Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hreindýrakvóti ársins 2022

Hreindýr - myndUnsplash

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða fyrir árið 2022 og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun.

Alls verður heimilt að veiða 1.021 hreindýr á veiðitímanum, 546 kýr og 475 tarfa. Þetta er 199 hreindýrum færra en á undanförnu ári sem stafar fyrst og fremst af óvissu um talningar hreindýra vegna veðurskilyrða og tilfærslu dýra milli veiðisvæða á talningartímum.

Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.

Fyrstu tvær vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð.

Þá eru veturgamlir tarfar alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tarfa sem eru tveggja vetra og eldri.

Óheimilt er að veiða kálfa.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.

Líkt og fyrri ár skiptist veiðin milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í meðfylgjandi auglýsingu.

Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.

Meðfylgjandi er auglýsing um hreindýraveiðar árið 2022.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum