Hoppa yfir valmynd
25. mars 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 127/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 25. mars 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 127/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19010037

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 28. janúar 2019 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. janúar 2019 um að synja henni um dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, sbr. 61. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af greinargerð kæranda má ráða að hún krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar þann 23. apríl 2018 og sótti jafnframt um aðstandandaleyfi fyrir hönd dætra sinna. Með ákvörðun Útlendingastofnun, dags. 8. janúar 2019, var umsókn kæranda synjað ásamt umsóknum dætra hennar, þar sem þær leiða rétt sinn af móður sinni. Umboðsmanni kæranda var tilkynnt um ákvörðunina þann 15. janúar 2019 og þann 28. janúar sl. kærði kærandi ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 14. febrúar sl.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var vísað til þess að samkvæmt b-lið 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga sé það forsenda fyrir útgáfu dvalarleyfis vegna starfs sem krefst sérþekkingar að áður hafi verið gefið út atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. desember 2018, hafi kæranda verið synjað um atvinnuleyfi. Væri stofnuninni því ekki heimilt að veita kæranda dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérþekkingar og var umsókn hennar því synjað. Þar sem kæranda hefði verið synjað um dvalarleyfi væri dætrum hennar jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar þar sem þær leiddu rétt sinn af móður sinni.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við ákvörðun Vinnumálastofnunar. Þar sem ákvarðanir Vinnumálastofnunar sæta endurskoðun hjá félagsmálaráðuneytinu, sbr. 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002, er að mati kærunefndar ekki tilefni til að rekja það sem fram kemur í greinargerð kæranda.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 61. gr. laga um útlendinga er fjallað um heimildir til útgáfu dvalarleyfis vegna starfs sem krefst sérþekkingar. Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna eru m.a. þau að útlendingur fullnægi grunnskilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna, sbr. a-lið 1. mgr. 61. gr., og að tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérþekkingar hafi verið veitt á grundvelli laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. b-lið 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga.

Í ákvæði 1. mgr. 52. gr. laga um útlendinga er mælt svo fyrir um að Útlendingastofnun taki ákvörðun um veitingu dvalarleyfis en Vinnumálastofnun um veitingu atvinnuleyfis. Af ákvæðinu er ljóst að ákveðin verkaskipting er milli Útlendingastofnunar annars vegar og Vinnumálastofnunar hins vegar. Er hlutverk Útlendingastofnunar m.a. fólgið í að kanna hvort skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis samkvæmt umsókn þar að lútandi séu fyrir hendi í samræmi við ákvæði laga um útlendinga á meðan Vinnumálastofnun annast m.a. framkvæmd laga atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002, þ.m.t. hvort útlendingi skuli veitt atvinnuleyfi. Samkvæmt gögnum málsins er ljóst að Vinnumálastofnun synjaði kæranda um atvinnuleyfi með ákvörðun, dags. 4. desember 2018. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að þeirri ákvörðun hafi verið hnekkt. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði b-liðar. 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu dvalarleyfis vegna starfs sem krefst sérþekkingar. Þar sem umsókn kæranda er synjað ber jafnframt að synja umsóknum dætra hennar þar sem þær geta eingöngu leitt rétt af kæranda. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar því staðfest.

Vegna athugasemda sem beint var til kærunefndar útlendingamála f.h. kæranda þann 14. febrúar 2019 áréttar kærunefnd leiðbeiningar um að beina kröfum um endurskoðun ákvarðana Vinnumálastofnunar til félagsmálaráðuneytisins, sbr. 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                             Anna Valbjörg Ólafsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum