Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 176/2021 Úrskurður 16. desember 2021

Mál nr. 176/2021                  Eiginnafn:     Morri (kk.)

 

 

Hinn 16. desember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 176/2021 en erindið barst nefndinni 29. nóvember.  

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Eiginnafnið Morri (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Morra, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Morri (kk.) er samþykkt og skal það fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum