Hoppa yfir valmynd
9. september 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

36 milljarðar kr. til framhaldsskólastigsins: Starfsnám í forgang

Framlög til framhaldsskólastigsins samkv. ríkisreikningi 2018, fjárlögum 2019 og fjárlagafrumvarpi 2020. - mynd
Framlög á hvern framhaldsskólanemenda í fullu námi hækka úr 1.732.000 kr. árið 2019 í 1.819.800 kr. árið 2020. Framlög til framhaldsskóla hafa hækkað umtalsvert undanfarin ár en sú hækkun mun halda sér samkvæmt fjármálaáætlun fyrir árin 2020-2024. Frá árinu 2017 hafa heildarframlög til framhaldsskólastigsins aukist um 1,3 milljarða kr. að raunvirði. Fjárlagafrumvarpið sem kynnt var sl. föstudag gerir ráð fyrir framlögum sem nema um 36,3 milljörðum kr. til málefnasviðs framhaldsskólastigsins en því tilheyra auk skólanna sjálfra einnig framlög til tónlistarfræðslu, vinnustaðanáms og jöfnunar námskostnaðar.

Auknir fjármunir sem runnið hafa til skólanna að undanförnu gera þeim kleift að efla sitt skólastarf enn frekar, meðal annars með því að bæta námsframboð, styrkja stoðþjónustu og endurnýja búnað og kennslutæki.

Meðal áhersluverkefna á árinu 2020 er að efla iðn-, starfs- og verknám. Forgangsraðað er í þágu slíks náms í nýju reiknilíkani framhaldsskólanna um 172 milljónir kr. á komandi ári. Þá verður unnið að tillögu um framkvæmd þingsályktunar um aðgengi að stafrænum smiðjum og farið í mat á endurskipulagningu námstíma til stúdentsprófs. Áfram er unnið að því fjölga nemendum sem útskrifast úr framhaldsskóla á tilsettum tíma með því að kortleggja betur nemendur í brotthvarfshættu og innleiða reglubundnar mælingar, sérstök áhersla er þar lögð á nemendur með annað móðurmál en íslensku og nemendur á landsbyggðinni. Þá hefur verið settur á laggirnar starfshópur sem meta mun þörf á heimavist á höfuðborgarsvæðinu fyrir framhaldsskólanema.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum