Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 652/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 1. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 652/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23090024

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. september 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. september 2023, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 31. júlí 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 1. til 6. október 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. september 2023. Hinn 6. september 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt fylgigögnum. Þá lagði kærandi fram frekari fylgigögn vegna málsins 8. og 13. september, og 31. október 2023.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru vísar kærandi til fyrirliggjandi ákvörðunar, dags. 1. september 2023, og þeirra skýringa sem liggja að baki ákvörðuninni. Kærandi kveðst hafa yfirfarið umsóknarferlið og telur sig hafa lagt fram öll nauðsynleg fylgigögn. Kærandi kveðst munu ferðast með kærasta sínum en umsókn hans um vegabréfsáritun hafi þegar verið samþykkt, þrátt fyrir að ferðaáætlun þeirra væri eins. Kærandi telur líklegt að gögn frá vinnuveitanda geti útskýrt niðurstöðu í máli sínu og óskaði hún því eftir frekari útskýringum og aðstoð, svo hún geti lagt fram nauðsynleg fylgigögn á kærustigi. Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi eru bréf frá vinnuveitanda sem greinir frá leyfi hennar vegna ferðalagsins, ráðningarsamningur, og ljósmynd af búsetuskráningarvottorði (hukou).

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauki 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu. 

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 2 vegna synjunar á umsókn, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga en hún var lögð inn hjá VFS skrifstofunni í Hangzhou, sem starfar í umboði sendiráðsins, sbr. viðauka 10 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hennar hjá sendiráðinu er rakin. Samkvæmt málaskránni voru gögn vinnuveitanda ófullnægjandi, auk þess sem forsíðu búsetuskráningarvottorðs (hukou) skorti. Kærandi hafi lagt fram bréf, dags. 31. júlí 2023, sem innihélt skýringar á því hvers vegna framangreind gögn voru ekki lögð fram. Við meðferð málsins var kæranda veittur fimm daga frestur til þess að leggja fram umbeðin fylgigögn en greindi frá því í bréfinu að hún gæti það ekki innan frestsins. Lagði fulltrúi sendiráðsins því til að umsókn kæranda skyldi synjað vegna skorts á nauðsynlegum fylgigögnum. Við meðferð máls á kærustigi lagði kærandi fram frekari fylgigögn vegna málsins, þ. á m. ný gögn frá vinnuveitanda og ljósmynd af búsetuskráningarvottorði (hukou). Við meðferð málsins reyndist skjalið sem innihélt búsetuskráningarvottorðið ólæsilegt og sendi kærunefnd kæranda tölvubréf, dags. 26. október 2023, þar sem henni var veittur frestur til þess að leggja fram læsilegt skjal. Kærandi bætti úr þessu með tölvubréfi, dags. 31. október 2023.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi þess að nú liggja fyrir gögn í máli kæranda sem áhrif geta haft á niðurstöðu máls hennar, er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á þau nýju gögn sem nú hafa verið lögð fram.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

 

The decision of the Directorate of Immigration in the appellant’s case is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum