg skref í þá átt með því að einblína á vernd barna, sem er ein af aðal áherslumálum gildandi Netöryggisstefnu Íslands.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum