Hoppa yfir valmynd
1. ágúst 2012 Innviðaráðuneytið

Unnið verði áhættumat og settar fram tillögur um flugvernd til frambúðar

Innanríkisráðuneytinu hefur borist skýrsla Flugmálastjórnar Íslands um atvik á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt 8. júlí þegar tveir menn komust yfir girðingu, um flugvélastæði og inn í flugvél sem beið brottfarar. Unnið verður áhættumat og lagðar fram tillögur um hvernig heppilegast sé að haga flugvernd á Keflavíkurflugvelli til frambúðar til að fyrirbyggja atvik sem þetta.

Eftir atvikið óskaði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra eftir því við Flugmálastjórn að fá skýrslu um málið og hvernig brugðist skuli við til að koma í fyrir að slíkur atburður geti endurtekið sig. Flugmálastjórn bárust skýrslur aðilla þar sem atburðarás er lýst svo og viðbrögðum í kjölfar atviksins.

Fram kemur í skýrslu Flugmálastjórnar að ljóst sé að eftirliti með aðgangsstýringu, eftirliti með flughlaði og vernd loftfars hafi verið ábótavant. Mennirnir hafi komist yfir girðingu þar sem framkvæmdir stóðu yfir, óséðir yfir hlað og sáust ekki á eftirlitsmyndavélum, upp stigabíl og um borð í flugvél sem var opin og óvöktuð. Deildarstjóri flugvalla- og flugverndardeildar hafi strax farið fram á að leitað yrði allt haftasvæði flugverndar sem mennirnir hefðu hugsanlega getað haft aðgang að.

Í bréfi Péturs K. Maack flugmálastjóra með skýrslunni til ráðuneytisins segir að í kjölfar þess að mennirnir fundust á salerni flugvélarinnar hafi strax verið gripið til ráðstafana til að tryggja að mennirnir hefðu ekki valdið spjöllum á svæðinu og að eftirlit og verklag hefði verið hert. Flugmálastjórn hefur metið skammtímalausnir og aðgerðir og hið herta eftirlit sem þegar hefur verið gripið til og telur þær ráðstafanir fullnægjandi. Flugmálastjóri segir að áhættumati sé beitt í æ ríkari mæli og leggur til að flugverndarráð, sem meðal annars hefur það verkefni að endurskoða flugverndaráætlun, verði kallað saman til fundar í haust til að ræða atvikið og stöðuna í flugverndarmálum.

Þá hélt Flugmálastjórn fund með fulltrúum Isavia, flugrekenda og fulltrúa ríkislögreglustjóra þar sem ítrekuð var ósk um áhættumat. Farið verði yfir allt verklag, myndavélavöktun, rýni á starfsemi, mönnun stjórnstöðvar, vernd loftfars og fleiri þætti. Var veittur frestur til 31. ágúst til að skila lokaskýrslu sem byggist á slíku áhættumat. Á meðan mun verða fylgst með þeim skammtíma ráðstöfunum sem hafa nú þegar verið innleiddar og meta virkni þeirra reglulega.

Innanríkisráðuneytið hefur fylgst með framvindu málsins og mun meta stöðuna þegar lokaskýrsla liggur fyrir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum