Hoppa yfir valmynd
2. júní 2022 Innviðaráðuneytið

Nýjar og endurskoðaðar áætlanir um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga

Sigurður Ingi Jóhansson, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða áætlun um úthlutanir framlaga vegna málefna fatlaðs fólks á árinu 2022.

Breytingar milli fyrstu og annarrar áætlunar 2022 byggja á uppfærðum upplýsingum sem borist hafa frá þjónustusvæðum og með samkeyrslu við þjóðskrá. Dæmi um slíkar breytingar er lögheimilisflutningur þjónustuþega og uppfærðar kostnaðarupplýsingar. Ný áætlun verður birt í nóvember 2022.

Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að úthlutun framlaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda skólaárið 2022-2023.

Úthlutunin, sem nemur 645,6 milljónum króna, fer fram á grundvelli 2. mgr. 1. gr. reglna um framlög vegna hljóðfæranáms á framhaldsstigi og söngnáms á mið- og framhaldsstigi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum