Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja - myndVelferðarráðuneytið

Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. mars 2019. Auglýsingin var birt á Starfatorgi 23. nóvember.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum. Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í Heilbrigðisumdæmi Suðurnesja sem nær yfir Sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerðis, Reykjanesbæ, Grindavíkurbæ og Sveitarfélagið Voga. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í  tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Um er að ræða stofnun sem fær um 2,8 milljarða af fjárlögum ríkisins og þar eru um 190 stöðugildi.

Forstjóri ber ábyrgð á að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur.
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri.
Þekking og reynsla  af mannauðsmálum.
Þekking og reynsla á sviði heilbrigðisþjónustu.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Leiðtogahæfileikar.

Hæfni umsækjenda verður metin af nefnd, skv. 2. mgr. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum. Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri, [email protected].

Umsóknir skulu berast velferðarráðuneytinu, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík eða á netfangið: [email protected] eigi síðar en 17. desember nk.

Öllum umsóknum verður svarað þegar heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um skipun í embættið.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum