Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mal nr. 408/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 408/2023

Miðvikudaginn 15. nóvember 2023

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. ágúst 2023, kærði B, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 23. maí 2023 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2022.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar greiðslur á tímabilinu 1. janúar til 31. október 2022. Vegna mistaka í skráningu í kerfum Tryggingastofnunar var kærandi skráð látin í október 2022 og stöðvuðust greiðslur til hennar frá og með nóvember 2022. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. maí 2023, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2022 hafi leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð 632.351 kr.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. ágúst 2023. Með bréfi, dags. 12. september 2023, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 18. október 2023, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. október 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að ofgreiðsla stafi af makalífeyri. Kærandi fái einungis 140.000 kr. á mánuði, hún sé að fá […] og vanti […] og hafi þar af leiðandi ekki efni á að greiða þessa skuld.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kæra varði endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2022.

Breytingar á lögum nr. 100/2007 hafi tekið gildi þann 12. apríl 2023 en þar sem um sé að ræða greiðslur til kæranda á árinu 2022, fyrir umræddar breytingar verði málið skoðað út frá eldri lögum að hluta.

Í 16. gr. þágildandi laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teldust tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teldist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tl. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum, sbr. 30. gr. núgildandi laga um almannatryggingar.

Í 5. mgr. 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar sagði að til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar skyldi leggja áætlaðar tekjur greiðsluþegans á bótagreiðsluárinu. Þá sagði að áætlun um tekjuupplýsingar skyldi byggjast meðal annars á nýjustu upplýsingum frá greiðsluþega, sbr. 39. gr. laganna þar sem sagði að greiðsluþega væri skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur.

Í 3. mgr. 33. gr. núgildandi laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009.

Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem komi fram í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 34. gr. núgildandi laga um almannatryggingar. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Málavextir séu þeir að á árinu 2022 hafi kæranda verið greitt ráðstöfunarfé til og með 31. október 2023. Vegna mistaka í skráningu í kerfum Tryggingastofnunar hafi kærandi verið skráð látin í október og því hafi hún ekki fengið greitt ráðstöfunarfé í nóvember og desember 2022. Það sé einnig skýringin á því að þegar kæranda hafi verið tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2022 með bréfi, dags. 23. maí 2023, hafi komið fram að um dánarbú væri að ræða, sem hafi ekki verið rétt. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2022 hafi leitt til 632.351 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2023 vegna tekjuársins 2022, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafði gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun þann 28. janúar 2022. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að allt árið 2022 væri kærandi með lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð 270.204 kr. og 11.442 kr. í vexti og verðbætur. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda vegna þessarar tekjuáætlunar og hafi kæranda verið greitt eftir henni út október 2022.

Við bótauppgjör ársins 2022 hafi komið í ljós að kærandi hafði á tímabilinu janúar til október verið með lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð 1.607.249 kr. og 85.040 kr. í vexti og verðbætur. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2022 hafi verið sú að kærandi hafi fengið ofgreitt í bótaflokknum ráðstöfunarfé, þ.e. hafi ekki átt rétt á ráðstöfunarfé á árinu 2022 nema fyrir janúarmánuð, en maki kæranda hafi látist í janúar 2022 og frá og með febrúar 2022 hafi kærandi fengið greiddan makalífeyri.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum.

Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eða hvernig þær séu skráðar á skattframtalið, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2022 hafi verið sú að kærandi hafi fengið 701.500 kr. greitt á árinu en hefði átt að fá greitt 69.149 kr., þ.e. eingöngu ráðstöfunarfé í janúarmánuði 2022. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 632.351 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Meginreglan sé sú að ef tekjur sem lagðar séu til grundvallar endurreikningi reynist hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir og ofgreiðsla stafi af því að bótaþegi hafi ekki tilkynnt Tryggingastofnun um tekjuaukninguna eða aðrar breyttar aðstæður þá skuli sú ofgreiðsla endurkrafin. Skipti þá ekki máli hvort greiðsluþegi hafi getið séð fyrir þessa tekjuaukningu eða breyttu aðstæður.

Stofnunin vilji þó benda kæranda á að þrátt fyrir að endurreikningur hafi leitt í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar sé heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Skuli þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn. Hægt sé að sækja um niðurfellingu ofgreiðslukröfu á „Mínum síðum“ á tr.is.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2022. Stofnunin telji að miðað við fyrirliggjandi gögn sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og góða stjórnsýsluhætti.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2022.

Kærandi fékk greitt ráðstöfunarfé frá Tryggingastofnun ríkisins frá 1. janúar til 31. október 2022. Í þágildandi 5. mgr. 48. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar segir að lífeyrir falli niður vegna dvalar lengur en í mánuð samfellt á sjúkrahúsi sem er á föstum fjárlögum ef dvölin hefur varað lengur en sex mánuði undanfarna tólf mánuði. Svohljóðandi er þágildandi er 8. mgr. ákvæðisins.

„Þegar lífeyrir og bætur honum tengdar falla niður skv. 5. mgr. er heimilt að greiða elli- og örorkulífeyrisþega sem dvelst á sjúkrahúsi eða stofnun fyrir aldraða hér á landi ráðstöfunarfé allt að 766.464 kr. á ári. Við útreikning á fjárhæð [ráðstöfunarfjár skulu tekjur, sbr. 8. tölul. 2. gr., sbr. einnig 4. mgr. 16. gr., lækka ráðstöfunarfé um 65%. Ráðstöfunarfé fellur alveg niður við tekjur sem nema 1.179.180 kr. á ári.“

Með stoð í 10. mgr. 48. gr. sbr. 70. gr. laga um almannatryggingar var sett reglugerð nr. 1255/2016 um ráðstöfunarfé og dagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.

Samkvæmt þágildandi 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í þágildandi 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum.

Á grundvelli 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. áðurnefndrar reglugerðar nr. 598/2009.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins sendi kærandi Tryggingastofnun 28. janúar 2022 tekjuáætlun þar sem gert var ráð fyrir 270.204 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 11.442 kr. í fjármagnstekjur. Kærandi gerði ekki athugasemdir við áætlunina og var ráðstöfunarfé reiknað út frá framangreindum tekjuforsendum.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2022 reyndust tekjur kæranda frá 1. janúar 2022 til 31. október 2022 vera 1.607.249 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 85.040 kr. í fjármagnstekjur. Niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2022 var sú að sökum tekna hefði kærandi fengið ofgreiddar bætur samtals að fjárhæð 632.351 kr.

Samkvæmt framangreindu reyndust fjármagnstekjur og lífeyrissjóðstekjur kæranda vegna tímabilsins janúar til 31. október 2022 vera hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun. Í máli þessu leiddu lífeyrissjóðstekjur, sem kærandi byrjaði að fá í febrúarmánuði í kjölfar andláts maka, fyrst og fremst til ofgreiðslu. Lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif á bótarétt sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Að öllu framangreindu virtu er niðurstaða endurreiknings og uppgjörs Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2022 staðfest.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur rétt benda kæranda á að hún getur freistað þess að leggja fram beiðni um niðurfellingu ofgreiddra bóta til Tryggingastofnunar á grundvelli undanþáguákvæðis 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Þar kemur fram að heimilt sé að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Þá skuli einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna greiðsluþega og þess hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2022, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum